Eftir ítrekaðar tilraunir við að restora spjallið þá gáfumst við upp og höfðum samband við 1984.is og þeir gerðu full system restore.
Backup kerfið þeirra er það fullkomið að hægt var að velja um daglegt backup 25 daga aftur í tímann!
Við báðum um það nýjasta og er það síðan hálf sex í morgun, eða allaveganna eru síðustu póstarnir síðan þá.
Þannig að það eina sem tapaðist voru 5 þræðir og 56 bréf og einn nýr notandi og stolt mitt.
Það sem gerðist var að snillingurinn ég..."hóst"...fór að fikta í því sem ég átti ekkert að vera fikta í

Ætlaði að vera sniðugur og setja upp jólaþema, það virkaði ekki betur en svo að allt heila draslið fór í fokk, beond repair.
Held ég láti allar svona æfingar í friði héðan í frá og fái í það einhverja sem vita hvað þeir eru að gera.
Ég vil þakka ykkur fyrir þolinmæðina og sérstaklega vil ég þakka 1984.is fyrir að bregðast svona fljótt við og keyra upp nýjan gagnagrunn frá backupi og bjarga jólunum
