Hvaða íhlut ætti ég næst að uppfæra?

Skjámynd

Höfundur
jericho
Geek
Póstar: 874
Skráði sig: Mið 21. Jan 2004 14:23
Reputation: 168
Staða: Ótengdur

Hvaða íhlut ætti ég næst að uppfæra?

Pósturaf jericho » Fös 21. Jan 2011 17:04

Let's face it.. tölvan er orðin gömul og íhlutirnir eru síðan byrjun árs 2008 - ég er viss um að nokkrir þeirra séu orðnir mjög þreyttir.
Tölvan er notuð í almenna vinnslu, en þar sem ég hef lítinn tíma í tölvuleiki, vil ég geta spilað þá í góðum gæðum þegar ég gef mér tíma í leikina.
Nýjasta dæmi er Black Ops, sem mig langar að spila í þokkalegum gæðum (1600x1200 með medium/high), en þá sagði tölvan hingað og ekki lengra (hún höndlar þetta, en það er ekki mjög smooth).
Einnig er NFS Hop Pursuit 2 ekki að keyra nógu smooth í 1650x1080 með medium/high stillingar.

Helstu speccar eru hér:
Mynd
Skjákortið er HD 4850 512mb...

Og meira detailed specs eru hér:
http://speccy.piriform.com/results/KgcV ... XH5dVMsG1s

Ég veit að ég ætti að vera að keyra á 64bita stýrikerfi til að nýta allt minnið og það er næst á dagskrá (þegar ég nenni að formatta). Vélin var síðast formöttuð fyrir ári síðan.
Stóra spurningin er, hvar er flöskuhálsinn? Er málið að redda sér öðru ATi 4850 og SLI brú á milli? Styður móðurborðið mitt það? Þarf ég kannski að uppfæra allt heila klabbið?
Hvað með að setja þessa tvo diska í RAID eitthvað (sem ég les oft um og þykist aðeins vita hvað það er, án þess að hafa hugmynd um hvernig maður gerir svoleiðis)?

Þetta eru spurningar sem eru mér mjög óljósar og því leita ég eftir vitneskju e-s sem þekkir þetta.
Síðast breytt af jericho á Fös 21. Jan 2011 17:08, breytt samtals 1 sinni.



Ryzen 7 7800X3D | DH-15 | Radeon RX 9700 XT | MSI MAG B650 Tomahawk | Samsung Evo 990 2TB | G.Skill Ripjaws S5 2x16GB | Corsair RM850x | Fractal Meshify C | 32" LG UltraGear 4K OLED

Skjámynd

gissur1
Geek
Póstar: 858
Skráði sig: Mið 01. Apr 2009 20:36
Reputation: 12
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Hvaða íhlut ætti ég næst að uppfæra?

Pósturaf gissur1 » Fös 21. Jan 2011 17:07

Byrjar á S og endar á D ?



Skjámynd

Höfundur
jericho
Geek
Póstar: 874
Skráði sig: Mið 21. Jan 2004 14:23
Reputation: 168
Staða: Ótengdur

Re: Hvaða íhlut ætti ég næst að uppfæra?

Pósturaf jericho » Fös 21. Jan 2011 17:09

gissur1 skrifaði:Byrjar á S og endar á D ?


Ætli móðurborðið styðji það?



Ryzen 7 7800X3D | DH-15 | Radeon RX 9700 XT | MSI MAG B650 Tomahawk | Samsung Evo 990 2TB | G.Skill Ripjaws S5 2x16GB | Corsair RM850x | Fractal Meshify C | 32" LG UltraGear 4K OLED

Skjámynd

BjarkiB
Of mikill frítími
Póstar: 1947
Skráði sig: Fim 26. Nóv 2009 19:02
Reputation: 15
Staðsetning: C:\Akureyri
Staða: Ótengdur

Re: Hvaða íhlut ætti ég næst að uppfæra?

Pósturaf BjarkiB » Fös 21. Jan 2011 17:11

Gætir allavega byrjað á skjákortinu, ertu með eitthvað séstakt budget? Getur fengið góð skjákort á 30-40 þúsund tld. Nvidia GeForce Gtx 460/470 eða Amd Radeon HD 6850/6870.
Svo eru SSd diskarnirnir alltaf góðir, og oft er það afkastamesta uppfærslan, allt bootast hraðar s.s. stýrikerfið, forrit og leikir.
Síðast breytt af BjarkiB á Fös 21. Jan 2011 17:13, breytt samtals 2 sinnum.



Skjámynd

gissur1
Geek
Póstar: 858
Skráði sig: Mið 01. Apr 2009 20:36
Reputation: 12
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Hvaða íhlut ætti ég næst að uppfæra?

Pósturaf gissur1 » Fös 21. Jan 2011 17:11

Þetta borð ?



Skjámynd

FreyrGauti
Tölvutryllir
Póstar: 675
Skráði sig: Fim 04. Des 2008 10:29
Reputation: 17
Staða: Ótengdur

Re: Hvaða íhlut ætti ég næst að uppfæra?

Pósturaf FreyrGauti » Fös 21. Jan 2011 21:11

Allt...gætir byrjað á að kaupa nýtt skjákort og séð hvort það dugir fyrir þínar kröfur en það er ekki peningana virði að fara uppfæra örgjörva eða minni.
Ég er með svipað gamla vél og þú, aðeins öflugri, ég keypti GTX460 1GB í haust og það er ekki að duga mér sem uppfærsla, verður farið í nýtt móðurborð+örgjörva+minni á næstu mánuðum.



Skjámynd

Höfundur
jericho
Geek
Póstar: 874
Skráði sig: Mið 21. Jan 2004 14:23
Reputation: 168
Staða: Ótengdur

Re: Hvaða íhlut ætti ég næst að uppfæra?

Pósturaf jericho » Fös 21. Jan 2011 21:18

þakka svörin... ég er á leið til USA í vor og það verða gerð kaup á íhlutum. Ætli ég taki ekki nýtt móðurborð, SSD, minni og skjákort.



Ryzen 7 7800X3D | DH-15 | Radeon RX 9700 XT | MSI MAG B650 Tomahawk | Samsung Evo 990 2TB | G.Skill Ripjaws S5 2x16GB | Corsair RM850x | Fractal Meshify C | 32" LG UltraGear 4K OLED

Skjámynd

BjarkiB
Of mikill frítími
Póstar: 1947
Skráði sig: Fim 26. Nóv 2009 19:02
Reputation: 15
Staðsetning: C:\Akureyri
Staða: Ótengdur

Re: Hvaða íhlut ætti ég næst að uppfæra?

Pósturaf BjarkiB » Fös 21. Jan 2011 23:48

jericho skrifaði:þakka svörin... ég er á leið til USA í vor og það verða gerð kaup á íhlutum. Ætli ég taki ekki nýtt móðurborð, SSD, minni og skjákort.


Þarft þá væntanlega að bæta nýjum örgjörva við ef þú ferð í nýtt móðurborð.