
málið er að ég er með Sony Ericsson K790A (ekki K790i eins og er seldur hérna).. ég keypti minn í Bandaríkjunum í fyrra
ef ég fer útaf Reykjavíkursvæðinu (nóg að fara t.d. út á Vellina í hfj) þá verður hann sambandslaus.. og núna var ég að flytja á Siglufjörð og þar er hann auðvitað sambandslaus.. hefur eitthver hérna lent í þessu og veit hvernig á að laga þetta? hefur alltaf látið svona síðan ég fékk símann.
p.s. hann er stilltur inn á Nova networkið og allt það (er í Nova) .. þetta var alveg eins þegar ég var í Vodafone.. datt alltaf út ef ég fór eikkað "í burtu" frá Reykjavíkursvæðinu.. er búinn að reyna að stilla hann inn á öll networkin sem eru á íslandi en ekkert virkar.