einsii skrifaði:intenz skrifaði:Oak skrifaði:http://www.youtube.com/watch?v=tuVyExV8SYo
Miðað við þetta video þá færi Nexus One geðveikt í taugarnar á mér...
Af hverju færi hann í taugarnar á þér? Og svo er þetta myndband gamalt, það er komin uppfærsla frá þessu og nú er multi-touch (pinch-to-zoom) mögulegt.
En ef þú værir til í að fara út í hlutina sem myndu fara í taugarnar á þér skal ég með glöðu geði reyna að svara þér.
einsii skrifaði:Ég held að Nexus far í taugarnar á fólki þegar "nýja dótið" sjarminn er farinn af honum.. Allar aðgerðir í iPhone eru bara svo sjálfsagðar og ekkert sem pirrar mann við notkun..
Þetta væl um að hann sé svo læstur, hvað er raunverulega vandamálið við það ???
Ég bara skil ekkert hvað þú ert að tala um.
Ég tek það fram að ég hef ekki notað Nexusinn sjálfur en fór að kynna mér hann og skoða video af honum í gegnum youtube í framhaldi af að hafa lesið þennann þráð. Fyrst var það auðvitað þetta með Pinch to zoom, en eins og þú segir er víst búið að laga það.
En það sem ég sé helst við hann eru óteljandi menu hér og þar og þessi takkaröð þarna neðst á skjánum með lítinn "Home" takka inn á milli sem virðist ekki svara nema menn vandi sig að íta á hann.
Ég held bara að einfaldleikinn sem var hafður að leiðarljósi við hönnun á á iPhone sé til lengri tíma rétta leiðin við hönnun á tæki eins og síma sem maður notar allann daginn og í einföld verk einsog að hringja, senda skilaboð eða svara pósti. Þetta á maður að geta gert án þess að velta tækinu of mikið fyrir sér

En ég vil líka ítreka spurninguna um hvað sé svo slæmt við að iPhone sé svona lokaður ?
Óteljandi menu hér og þar?

Ég skil ekki alveg hvað þú ert að fara.
En með takkaröðina sem þú talar um neðst á skjánum, þá er snertipunkturinn vitlaust staðsettur þar þannig það virkar oft ekki að ýta beint á takkana. Þess vegna lærir maður það þegar maður er byrjaður að nota símann að ýta aðeins fyrir ofan takkana, og þá er ekkert vandamál. Ég skil samt alveg áhyggjur þínar. Ég hafði svolitlar áhyggjur af þessu fyrst áður en ég fékk símann í hendurnar, en nú í dag eftir að hann er búinn að vera í minni eigu og í daglegri notkun í 2 mánuði hugsa ég ekki einu sinni um þetta.