Mr.Hafberg skrifaði:láta ykkur vita að móðurborðið og minnið kostaði 70 þegar eg fekk það, ekki vera að drulla yfir allar sölusíður ætti að banna ykkur sem eru að eyðileggja söluþræði með eitthverju bulli.
já en þú fékkst þetta fyrir rúmum tvem árum, þetta er svo gott sem úrelt í dag, plús að þú ert búinn að oc búnaðinn og þar með rýriru alveg svakalega verðgildið á hlutunum því ekki vitum við hversu fær þú ert í því og hvað þú smelltir miklum hita og annað þegar þú varst að þessu.
ég ætlaði ekki ða skrifa hjérna en þegar ég sá þetta hrokafulla svar frá þér gat ég ekki annað en lagt orð í belg
1. þú ert á vaktinni eins og þér var bent á og þetta er líklega eina internet sölusvæði landsins þar sem að það er bannað að svindla á fólki, ef þú ert ekki sáttur...þá farðu.
2. Ég er mjög virkur notandi á l2c, þegar é sá auglýsinguna þar þá hló ég, nei annars, ég táraðist af hlátri þegar ég sá verðlagninguna því hún var veruleikafyrrtari en að senda ísland í esb.
3. sú staðreind að þú hafir lokað á comment á l2c þegar menn bentu þér á að þetta væri fáránleg verðlagning segir margt, til dæmis það að þú getir ekki sætt þig við gagnrýni og það mikilvægasta...þú veist að þú ert að reina að svindla pening útúr fólki og telujr þetta sem "skemmd á söluauglýsingu" sem er eitthvað nýirði sem fór af stað fyrir rúmu ári síðann þegar menn eins og þú fóru að svindla meir á fólki í kreppunni og þoldu ekki að það var verið að reina að stöðva þá við þessa iðju. Því miður er l2c sölusvæðið búið að missa allan virðuleika eftir að það var bannað að reina að hindra fólk í svona rugli en sem betur fer verður það sennilega seint gert hér.
4.Ég væri vel til í þessa tölvu, enda er hún betri en mín og sérstaklega vil ég hrósa þér fyrir hvað hún er rosalega flott og þetta er vægast sagt geggjaður kassi og þessi vifta er snilld, mikið væri ég til í að eiga 50 þús fyrir henni.
5. núna hef ég rakið svarið mitt útí eitt, þér er velkomið að svara, koma með gild rök og rökræða á vinsamlegum og þroskuðum nótum, en skítkast, hótunum og nafnakalli tek ég ekki þátt í og kemur hvorugum okkar neitt lengra í lífinu.
6. þú hefur vel, sýndu sóma þinn í að setja verð á þessa tölvu sem er sanngjarnt bæði fyrir seljanda og kaupanda, sem væri á bilinu 40 - 65 þúsund krónur ef hverjum þú lendir á.
eða
vertu ennþá eins og þú ert, reindu að selja tölvuna (sem mun líklega ekki ganga upp á þessu verði og þú eiðir tímanum í talganslaus bump og missir álit sem söluaðili) og hafðu fé útúr grunlausum einstakling. þitt er valið.
eigðu góðann komandi mánuð
Gunnar