3.14KA skrifaði:Tiesto skrifaði:Hamborgarafabrikkan
/thread
Neee....
Veit eiginlega ekki hvað þeir eru að reyna með því að hafa hamborgarana ferkantaða :S Virðist vera svo gervilegt einhvernveginn.
Hamborgarabúlla Tómasar er best. Það sem ég elska við búlluna er hvað hún er ekki að reyna að vera neitt sem hún er ekki. Ég fór þangað um daginn og á meðan ég var að bíða þá kíkti ég í mad magazine frá tíunda áratugnum og það voru teiknimyndir í gangi í sjónvarpinu. Þjónustan er einnig til fyrirmyndar og andrúmsloftið þar inni er mjög þægilegt og afslappað.
Þú áttar þig á því að allt sem þú sérð á Hamborgarabúllunni er copy/paste frá öðrum stað? Þeir segja það meira segja sjálfir, þeas. ef þú spyrð þá að fyrra bragði.
Þetta er beint copy frá staðnum "Burger Joint" í New York sem er á La Meridian hótelinu (lúxus-hótel) rétt hjá Times Square, er þarna falinn á bakvið risastór gluggatjöld og ekkert merktur. Getið googlað þetta betur ef þið viljið, staðurinn varð mjög frægur eftir það birtist grein um hann í new york times 2007 held ég en hann auglýsir sig ekki neitt. Ég fór á þennan stað núna fyrir 4 mánuðum í New York (og vissi þá ekki þetta væri fyrirmyndin af búllunni) og fékk alveg virkilega mikið sjokk þegar ég labbaði þarna inn, þetta var alveg eins og að labba inn á tomma hérna heima.
Allt frá hvað er á hamborgurunum (margar sósur), hvernig brauðið er, hvernig kjötið er eldað/grillað, stærðin, risa "buff-tómaturinn", útlitið á afgreiðslu borðinu, matseðillinn, mjög mikið/allt handskrifað, gamlar dósir, krukkur, víranet.. Held you get the point, þetta var ótrúlegt að labba þarna inn og vera bara mættur á búlluna..
Enda þegar ég kom heim fór ég að spyrjast fyrir og eins og hlaut að vera þá ákvað tommi að taka þessa old-school, friendly hugmynd og láta reyna á hana hérna á Íslandi. Hvort staðurinn úti viti það er staður sem er direct copy af þeim hérna heima er hinsvegar annað mál

En persónulega finnst mér hamborgararnir á tomma oft vera svoldið sloppy/blautir. Margar sósur, stór buff-tómator þannig þetta á það til að verða svoldið já... Annars eru Tommi & Hamborgarafabrikkan með lang besta kjöt sem þú getur fengið á borgara hérna. Finnst mér Hamborgafabrikkan þó vera al-besti staður sem þú getur farið á, ekki of dýrt heldur (rétt svo ódýrara held ég en Tommi meira segja?)