Pósturaf DoofuZ » Mið 30. Mar 2011 00:15
Ef maður ætlar að geyma fartölvu í hálft ár hvernig er þá best að geyma hana? Bara setja hana inní einhvern skáp eða er betra að pakka henni inní eitthvað? Setja hana kannski í fartölvutösku og svo inní skáp? Og hvað með batteríið? Ég sá einn
gamlan þráð hérna þar sem er talað um að það sé best að geyma það á köldum stað við 40% hleðslu, er þá betra að geyma það þannig eitt og sér eða er í lagi að hafa það í fartölvunni?
Málið er að systir mín er að fara til útlanda í hálft ár eða svo og vantar s.s. að vita hvernig er best að geyma tölvuna á meðan en eins og er þá er planið hjá henni að setja hana í kassann sem hún var í og setja kassann svo bara inní skáp. Einhver með betri hugmynd?

Gigabyte GA-MA790FXT-UD5P, AMD Phenom II X4 955 @3.2Ghz, 2 x 4gb Corsair Vengeance DDR3 @1600mhz LP, EVGA Geforce GTX 760, Seagate Barracuda 500gb, 20x Sony DVDRW, TT Big Typhoon og 700W Tagan BZ allt í Cooler Master Stacker kassa með 55" Philips HDTV :]