Oak skrifaði:ertu með diskinn sem þú ert að reyna að setja windowsið inná strax eftir dvd drifinu í boot order í bios ?
Já, ég hef líka prófað að hafa diskinn fyrst og kallað upp boot menu til að keyra setup en lendi í því sama.
Vectro skrifaði:Jumper á hörðum disk vitlaust stilltur.
Neibb, einhverra hluta vegna þá kemur diskurinn ekki inn ef ég hef jumper á Master en ef ég hef jumper ekki á neinu þá kemur hann inn. Er núna með diskinn einn á sér kapli sem er tengdur við IDE1 á móðurborðinu og skrifarinn er svo tengdur við IDE2. Var líka búinn að prófa allt með bæði tengt við einn kapal en þá voru jumpers líka vesen og allt virðist virka best án allra jumpers, það er eins og móðurborðið hati þá

Vectro skrifaði:Viltu ekki bara henda þessu borði, og þá lendirðu ekki í frekari vandræðum. Því klárlega er annaðhvort eitthvað að borðinu, eða öðrum ótengdum hlutum sem eru ekki vélrænir.
Kannski bara fá sér Mac?
HAHAHAHAHAHA!!!

Góður! En nei, vil ALLS EKKI henda þessu borði, ansi gott borð og er planið að bróðir minn geti notað það. Og nei, kem ekki nálægt Mac og vil ekki fara að breyta þessum þræði í einhverja umræðu um það

hehe

Vil bara leysa þetta vandamál sem fyrst, búið að vera gera mig geðveikann í viku

Annars ef það hjálpar eitthvað þá sá ég það þegar ég var að skoða diskinn áðan að í boot.ini byrjaði diskarunan á einhverju signature(blablabla)disk(1)... sem ég gúglaði og las að það tengdist eitthvað SCSI controller og að Windows þyrfti að nota þetta signature dæmi ef það gæti ekki talað almennilega við SCSI controller eða eitthvað í þá áttina, skil það ekki alveg.
Prófaði svo áðan að gera reset á BIOS og endurstillti svo allt saman þar en það lagar ekkert

Einhverjar hugmyndir?
Gigabyte GA-MA790FXT-UD5P, AMD Phenom II X4 955 @3.2Ghz, 2 x 4gb Corsair Vengeance DDR3 @1600mhz LP, EVGA Geforce GTX 760, Seagate Barracuda 500gb, 20x Sony DVDRW, TT Big Typhoon og 700W Tagan BZ allt í Cooler Master Stacker kassa með 55" Philips HDTV :]