icup skrifaði:Here is a clue. Gáið hvort fólk hefur tryggingu/ábyrgð áður en þið snertið eithvað. Þetta er eitt af því sem fólk áttar sig ekki á. Fólk er fífl, ALLIR ..
Svona komment pirra mig, þú bara afsakar - sýnir hversu brenglaður hugsunarháttur og væntingar notenda til fyrirtækja er oft. Ábyrgð og trygging heyrir ekki undir sama fyrirtækið. Tölvufyrirtæki sjá á sölunótu eða raðnúmeri hvort að vél sé í ábyrgð. Tryggingar eru ekki partur af því kerfi, enda bara skráð hjá söluaðila, ekki umboðsaðila - sem í þessu tilfelli eru tvö algjörlega ótengd fyrirtæki. Afhverju í fjandanum á fyrirtækið að vera að sjá um að kanna slíkt? Þetta er bara enganvegin í hlutverkahring fyrirtækja, að kanna hvaða tryggingarleiðir ákveðin persóna sé í, nema fyrirtækið sé sérstaklega beðið um slíkt.
Þetta eru hennar mistök frá A-Ö. Hún var greinilega í þeim skilningi, eins og kemur fram í viðtalinu, að vélin væri ennþá tryggð hjá Elko, og segir það væntanlega við starfsmenn Nördans þegar hún kemur með vélina þangað. ALLIR með viti hefðu hringt í þá verslun sem þeir versluðu búnaðinn af og athugað fyrst hvort hún væri með aukatryggingu og hvort ábyrgðin væri ennþá í gildi. Ég get ekki betur séð en að umrædd stelpa sé ekki einu sinni með það á hreinu hver munurinn á tryggingu og ábyrgð sé - sem gæti útskýrt margt.
Tæknifyrirtæki gera nógu mikið ráð fyrir því að viðskiptavinir séu kunnáttulitlir fyrir og útskýra oftast hluti eftir því, svo það bætist nú ekki ofan á það að þurfa að fara að hugsa fyrir fullorðið fólk eins og um leikskólabörn sé að ræða.
Heimskt/kærulaust fólk verður bara að díla við þær afleiðingar að vera slíkt.
benzmann skrifaði:Nördinn, er það ekki gaurinn sem var með BMI tölvulausnir á sínum tíma, sem var á suðurlandsbrautinni, sá um viðgerðir fyrir BT á Medion tölvum og allt það, sem fór svo á hausinn.
Nei, eigandi Nördans í dag er fyrrum starfsmaður Tæknivals. Nördinn varð til löngu áður en BMI fóru á hausinn, en var undir öðru nafni þá.