Fyrsta tölvan sem ég komst í tæri við var Hyundai borðvél í kringum '95. Pentium örgjörvi, 300mb harður diskur og sitthvað fleira. Þessu fylgdi að sjálfsögðu 28.8K tenging og Windows 95. 15" CRT.
Tölva nr 2 var Compaq Presario vél uþb '98. Man ekki nákvæmlega hvað var í henni en rámar í að það hafi verið Pentium 2-3 og 20GB diskur. Voða venjuleg borðvél. 128.8K ISDN. Windows 98. 17" CRT.
Tölva nr 3 var fyrsta alvöru leikjatölvan, '00. Pentium 4 1.8GHz, GeForce MX400 og 512MB DDR minni og 120GB diskur. ADSL 256K. Þessi vél gerði lítið annað en að keyra CS. Windows 2000. 17" CRT.
Tölva nr 4, uþb '04. Innihélt Pentium 4 3.0 GHz, GeForce 6800GT "Golden Sample" og 200GB disk. Skjákortið í þessari drapst ekkert alltof löngu síðar en þá var Gainward farið á hausinn og því gat ég ekki sent kortið í RMA. Endaði á því að nota MX400 kortið þar til næsta tölva var keypt. ADSL 512K. Windows XP. 19" Alvöru, kolsvartur Dell CRT.. þið munið eftir honum.

Tölva nr 5, sem ég er að nota núna, var keypt '07. Core 2 Duo E6750, GeForce 8800GTS og 2GB DDR2 og 500GB diskur. ADSL 12MBit. Windows XP og síðar 7. Samsung 226BW 22" og síðar Samsung 2443BW 24".
Fyndið að líta til baka og sjá hversu hratt þetta hefur þróast á aðeins 15 árum.