Þegar þú kaupir eitthvað sem neytandi (eins og í þessu tilviki) þá átt þú rétt á því að það sé í lagi og sé eins og þú mátt búast við eins og sjá má í 15 og 16 gr. neytendakaupalaga (
http://www.althingi.is/lagas/nuna/2003048.html). Ef hlutur sem þú kaupir er gallaður þá átt þú rétt á að beita nokkrum úrræðum sem eru í 26 gr. sömu laga. Aðallega getur þú krafist úrbóta (viðgerðar í þessu tilviki) eða nýrrar afhendingar (s.s. að fá nýja sambærilega tölvu). Þú getur líka krafist afsláttar ef þú kýst svo.
Það á samt að líta til þess hver kostnaðurinn er fyrir söluaðilann hvað varðar úrbætur eða nýja afhendingu, þ.e. ef ný afhending eru dýrari fyrir söluaðilann heldur en viðgerð þá má hann gera við vélina.
í 2. mgr. 30. gr. neytendakaupalaga (linkurinn hér að ofan) þá er tekið alveg skýrt fram að söluaðilinn á ekki rétt á að gera við söluhlut oftar en tvisvar sinnum nema sérstakar aðstæður séu fyrir hendi.
Í þínu tilfelli þá eru þeir búnir að fá tækifæri það oft til að gera við tölvuna að þú getur krafist þess að fá nýja sambærilega tölvu eða krafist endurgreiðslu.
Ekki láta þá komast upp með neitt múður!
