skjávarpa kaup


Höfundur
ingibje
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 355
Skráði sig: Mán 15. Jún 2009 16:52
Reputation: 13
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

skjávarpa kaup

Pósturaf ingibje » Fim 16. Des 2010 21:01

sælir,

ég ætlaði að kaupa mér skjávarpa frá thor.is ( http://www.epson.co.uk/Store/Projectors/Epson-EH-TW3200 ) svo þegar ég ætla fara kaupan þá er uppfært síðuna og hann búin að vera uppseldur seinustu mánuðina.

mig langar virkilega fá mér skjávarpa núna fyrir jólinn eða um jólin.

mér lýst heavý vel á þennan díl frá newegg http://secure.newegg.com/Shopping/Shopp ... ChangeItem yrði komin heim á 190.307 með tolli, vsk og öllu. smk, http://www.tollur.is/upload/files/calc_netverslun(22).htm .

sá sama projector hjá sjónvarpsmiðstöðinni http://www.sm.is/index.php?sida=vara&vara=H7530D .

mig langaði dáldið að fá fleiri álit á þessum kaupum, er td allveg öruggt að panta þaðan? hvenær ætti maður von á þessu, og er þetta yfir höfuð mjög góður skjávarpi.

veit að mörgum líkar illa við acer, enn persónulega hef ég haft mjög góða reynslu af þeim (hef átt og bróðir minn á ferðatölvu frá þeim). enn hvernig myndi maður síðan tækla ábyrgðina þegar maður pantar svona dýrt að utan?

ætti maður kannski bara að sleppa þessu og panta http://buy.is/product.php?id_product=1023 ?


i7 2600k - Asus P8P67 Pro - Corsair 1600MHz 8GB - GTX 480 - Corsair HX 850w - Corsair 60gb ssd - Asus VG236H 120Hz 3D

Skjámynd

hagur
Besserwisser
Póstar: 3152
Skráði sig: Mið 17. Des 2003 16:11
Reputation: 463
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: skjávarpa kaup

Pósturaf hagur » Fim 16. Des 2010 21:09

Ég myndi skoða review á netinu vel. Hérna er t.d eitt: http://www.trustedreviews.com/tvs/revie ... ojector/p1

Varðandi Newegg.com, þá senda þeir ekki til Íslands. Þú gætir mögulega notað ShopUSA eða MyUS eða álíka þjónustu, en þá bætist eitthvað ofan á verðið.

Ég hugsa samt að ég myndi frekar taka Optoma varpann hjá Buy.is. Optoma er mjög þekkt og virt merki í "heimabíó-skjávarpa-bransanum".




Höfundur
ingibje
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 355
Skráði sig: Mán 15. Jún 2009 16:52
Reputation: 13
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: skjávarpa kaup

Pósturaf ingibje » Fim 16. Des 2010 21:59

ja, leiðindi með newegg, eina sem ég sé að því að panta optoma skjávarpan, er að hann er með virkilega lélega specca miðan við þennan frá thor og acer skjávarpanum auk þess að orðin frekar langt síðan hann var kynntur( 2009 ). maður ætti kannski bara seinka þessum kaupum eins leiðinlegt og það hljómar. enn ef einhver er með ábendingum um góð skjávarpakaup má hann endilega henda þeim á borðið ;)


i7 2600k - Asus P8P67 Pro - Corsair 1600MHz 8GB - GTX 480 - Corsair HX 850w - Corsair 60gb ssd - Asus VG236H 120Hz 3D


AntiTrust
Stjórnandi
Póstar: 6379
Skráði sig: Þri 19. Ágú 2008 20:58
Reputation: 174
Staða: Ótengdur

Re: skjávarpa kaup

Pósturaf AntiTrust » Fim 16. Des 2010 22:27

Hvað hefur þessi acer varpi framyfir optomann? Betra lumens i hd20, sami endingartími og sömu native upplausnir?




Hauksi
Fiktari
Póstar: 91
Skráði sig: Fös 28. Mar 2008 15:12
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: skjávarpa kaup

Pósturaf Hauksi » Fös 17. Des 2010 00:11

Uppseldur síðustu mánuðina! Mestalagi 2. mánuðir síðan hann kom á markað.

Nýherji-elko eða Kjaran.
Ég keypti varpann minn af Nýherja..6 ár síðan.

Nýherji var með bestu þjónustuna og besta verðið.
Sérpöntun tók viku.

Elko er með talsvert úrval af vörpum..bara ekki Elko á Íslandi.
En þeir buðu upp á sérpöntun.

Kjaran var með talsvert úrval, sérpöntun.

Hvernig þjónustu fyrirtækin bjóða í dag, þekki ég ekki.

Í skjávarpa kaupum sem og mörgu öðru þá er best að flýta sér hægt...




Höfundur
ingibje
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 355
Skráði sig: Mán 15. Jún 2009 16:52
Reputation: 13
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: skjávarpa kaup

Pósturaf ingibje » Fös 17. Des 2010 01:42

gæjin sagði við mig að hann hafi verið uppseldur í allavega mánuð, og hann vissi ekki hvort að þessi eða einhver ný týpa kæmi inn í janúar, sem mér fannst sjálfum skrýtið.

enn það sem er að angra mig með optoma skjávarpan er contrastið sem er 4000:1 enn þeir í sama verðflokki eru með mun hærra ( acerinn er með DynamicBlack™ Skerpa: 40.000:1 ), svo stendur að acer skjávarpin sé með 2000 lumens, enn optoma 1700.

ég var samt nýlega að kynnar mér fyrir skjávörpum, svo ég veit í raun ekki mikið eftir því hverju ég er að leitast eftir nema svona speccalega séð.


i7 2600k - Asus P8P67 Pro - Corsair 1600MHz 8GB - GTX 480 - Corsair HX 850w - Corsair 60gb ssd - Asus VG236H 120Hz 3D

Skjámynd

snaeji
Tölvutryllir
Póstar: 614
Skráði sig: Fös 05. Mar 2010 01:39
Reputation: 27
Staða: Ótengdur

Re: skjávarpa kaup

Pósturaf snaeji » Fös 17. Des 2010 03:47

Ef þú sættir þig við 720 varpa þá mæli ég með Optoma Hd66 varpa sem er 3d compable (120hz)... kostar 679-699$ í usa... fékk hann til landsins í kringum 100 þúsund kallinn með vsk....

http://www.projectorcentral.com/ - getur notað þessa síðu til að lesa þig til um varpa....

http://www.projectorcentral.com/home-th ... ectors.htm - hérna sérðu top rated skjávarpana hjá þeim eftir flokkum og btw hd66 varpinn er með "2010 highly rated"



Skjámynd

ManiO
Besserwisser
Póstar: 3963
Skráði sig: Fim 08. Jún 2006 18:40
Reputation: 0
Staðsetning: Seltjarnarnes
Staða: Ótengdur

Re: skjávarpa kaup

Pósturaf ManiO » Fös 17. Des 2010 09:24

http://buy.is/product.php?id_product=9202756

Þetta er sami varpi og er top rated á projectorcentral.


"Knowledge is knowing that a tomato is a fruit,
wisdom is knowing not to put one in a fruit salad."


AntiTrust
Stjórnandi
Póstar: 6379
Skráði sig: Þri 19. Ágú 2008 20:58
Reputation: 174
Staða: Ótengdur

Re: skjávarpa kaup

Pósturaf AntiTrust » Fös 17. Des 2010 09:46

ingibje skrifaði:enn það sem er að angra mig með optoma skjávarpan er contrastið sem er 4000:1 enn þeir í sama verðflokki eru með mun hærra ( acerinn er með DynamicBlack™ Skerpa: 40.000:1 ), svo stendur að acer skjávarpin sé með 2000 lumens, enn optoma 1700.

ég var samt nýlega að kynnar mér fyrir skjávörpum, svo ég veit í raun ekki mikið eftir því hverju ég er að leitast eftir nema svona speccalega séð.


Þetta er rétt hjá þér, var að skoða þetta í símanum og mislas greinilega. Hvað varðar þetta contrast er eina leiðin að skoða og bera saman review, helst að sjá video af vörpunum hlið við hlið ;) Þessar tölur eru svo breytilegar eftir framleiðendum.

Annars bara um að gera að skoða review-in á projectorcentral, ég las mér mikið til þar áður en ég verslaði minn fyrsta varpa.




Tesli
spjallið.is
Póstar: 475
Skráði sig: Fim 13. Feb 2003 14:37
Reputation: 29
Staða: Ótengdur

Re: skjávarpa kaup

Pósturaf Tesli » Fös 17. Des 2010 09:58

Ég á Optoma HD20, hann er alveg magnaður. Hef átt tvo aðra skjávarpa fyrir, þannig að ég tala með reynslu. Ekki láta þessar tölur bögga þig, skoðaðu frekar reviews og sjáðu hvað þeir mæla birtuna og contrastinn mikið með mælitækjum því þetta eru oft tölur sem framleiðendur leika sér með.
Samanber þegar LG segjast vera með 600hz sjónvörp sem eru þó ekki 3D ready þegar það þarf aðeins 200hz til að vera 3D ready.
Ég myndi samt fá mér þennan varpa
http://buy.is/product.php?id_product=9202756
því það eru svakalega lélegir uppstillimöguleikar á Optoma HD20.
En ef þú ert með 3,5-5m frá skjávarpa til veggs þá þarftu ekki að hafa áhyggjur af því og þá er HD20 góður kostur.
Ef aðstaða er góð fáðu þér þá HD20 en annars JVC 8350.
Ekki kaupa þér aðra skjávarpa en þessa nema þú sért að fara í dýrari skjávarpa, ACER hafa aldrei verið þekktir fyrir góða homecinema skjávarpa.



Skjámynd

mind
1+1=10
Póstar: 1123
Skráði sig: Fim 12. Des 2002 09:21
Reputation: 31
Staða: Ótengdur

Re: skjávarpa kaup

Pósturaf mind » Fös 17. Des 2010 10:52

Undarlegar ráðleggingar.

Ef þú ert ekki vanur að versla skjávarpa gæti hentað betur að fara útilokunaraðferðina.

Ef þú veist hvort þú vilt DLP eða LCD tæknina ertu strax kominn skrefinu lengra, hafa sína kosti og galla þær tæknir.

Og svo nokkrir hlutir sem er gott að vita.
Því meiri lýsing sem er í aðstöðunni því fleiri lúmens þarfu, en því fleiri lúmens = því dýrari er peran yfirleitt
Epson er með grunn tæknina sem er notuð í flest öllum 3LCD vörpum og því yfirleitt nokkuð öruggt að kaupa það merki ef þú velur LCD.
Varpar hafa mismunandi throw distance svo ef þú vilt ná ákveðni lágmarksstærð á mynd þá þarftu að ganga úr skugga um a linsan á tækinu geti það miðað við lengdina sem þú hefur.
Ef þú ætlar að nota þetta sem heimabíó hafðu þá í huga að varpar sem fara yfir 30dB í hljóði gætu angrað þig með það hljóð alltaf í bakgrunninum.
Ef skjávarpinn sem þú kaupir hefur ekki traust umboð á landinu geturðu búist við því að þurfa sjálfur að útvega þér rekstrarvörur eins og perur og filtera.

Og mundu tjald skiptir máli líka.



Skjámynd

Jimmy
FanBoy
Póstar: 720
Skráði sig: Fös 29. Jan 2010 21:50
Reputation: 1
Staða: Ótengdur

Re: skjávarpa kaup

Pósturaf Jimmy » Fös 17. Des 2010 11:07

Hvar er hægt að fá tjöld og perur í varpa hérna heima? t.d. þennan epson 8350 af buy.is


~


AntiTrust
Stjórnandi
Póstar: 6379
Skráði sig: Þri 19. Ágú 2008 20:58
Reputation: 174
Staða: Ótengdur

Re: skjávarpa kaup

Pósturaf AntiTrust » Fös 17. Des 2010 11:22

Jimmy skrifaði:Hvar er hægt að fá tjöld og perur í varpa hérna heima? t.d. þennan epson 8350 af buy.is


Kjaran (kjaran.is) og Perur.is eiga slatta af varpaperum á lager, og geta pantað eftir séróskum. Annars er hægt að fá tjöld í flestum stórum tölvuverslunum og umboðum.

Svo er líka hægt að sletta "varpamálningu" á vegginn ef menn eru ekki tilbúnir að spreða í HQ tjald strax, geta kostað sitt.




Tesli
spjallið.is
Póstar: 475
Skráði sig: Fim 13. Feb 2003 14:37
Reputation: 29
Staða: Ótengdur

Re: skjávarpa kaup

Pósturaf Tesli » Fös 17. Des 2010 13:55

Það er ótrúlega lítill munur á tjaldi og hvítum möttum vegg. Þú þarft að kaupa mjög dýrt tjald til að sjá mun. Ég keypti mér 30 þús tjald sem er núna upp á háalofti því veggurinn er skárri #-o (btw til sölu ef einhver vill ;) )
1700 Lumens í HD20 er of bjartur í litla dimma stofu, ég þurfti að lækka birtustigið niður í eco mode (1300 Lumens) til að fá ásættanlega birtu.
DLP vs 3LCD er ekki eins mikið mál og sumir vilja meina, litahjóla hraðinn í fyrstu DLP vörpunum var það hægur að margir sáu regnbogasyndrome-ið og fengu sumir ógleðistilfinningu, í nýju DLP vörpunum þá skiptir þetta mjög litlu máli því það er mikið meiri hraði í þeim.
Það er til dæmis 4x litahjól í mínum HD20 og enginn hefur kvartað hingað til.



Skjámynd

mind
1+1=10
Póstar: 1123
Skráði sig: Fim 12. Des 2002 09:21
Reputation: 31
Staða: Ótengdur

Re: skjávarpa kaup

Pósturaf mind » Fös 17. Des 2010 17:10

laemingi skrifaði:Það er ótrúlega lítill munur á tjaldi og hvítum möttum vegg. Þú þarft að kaupa mjög dýrt tjald til að sjá mun. Ég keypti mér 30 þús tjald sem er núna upp á háalofti því veggurinn er skárri #-o (btw til sölu ef einhver vill ;) )
1700 Lumens í HD20 er of bjartur í litla dimma stofu, ég þurfti að lækka birtustigið niður í eco mode (1300 Lumens) til að fá ásættanlega birtu.
DLP vs 3LCD er ekki eins mikið mál og sumir vilja meina, litahjóla hraðinn í fyrstu DLP vörpunum var það hægur að margir sáu regnbogasyndrome-ið og fengu sumir ógleðistilfinningu, í nýju DLP vörpunum þá skiptir þetta mjög litlu máli því það er mikið meiri hraði í þeim.
Það er til dæmis 4x litahjól í mínum HD20 og enginn hefur kvartað hingað til.

Og það skiptir engu máli hvernig dekk þú kaupir á bílinn þinn , þau eru bara gúmmi. Og með bensín, þú getur vatnsblandað það og þá drýgjist það og endist lengur, þannig nær fólk góðum kílómetrajfölda per líter.... ég á ekki orð.

Það skiptir máli hvort þú ert með tjald eða vegg! Ef þú ætlar að nota vegginn mundu þá að æskilegt er að mála hann með málningu með réttu gljástigi og þú gætir viljað íhuga mála rammann líka.

Það er munur á DLP og LCD.
http://www.projectorcentral.com/lcd_dlp_comparison.htm




Tesli
spjallið.is
Póstar: 475
Skráði sig: Fim 13. Feb 2003 14:37
Reputation: 29
Staða: Ótengdur

Re: skjávarpa kaup

Pósturaf Tesli » Fös 17. Des 2010 17:32

mind skrifaði:
laemingi skrifaði:Það er ótrúlega lítill munur á tjaldi og hvítum möttum vegg. Þú þarft að kaupa mjög dýrt tjald til að sjá mun. Ég keypti mér 30 þús tjald sem er núna upp á háalofti því veggurinn er skárri #-o (btw til sölu ef einhver vill ;) )
1700 Lumens í HD20 er of bjartur í litla dimma stofu, ég þurfti að lækka birtustigið niður í eco mode (1300 Lumens) til að fá ásættanlega birtu.
DLP vs 3LCD er ekki eins mikið mál og sumir vilja meina, litahjóla hraðinn í fyrstu DLP vörpunum var það hægur að margir sáu regnbogasyndrome-ið og fengu sumir ógleðistilfinningu, í nýju DLP vörpunum þá skiptir þetta mjög litlu máli því það er mikið meiri hraði í þeim.
Það er til dæmis 4x litahjól í mínum HD20 og enginn hefur kvartað hingað til.

Og það skiptir engu máli hvernig dekk þú kaupir á bílinn þinn , þau eru bara gúmmi. Og með bensín, þú getur vatnsblandað það og þá drýgjist það og endist lengur, þannig nær fólk góðum kílómetrajfölda per líter.... ég á ekki orð.

Það skiptir máli hvort þú ert með tjald eða vegg! Ef þú ætlar að nota vegginn mundu þá að æskilegt er að mála hann með málningu með réttu gljástigi og þú gætir viljað íhuga mála rammann líka.

Það er munur á DLP og LCD.
http://www.projectorcentral.com/lcd_dlp_comparison.htm

Léleg líking hjá þér þar sem dekkin eyðast með tíma og vatnsblandað bensín wtf?
Eina sem ég var að benda á er að það er það lítill munur á milli þess að varpa á vegg og tjald að menn ættu að hugsa sig tvisvar um áður en þeir eyða 100.000kr í gott 100" tjald. Ódýr tjöld eru ekki sjáanlega betri en veggur málaður með réttri málningu.
Auðvitað er munur á DLP og LCD, döhh #-o ... Það var mikill munur, en ekki í nýlegum skjávörpum. Þú ert bytheway með grein sem er 1,5 ára gömul, lestu þér aðeins betur til.




IL2
Tölvutryllir
Póstar: 665
Skráði sig: Sun 06. Feb 2005 17:56
Reputation: 7
Staða: Ótengdur

Re: skjávarpa kaup

Pósturaf IL2 » Fös 17. Des 2010 18:41

Fer þetta ekki líka eftir því hvað veggurinn er sléttur? Þá á ég við pússinguna.



Skjámynd

snaeji
Tölvutryllir
Póstar: 614
Skráði sig: Fös 05. Mar 2010 01:39
Reputation: 27
Staða: Ótengdur

Re: skjávarpa kaup

Pósturaf snaeji » Lau 18. Des 2010 22:03

Er að leita mér að skjávarpamálningu... eh hugmynd hvar hún finnst hérlendis ?



Skjámynd

hagur
Besserwisser
Póstar: 3152
Skráði sig: Mið 17. Des 2003 16:11
Reputation: 463
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: skjávarpa kaup

Pósturaf hagur » Lau 18. Des 2010 22:47

snaeji skrifaði:Er að leita mér að skjávarpamálningu... eh hugmynd hvar hún finnst hérlendis ?


100% viss um að hún fáist hvergi, því miður. Correct me if I'm wrong.




AntiTrust
Stjórnandi
Póstar: 6379
Skráði sig: Þri 19. Ágú 2008 20:58
Reputation: 174
Staða: Ótengdur

Re: skjávarpa kaup

Pósturaf AntiTrust » Lau 18. Des 2010 22:51

hagur skrifaði:
snaeji skrifaði:Er að leita mér að skjávarpamálningu... eh hugmynd hvar hún finnst hérlendis ?


100% viss um að hún fáist hvergi, því miður. Correct me if I'm wrong.


Tek undir þetta, ég fann ekkert fyrirtæki sem gat selt mér sérstaka varpamálningu. Endaði með því að pússa vegginn vel og mála með lágu gljástigi, nánast mött.



Skjámynd

hagur
Besserwisser
Póstar: 3152
Skráði sig: Mið 17. Des 2003 16:11
Reputation: 463
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: skjávarpa kaup

Pósturaf hagur » Sun 19. Des 2010 21:28

Rakst á þetta fyrir algjöra tilviljun:

http://er.is/messageboard/messageboard. ... tiseType=0



Skjámynd

snaeji
Tölvutryllir
Póstar: 614
Skráði sig: Fös 05. Mar 2010 01:39
Reputation: 27
Staða: Ótengdur

Re: skjávarpa kaup

Pósturaf snaeji » Mán 20. Des 2010 01:39

Haha snilld getur ekki ýmindað þér hvað þessi linkur gladdi mig... Þakka kærlega ;)