ATH: Einungis er leyfð sala á tölvum og tölvutengdum búnaði. VARÚÐ: Verðlöggur eru leyfðar með þeim takmörkunum að ýtrustu kurteysi er krafist af þeim.
Eins og titillinn ber með sér er 30" Dell skjár til sölu. rúmlega 2 ára keyptur í EJS. Upplausn 2560x1600, 2 DVI tengi. 3007WFPt. Engin skipti takk fyrir. Þakka fyrir sýnda áhuga og óska nýjum eiganda til hamingju
Síðast breytt af Pesinn á Fös 15. Okt 2010 12:45, breytt samtals 3 sinnum.
Ég er með 24" heima og 21" í vinnunni. Ég verð að segja að mér finnst betra að vinna á 21" skjáinn í vinnunni. Ég gæti aldrei unnið á 30" skjá, alltof stórt, augun og hugurinn myndi bara ekki ráða við það. Kannski væri það í lagi ef skjárinn er notaður fyrir afmarkað hlutverk, en ekki sem "daily" skjár.
Fer eftir hvað þú ert að vinna að, eða hvernig þú vinnur. T.d. mörg skjöl sem þú vilt hafa uppi á sama tíma. Horfir á myndbönd á meðan þú vinnur, þá er 30" nice
"Knowledge is knowing that a tomato is a fruit,
wisdom is knowing not to put one in a fruit salad."
ManiO skrifaði:Fer eftir hvað þú ert að vinna að, eða hvernig þú vinnur. T.d. mörg skjöl sem þú vilt hafa uppi á sama tíma. Horfir á myndbönd á meðan þú vinnur, þá er 30" nice
Ég á svona skjá, þetta er bara algjör f**king snilld, besta fjárfesting sem ég hef gert í tölvubúnaði. Þetta er reyndar hálfgerð "vanilla" útgáfa, það er bara hægt að tengja hann með dual-link dvi tengi, ekkert hdmi, component, displayport eða annað fínerí... Bara usb hub og memory card.
Ég segi stunum að ég eigi flottasta minniskortalesara ever, hann er með innbyggðum 30" skjá
Borgaði 100þ kall fyrir hann ársgamlan, fyrir ca. 1 1/2 ári síðan...