Anywho.. núna langar mig pínulítið að prufa eitthvern flottan "Smartphone", en þar sem símafyrirtækin leyfa fólki ekki að prufa þá og finnst mér að lesa "review" ekki alveg nóg, ætla ég að spyrja uppáhalds nördlingana mína.
Hef alltaf verið hrifinn af iPhone þar sem snertiskjárinn er gott sem fullkominn, þæginlegt viðmót, en er ekki að fara borga 160.000 fyrir farsíma.
Hef mikið verið að skoða HTC símana, eins og Desire, Hero og Legend, hvernig eru þeir að standa sig, hvernig er snertiskjárinn? Sambærilegur iPhone? Þæginlegt viðmót? Góð apps?
Hvaða "Smartphone" myndi þú fá þér ef þú ætlar að velja nákvæmlega núna? Ef iPhone er valið, nefnið þá líka eitthvern einn aukalega.
