raid er samheiti yfir tæknir til að láta marga diska vinna saman "sem einn" með þar til gerðum stýringum. orðið raid er skammstöfun á "Redundant Arrai of Inexpensive Disks"(Villuvarið Mengi af Ódýrum Diskum.. væri VMÓD á íslensku

hehe). þessi staðall var hannaður sem ódýr leið til að fá mikil afköst og áreiðanleika úr ódýrum diskum.
Raid 0 (sem er BTW ekki alvöru raid, þar sem það er ekki villuvarið) er þannig byggt upp að þú ert með 2 eða fleiri diska og deilir (strípar) gagna blokkum á milli diskanna þannig að hún les helmingin af gögnunum af hvorum disk fyrir sig. þetta veldur því að þú getur fengið mun meiri afköst (theoratically tvöfalt performance), en á móti því, þá eru tvöfalt meiri líkur á því að þú tapir gögnum, vegna þess að bara annar diskurinn þarf að bila til að þú tapir öllum gögnunum.
Raid 1 eða mirror virkar þannig að þú ert með 2 jafn stóra diska sem eru í rauninni bara afrit af hvorum öðrum. þannig eru mjög litlar líkur á að þú tapir nokkurntíman gögnum þar sem að þú ert sjálfkrafa alltaf með glænýtt bakcup af öllu. stór galli við þetta er að megabætið verður 2x dýrara.
Raid 5 er þannig að þú þarft að ver með 3-7 diska í mengi (semsagt að vinna saman). Raid stýringin notar jafn stórann hluta af hverjum disk og diskarnir eru margir undir parity gögn (semsagt 1/7 af hverjum disk ef það eru 7 diskar eða 1/3 af hverjum disk ef það eru 3 diskar). þannig að ef að einn diskur í menginu bilar, þá ertu alltaf með parity gögn sem þú getur notað til að "byggja" gögnin aftur upp á nýjann disk.
Þetta er lang besta Raid leiðin sem er til. býður uppá mikið öriggi mikinn hraða og tiltölulega lítinn kostnað á megabæti, en gallinn er sá að byrjunarkostnaðurinn er mjög hár (verð á raid5 stýringu og að minstakosti 3 diskum).
síðan eru til nánast endalaust af stöðlum í viðbót, en þetta eru þeir 3 vinsælustu.