Ég er búinn að skoða þetta í nokkrar vikur og mín niðurstaða er Asus ul30jt eða Asus ul80jt.

Þær eru ekki enn komnar á markað en fyrri version heita ul30vt og ul80vt. Getur googlað þær og séð specs en jt tölvurnar verða með betri örgjörva (i7 samkvæmt CES 2010) og betra skjákorti og þar af leiðandi aðeins dýrari. Munurinn á þeim:
ul30jt: 13,3" skjár og ekkert geisladrif
ul80jt: 14" skjár og geisladrif
Annars er sama skjáupplausn (1366x768) og helstu specs ættu að vera þau sömu. Það er HDMI út og VGA á henni þannig að það er ekkert mál að fá betri upplausn fyrst þú ætlar að tengja hana við skjá.
Örgjörvinn er 1,3ghz en er yfirklukkaður í 1,7ghz þegar þú notar tölvuna í þyngri vinnslu eins og tölvuleiki. Auk þess er hægt með einum takka að switcha á milli skjákorta í henni til að spara batterý.
Kosturinn við þessar tölvur er að þær eru mjög litlar og nettar. Auk þess eru þær með nýjum ultra low voltage örgjörva og 8cell battery sem gefur 12 tíma rafhlöðuendingu. Það er samt talað um að batterýið endist í ca 6-7 tíma í videoglápi og 10 tíma í browse og skólavinnu á lágu birtustigi. Held það sé aldrei að fara að duga í 12 tíma

Þrátt fyrir að vera svona lítil þá runnar hún nýlegum leikjum frekar smooth. Hér er video af ul80vt að spila Modern Warfare 2 (ath þetta er gamla týpan!):
http://www.youtube.com/watch?v=qCYRO9MvAv0Gamla týpan kostaði eitthvað um 800-850 dollara og það er búist við að nýja fari eitthvað í kringum 1000 dollara þannig að það ætti að vera undir 200þús kr (kæmi samt ekki á óvart að það væri meira). Ekki slæmt fyrir þunna og létta tölvu með 10 tíma batterýi sem runnar nýlegum leikjum
