Harkee skrifaði:jo, gætu þið útskýrt fyrir mig muninn á IPS, S-IPS, PVA og TN svona eins og ég væri 5 ára

Einfaldasta skýringin er eitthvað í þessa átt.....
TN eru ódýrastir og notaðir í flestum skjám í dag sem þú kaupir frá Acer, BenQ, Dell, Samsung osfv. Þeir eru 6 bita og geta því tæknilega séð ekki sýnt fulla 16.7 milljónir lita, heldur aðeins 262,144 rétta liti. Hinir eru gerðir með "dithering". Það eru reyndar til 8 bita TN panelar en sjaldgæft.
Næst kemur MVA (Multi-Domain Vertical Alignment) og PVA (Patterned Vertical Alignment). Þeir eru 8 bita og geta því sýnt sanna 16.7 milljón liti. Þeir eru með 256 tóna í hverjum af þremur aðal litunum og því verður 256^3 = 16.7 milljónir uþb. Þeir hafa fleiri og nákvæmari liti, betri contrast og betra sjónsvið (viewing angle). Þó ekki eins gott og S-IPS. Þeir eru líka með verri response tíma en TN.
IPS (In Plane Switching) er svo mest notað í mynd og grafíska vinnslu skjái. Nýjasta H-IPS og S-IPS eru með bestu skjám í dag hvað varðar liti, contrast, hraða og sjónsvið. Þeir kosta líka mikið og sérstaklega stærri en 24".
Svo ef þú vilt endilega kynna þér meira þá lestu þessa síðu
http://www.tftcentral.co.uk/specs.htm