Klukkunni skeikar um næstum 2 klst. þegar klukkan er tvö að nóttu hjá okkur þá ætti hún í raun að vera 12 á miðnætti.
Hugsa að þetta sé ástæðan fyrir því að maður drattast aldrei í rúmið fyrr en hálftvö á nóttunni.
Svo finnst mér alltaf jafn spes þegar talað er um Ísland og hin norðurlöndin.
Sjáið hvað við erum langt frá norðurlöndunum, einnig að Ísland skuli tilheyra evrópu, af hverju ekki ameríku?
Rúmlega helmingurinn af flekanum okkar er ameríkuflekinn.
