Þetta er bara dæmigert "tollaflokkabull".
Ef þetta er "að grunni til" símtæki þá er það ekki tollað (þetta telst reyndar sími svo að ekki hafa áhyggjur af þessu

).
Skiptir engu máli hvað annað er í "tækinu".
Gott dæmi um hvað "skattmann" er vitlaus er vitlaust er MP3 spilarar og símsvarar.
Símsvarar hafa alltaf verið "lúxustollaðir" sem hljóðupptökutæki á meðan sími með símsvara var ekki tollaður.
Þetta leiddi til þess að símsvarar urðu aldrei vinsælir á Íslandi enda hefði varla nokkrum "heilvita manni" dottið í hug að kaupa sér símsvara á t.d. 10.000,- kr. þegar hann gat fengið sama símsvara innbyggðann í síma á kr. 8.000,-
Svo byrja menn á því að tolla iPod og aðra MP3 spilara ásamt því að setja skatt á óskrifaða geisladiska vegna "þjófnaðar á tónlist og hugbúnaði".
Af hverju "snillingarnir" settu þá ekki samskonar toll á USB lykla, harða diska og minniskort skil ég ekki (og e.t.v. ætti ég ekki að skrifa um það hérna

því að vegir "tollinnheimtumanna" eru órannsakanlegir - kannski þeir lesi þetta

, ADMIN kannski eyðir þessu bara út

).
En viti menn, ef símtæklið þitt er með innbyggðan MP3 spilara þá er ekkert tollað....
Hvað í andsk... er iPhone annað en handtölva með símamöguleika? Reyndar eru tölvur ekki tollflokkaðar en merkilegt að ríkið skyldi skattleggja þetta til helvítis eins og lenskan er þessa dagana
