Ég ætla ekki að taka undir allt sem biturk sagði, en margt.
Steve Jobs/Apple eiga sér mörg ljót leyndarmál sem hafa poppað upp reglulega og oftast skotin niður um leið. Góð grein um þetta nýlega á cracked.
Apple kemur fram við sína eigin starfsmenn oft hræðilega, eftirlit með starfsmönnum langt framyfir eðlileg mörk, reglur sem starfsmönnum eru sett svo fáránlegar sumar að maður trúir þeim varla, og hjálpi þeim starfsmanni sem verður e-ð á í vinnu sinni hjá Apple.
Verðið. Jú, þetta eru vélar í háum gæðaflokk. En sambærilegur vélbúnaður í sambærilega háum gæðaflokk er ekki svona dýr. Mac vélar eru oft mjög dýrar, að verðið er úr samhengi m.v. íhluti. Mér er alveg sama þótt að OS X vinni öðruvísi með hardware-ið og þurfi ekki eins öfluga íhluti til að gera þessa eða þessa hluti, Mac stimpillinn er oft of dýr m.v. hvað maður fær.
MightyMouse kommentið elska ég, keypti svona handa konunni og djöfuls viðbjóður sem hún er

En að sjálfsögðu smekksatriði, og tengist fyrirtækinu ekki neitt frekar en að óþæginlegt lyklaborð þýðir ekki að Logitech sé rusl, heldur bara að þessi vara hentar mér ekki.
Það að allt sé sambyggt fer auðvitað eftir týpum, en jú þetta fyrir mér er meira en lítið stórt downside þegar kemur að iMac vélunum. Á móti kemur samt sem áður að bilanatíðni er með þeim lægri sem fyrirfinnast, svo þetta er vega/meta mál. Stærsti gallinn við iMac er að sjálfsögðu hvað þú ert með takmarkaða uppfærslumöguleika.
Notendurnir eru því miður stærsti lösturinn af minni reynslu við Mac. Hrokinn og sjálfsumgleðin sem fylgir Mac notendum OFT, EKKI ALLTAF er slík að ég fæ grænar bólur, magaeitrun og óreglulegan hjartslátt. Fólk færist oft sjálfkrafa á hærri stall við það að (og nú kvóta ég í sjálfan mig þar sem ég hef margoft sagt þessa línu) kunna og geta notað stýrikerfi sem meðalgreindur simpansi gæti notað. Það er að sjálfsögðu í mörgum tilfellum jú kostur, segir sig sjálft.
Mæli samt með því að menn sem eru avid Apple lovers kynni sér sögu Apple hvað varðar markaðssvik, framkomu við eigin starfsmenn og flr. mál sem komið hafa upp í gegnum tíðina, ekki svo fá núna nýlega. Það er ekki að ástæðulausu að sumum okkar sé illa við Apple, það er ekki bara "afþví að".