




SolidFeather skrifaði:Vá, scooby er án efa kjánalegasti gaur sem ég veit um og mér myndi ekki detta það í hug að fara eftir ráðum frá honum.
daniellos333 skrifaði:það eru til 2 tegundir af hamingju, að vera fit og fá að taka í gellur hægri vinstri, eða rotna í sínum eigin þæginleika heima með kók í annari og langloku í hinni, fer bara eftir manneskjunni hvort passar betur, veldu bara annaðhvort, bæði jafn gott að mínu mati
ég er svosem með svo god tier metabolism og líkama þannig að ég get upplifað báðar tegundirnar
Danni V8 skrifaði:Ég var að koma af djamminu, rétt tæpur líter af vodka, rúmlega tveir af sprite, fullt af snakki og ruslfæði. kom heim með doritos cool american, kók og lakkgrís. Er ég að fara að deyja úr kransæðastíflu á morgun eða hvað? Skrifa samt nokkuð vel miðað við ástand
AntiTrust skrifaði:Heilbrigt líferni vs. óheilbrigt til lengri tíma kemur nánast alltaf niður á líftíma. Sumum er sama hvort þeir lifi til 75 eða 85, en spurningin mín er alltaf "Hvernig langar þér að líta út og hvernig langar þér að líða þangað til þú drepst?"
AntiTrust skrifaði:Hvort að ég er bara breiður gaur með smá til að klípa í eða helköttaður með sixpack veltur aðallega á matarræðinu mínu meðfram lyftingunum.
það eru til 2 tegundir af hamingju, að vera fit og fá að taka í gellur hægri vinstri, eða rotna í sínum eigin þæginleika heima með kók í annari og langloku í hinni
AntiTrust skrifaði:Þegar ég set þessa spurningu fram, þá set ég hana ekki fram með þeim tón að það sé bara eitt rétt svar. Þetta er bara spurning um það hvernig lífstíl fólk tileinkar sér. Ég byrjaði fyrir nokkrum árum að pæla lauslega í því hvað ég er að éta, og í dag er það orðið þannig að ég get talið það fram á blaði um kvöldið hvað ég er búinn að taka inn ca margar kcal yfir daginn og hlutfallslega úr hvaða fæðuflokkum þessar kcal komu. Gerist bara automatískt.
Talandi um hamborgara og nammi, þá eru þetta líka hlutir sem ég leyfi mér nema ég sé í alvarlegum fituskurði, eins og þessa dagana. Það er mjög mikilvægt að taka high-kcal inntake daga ef maður fer venjulega í gegnum daginn með lægri kcal inntöku en brennslu, sem ég geri alla hina 6 daga vikunnar. Trikkið við að taka "nammidag" er að láta það bara endast á laugardeginum, og auðvitað gæta sér hófs. Þetta er atriðið sem flestir sem ég hef "sett" í átak og hjálpað, að missa sig frá föstudagskvöldi til sunnudagskvölds - og það er lítið mál að skemma allt sem gert var í vikunni með einni subbulegri helgi.
Sem dæmi fórum við í gær út að borða, skelltum okkur á Red Chili. Ég endaði með að fá mér kjúklingasalatið (sem var btw með betri mat sem ég hef fengið í langan tíma) á meðan félagi minn fékk sér 400Gr hamborgara og franskar. Held að það þurfi ekkert að diskútera það neitt hvor okkar leið betur eftirá (þótt ég hafi nú reyndar verið vel saddur) eða hver var með meira samviskubit daginn eftir
Bara spurning um val. Ég get verið í 80% toppformi með því að taka matarræðið semi-sloppy með æfingum. Þessi 20% sem maður þarf svo insane mikið að leggja á sig eru bara svo virði fyrir mig. Veit þetta bara afþví að ég hef verið báðum megin við línuna á e-rjum tímapunkti. Þú segir að þú fáir þér hamborgara, og nammi þegar þú vilt. Allt í góðu með það. Munurinn á mér og þér er sá að þegar ég fer á veitingastað horfi ég ekki á hamborgara eða franskar á matseðlinum, þetta er bara ekki í boði. Sömuleiðis þegar ég fer í búðir, þá eru nammideildirnar ekki lengur partur af rútínunni, og það besta er.. Maður saknar þess ekki í eina mínútu.
Pointið mitt er samt, það er hægt að vera helköttaður, líða viðbjóðslega vel með líkama og "sál" þegar matarræðið og æfingar eru orðin hluti af deginum hjá þér, og borða virkilega góðan mat og narta í nammi með.
Svo eru auðvitað aðrir sem geta lifað með hamborgurum og ruslfæði og gosi, sígarettum, áfengi og lítilli hreyfingu og þokkalega sáttir með lífið bara. Ég hef bara aldrei getað verið partur af þeim hóp
Talandi um.. Nóg tal - alltof seinn á sunnudagscardioæfinguna mína
vesley skrifaði:SolidFeather skrifaði:Vá, scooby er án efa kjánalegasti gaur sem ég veit um og mér myndi ekki detta það í hug að fara eftir ráðum frá honum.
Borða ávexti, baunir, grænmeti, próteinríka fæðu, og hreyfa þig? hann er svona í gróflega að segja það .