tölvulistinn að skíta á sig

Allt utan efnis

Höfundur
biturk
Kóngur
Póstar: 4431
Skráði sig: Mið 01. Apr 2009 17:08
Reputation: 6
Staðsetning: Akureyri
Staða: Ótengdur

tölvulistinn að skíta á sig

Pósturaf biturk » Fös 29. Jan 2010 17:17

jæja, ég fór með flakkarann minn í viðgerð (höfum það alveg á hreinu að þetta er flakkaru númer 2 sem er að gefa sig frá þeim í tvem árum í fyrra skiptið fékk ég þennan í staðinn)

núna fór flakkarinn minn að láta eins og sá gamli byrjaði, ég set inn gögn, hann birtir þau ekki í sjónvarpinu og er farinn að vera hægur og asnalegur. hinn flakkarinn byrjaði nkl svona þar til hann fór að hætta að spila, gögn hurfu og hætti nánast alveg að virka.

ég fer með hann á þriðjudaginn í síðustu viku og segi þeim frá þessu þar sem hann er í ábyrgð ennþá og spyr hvort það sé eitthvað hægt að gera í þessu. þeir segja að hann sé í ábyrgð og þeir taki hann bara og skoði, en svona til öryggis þá spyr ég hvort það kosti nokkuð þar sem hann er í ábyrgðartíma ennþá og þá er mér svarað að miðað við lýsingar sé líklegt að stýribúnaðurinn í flakkaranum eða diskurinn sé bara að gefa sig og það muni ekki kosta neitt...þar sem hann er í ábyrgð og að hann verði bara skoðaður, tjekkað hvað sé að og gáð hvort það flokkist undir ábyrgð eða annað. og ég spyr náttúrulega hvort að þetta komi til með að kosta eitthvað og því er svarað neitandi og að ég fái hann aftur á miðvikudaginn í næstu viku (fyrir tveim dögum)

jæja í gær fer ég niðurettir og spyr um þetta og þá fæ ég svar um að þeir hafi ekkert gert í þessu ennþá og ég ætti bara að tjekka daginn eftir (í dag)

síðann fæ ég sms um að ég megi ná í tækið, ég verð nú aldreilis ánægður með að fá loksins myndirnar mínar aftur og geta farið að horfa á eitthvað og bruna niur í tölvulista.

þegar þangað er komið mætir mér einn sá aldónalegasti og ömurlegasti maður sem ég hef á ævi minni kynns (höfum það á hreinu að hann talaði eins og ég væri 70 kona sem kynni örugglega ekki einu sinni að nota mús) þeir segja að það sé í fínu lagi með allt og að ég hafi bara pottþétt klúðrað því að copy pasta gögnin og væri alveg öruggt að ég tæki hann bara alltag beint úr sambandi við usb tækið án þess að rejecta því.
ég bendi honum nú á að svo sé ekki því ég hef aldrei á ævinni tekið tæki þannig úr sambandi við tölvu, ég ejecta alltaf áður og fullvissa mig um að það sé horfið og slekk yfirleitt á honum líka áður en ég tek hann frá tölvu, einmitt til að koma íveg fyrir svona. Á þessari stundu er ég að verða frekar pirraður á manninum í ljósi þess hvernig hann kemur fram með hroka við mig þegar ég labbaði inn geðveikt hamingjusamur kurteis og almennilegur eins og ég hef án undantekninga alltaf komið fram við annað fólk. svo að ég segi honum að þetta sé bara einfaldlega rangt því þetta er eitthvað sem ég geti aldrei, þá segir hann mér að prófa að endurskýra möppurnar og copy pasta (já eins og það hafi ekki verið það fyrsta sem ég hafi prófað þegar gögnin komu ekki, alveg öruggt að ég plöggaði honum bara úr sambandi og beint til þeirra) og hann segir bara að þetta sé þa eina sem gæti verið að og það sé bara allt ílagi með hann og ég veðri bara að fara og prófa hann. (á þessum tímapunkti var ég búinn að missa allan húmor og vildi þá bara fá flakkarann minn aftur og fara heim og reina sjálfur að laga hann fyrst að þeir eru algerlega að skíta á sig)

en NEI, þá er mér tilkynnt að ég fái ekki flakkarann fyrr en ég er búinn að greiða 3000 króna skoðunargjald af því að þeir gátu ekki fundið neitt að honum, við þetta viðurkenni ég alveg að ég varð frekar pirraður og sagði honum nú að fyrir viku síðann rúmri hefði hann sjálfur sagt að þetta myndi ekki kosta neitt.. en nei þá allt íeinu segir hann að ég yrði að borga þetta því að þetta væri skoðunargjald fyrst að ég kom með hlut sem væri í lagi hjá þeim ( af hverju ætti ég að koma með hlut sem er í lagi og láta setja á verkstæði? eru margir þarna úti sem fynnst gaman að borga pening fyrir að láta aðra fitla við tækin sín) ég mótmælti þessu nú og ítrekaði við hann að mér hafi verið sagt að ég ætti ekki að borga neitt en hann stóð fastur á sínu og heimtar þennan pening fyrir eitthvað sem þeir gerðu ekkert í.

ég sagði honum að ég yrði þá bara að koma aftur og ná í hann seinna því ég hefði ekkert pening á mér og fór því ég var kominn á það stig sem ég kemst sjaldann eða nánast undantekningarlaus aldrei að ef hann hefði ekki verið í búð og með myndavél sem beindi á hann þá hefði ég dregið hann yfir borðið og slegið hrokann úr honum með þéttingsföstu bitchslappi.


ég er sosem ekki að væla hjérna, ekkert mál að borga þennan pening ef

A : þeir hefðu gert við flakkarann
B : þeir hefðu ekki logið að mér að þetta kostaði ekkert og er síðann rukkaður þegar ég kem að ná í hann fyrir að gera ekki neitt.

en ég spyr bara er eitthvert sem ég get snúið mér til að hvarta undann svona löguðu og hvern ætti ég að hafa samband við.

og meðann ég man, þá eftir þessa reinslu þá mæli ég eindregið með því að menn sniðgangi þetta skítacompany á akureyri og versli aldrei aftur við þessa hrokafullu svindlara.


en ég lærði allaveganna af þessu

aldrei að versla við þessa menn, héðann í frá mun ég eingöngu versla bið buy.is ef mér vantar eitthvað tölvutengt sem ég þarf að kaupa nýtt.


ef ég spyr spurninga vil ég fá það í þráðinn EKKI í pm!! pm með hótunum, svör við spurningum og fleiru eru án tafar birt í viðeigandi þráð.
Sýnum skynsemi og skrifum undir á móti esb tíma og peningasóun, farðu á www.skynsemi.is og skráðu þig!

Skjámynd

Gúrú
Bannaður
Póstar: 5677
Skráði sig: Fös 17. Mar 2006 23:08
Reputation: 1
Staðsetning: ;)
Staða: Ótengdur

Re: tölvulistinn að skíta á sig

Pósturaf Gúrú » Fös 29. Jan 2010 17:24

Step 1. Fara aftur heim
Step 2. Finna tjald
Step 3. Fara aftur í búðina
Step 4. Tjalda inní búðinni
Step 5. Play the waiting game.


Modus ponens

Skjámynd

Baldurmar
Geek
Póstar: 834
Skráði sig: Þri 20. Jún 2006 12:07
Reputation: 152
Staða: Ótengdur

Re: tölvulistinn að skíta á sig

Pósturaf Baldurmar » Fös 29. Jan 2010 17:36

biturk skrifaði:....borga pening fyrir að láta aðra fitla við tækin sín


Var ég sá eini sem að sá föstudags meininguna við þetta :lol: :lol:


Gigabyte X570 - Ryzen 5900 @ 4.5ghz all core - 5ghz single core - 64gb TridentZ 3400mhz - AMD 7900XTX

Skjámynd

Lallistori
Gúrú
Póstar: 577
Skráði sig: Þri 24. Mar 2009 22:13
Reputation: 21
Staða: Ótengdur

Re: tölvulistinn að skíta á sig

Pósturaf Lallistori » Fös 29. Jan 2010 17:44

Svona er bara tölvulistinn.. hef óþarfa oft lent í svipuðu rugli eftir að hafa verslað við þá.


Haf X - Corsair 750w - Ryzen 5 5600X - 32gb ddr4 3200mhz -Prime 550M-A - Samsung 1TB NVMe - Asus 3070 OC - 5TB HDD's

Skjámynd

einarhr
Vaktari
Póstar: 2070
Skráði sig: Þri 27. Maí 2008 10:12
Reputation: 306
Staðsetning: 110 Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: tölvulistinn að skíta á sig

Pósturaf einarhr » Fös 29. Jan 2010 18:20

Yfirleytt er það þannig hjá flestum tölvuverslunum og verkstæðum að það er allaf skoðunargjald ef ekkert finnst að tækinu. Þetta stendur yfirleytt á Viðgerðarbeiðninni og að sjálfsögðu á starfsmaður að segja frá því líka til að koma í veg fyrir svona vandmál.

Það sem þú þarft að gera er að Sanna fyrir þeim Bilunina, ef þeir geta ekki kallað fram þessa bilun og tækið virðist virka fullkomnlega hjá þeim þá rukkar Þjónustuaðilinn fyrir skoðunargjaldið. Þegar ég var Þjónustustjóri hjá Digital Task á sínum tíma þá var þetta mjög algengt en ég hamraði á því við starfsmennina í Mótökunni að taka það alltaf fram við Viðskiptavin að það sé skoðunarfgjald ef ekkert finnst að tækinu. Svo eru margir sem eru æfir yfir skoðunargjaldinu og kanski ekki allir sem skilja það að Tæknimaður var kanski með tækið á borðinu hjá sér í 0.5 til 1 klst og það þarf að borga honum laun. Svo má náttúrulega deila um upphæðina á skoðunargjaldinu og það misjaft á milli fyrirtækja.


Nota bene, ég er ekki að verja TL!!!

Og nota nota bene þá er ég hættur hjá Digital Task og vill ekkert með þá hafa að gera né heyra!!!


| Ryzen 7 5800X 32GB |RTX 3070Ti| Server i7 6700K 16GB |


svennnis
Ofur-Nörd
Póstar: 283
Skráði sig: Þri 05. Jan 2010 20:14
Reputation: 0
Staðsetning: á sporbraut sólar
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: tölvulistinn að skíta á sig

Pósturaf svennnis » Fös 29. Jan 2010 18:25

það gerðist mjög svipað hja vini minum ..
1.ekki góð þjónusta
2. erfit að fá ábyrð , ég átti harðan disk frá þeim og hann var gallaður og þeir sögðu að ég hefði verið með hann í of miklu riki , (2mánaðagamall
3. verkstæðið þarna er lika búið að skita uppá bak , vinur minn fór með vélina sina til að setja um styri kerfi (win7) , hann fékk vélina 4vikum seinna ,
4.það þarf að fara að láta þá gera eitthvað í þessu , þetta er ekki hægt


Antec P180EU |OCZ 700w| AMD 955 X4 3.2Ghz | XFX 5970 | Gigabyte 790FXTA-UD5 | GeIL Black Dragon DDR3 4x2=8GB | Tacens Gelus III Pro | SSD 128 GB | 500GB | 1000GB | 350GB |


Höfundur
biturk
Kóngur
Póstar: 4431
Skráði sig: Mið 01. Apr 2009 17:08
Reputation: 6
Staðsetning: Akureyri
Staða: Ótengdur

Re: tölvulistinn að skíta á sig

Pósturaf biturk » Fös 29. Jan 2010 18:38

einarhr skrifaði:Yfirleytt er það þannig hjá flestum tölvuverslunum og verkstæðum að það er allaf skoðunargjald ef ekkert finnst að tækinu. Þetta stendur yfirleytt á Viðgerðarbeiðninni og að sjálfsögðu á starfsmaður að segja frá því líka til að koma í veg fyrir svona vandmál.

Það sem þú þarft að gera er að Sanna fyrir þeim Bilunina, ef þeir geta ekki kallað fram þessa bilun og tækið virðist virka fullkomnlega hjá þeim þá rukkar Þjónustuaðilinn fyrir skoðunargjaldið. Þegar ég var Þjónustustjóri hjá Digital Task á sínum tíma þá var þetta mjög algengt en ég hamraði á því við starfsmennina í Mótökunni að taka það alltaf fram við Viðskiptavin að það sé skoðunarfgjald ef ekkert finnst að tækinu. Svo eru margir sem eru æfir yfir skoðunargjaldinu og kanski ekki allir sem skilja það að Tæknimaður var kanski með tækið á borðinu hjá sér í 0.5 til 1 klst og það þarf að borga honum laun. Svo má náttúrulega deila um upphæðina á skoðunargjaldinu og það misjaft á milli fyrirtækja.


Nota bene, ég er ekki að verja TL!!!

Og nota nota bene þá er ég hættur hjá Digital Task og vill ekkert með þá hafa að gera né heyra!!!



en ég meina hvernig á ég að sanna fyrir þeim bilunina? taka upp á video þegar ég set gögnin yfir fer með flakkarann í sjónvarpið mitt og gögnin birtast ekki þar?

er hægt að kvarta við neitendasamtök í svona því persónulega fynnst mér samt svona skoðunargjald fáránlegt því ég var ekki að koma með tækið bara til að láta þá horfa á það og fá að prófa, ég kom með það því það virkar ekki og fynnst bara klárlega ekki ásættanlegt að fá það til baka í sama ástandi nema 3000 krónum fátækari og ekki getað haft myndirnar mínar í rúma viku.

á ég virkilega að þurfa að bíða eftir að hann fari að tína myndunum mínum eins og hinn flakkarainn sem byrjaði með þetta sama rugl?

þetta er icy box sjónvarpsflakkari
Mynd


og ég fék hann þegar að þetta Mynd

hræ dó hjá mér jólin 2008

eitt ár í endingu þar til þeir byrja á svona rugli fynnst mér alveg hreint ekki ásættanlegt.


ef ég spyr spurninga vil ég fá það í þráðinn EKKI í pm!! pm með hótunum, svör við spurningum og fleiru eru án tafar birt í viðeigandi þráð.
Sýnum skynsemi og skrifum undir á móti esb tíma og peningasóun, farðu á www.skynsemi.is og skráðu þig!

Skjámynd

Danni V8
Of mikill frítími
Póstar: 1798
Skráði sig: Mán 23. Apr 2007 06:36
Reputation: 123
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: tölvulistinn að skíta á sig

Pósturaf Danni V8 » Fös 29. Jan 2010 18:54

Úff ég er einmitt nýlega að fara með Sennheiser heyrnatól í viðgerð hjá TL eftir að það fóru að heyrast skruðningar öðrum megin.

Mér var einmitt ekkert sagt um að ef ekkert finnst að þeim þyrfti ég að borga og ég fékk enga viðgerðarbeiðni, starfsmaðurinn bara kíkti á nótuna, fletti upp kennitölunni, sá að þau eru ennþá í ábyrgð, tók þau og sagðist ætla að hringja.

Er að vísu sjálfur að leiðinni þangað á næstunni þar sem það eru liðnar 2 vikur og ekkert hefur heyrst enn.


Asus ROG Strix Z390-F Gaming | Intel Core i5 9600K @ 4,7GHz | Crosshair H100i | Corsair Vengance 16GB | Asus ROG Strix RTX2060 | Corsair RM 650x


bixer
</Snillingur>
Póstar: 1022
Skráði sig: Lau 14. Nóv 2009 14:38
Reputation: 1
Staðsetning: 101
Staða: Ótengdur

Re: tölvulistinn að skíta á sig

Pósturaf bixer » Fös 29. Jan 2010 19:10

alltaf leiðinlegt að lenda í þessu en hey farðu bara í tölvulistann og öskraðu á starfsmenninna á meðan það er fullt af fólki í búðinni. virkar alltaf hjá mér, ef þú þarft að ganga eitthvað lengra þá geturu staðið við hurðina og sagt við allt fólkið sem kemur inn að það sé betra að fara með viðskiptin sín einhvert annað og gefa þeim ástæður fyrir því. hef alldrei þurft að ganga svona langt en ég hef séð þetta trick í notkun




Elmar
Ofur-Nörd
Póstar: 235
Skráði sig: Mið 03. Nóv 2004 15:27
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: tölvulistinn að skíta á sig

Pósturaf Elmar » Fös 29. Jan 2010 19:36

shit ég veit hvaða mann þú ert að tala um, ef hann myndi koma i dánartilkynningu í fréttablaðinu myndi ég fara út í búð og kaupa mér popp og bjór og fagna. hérna á akureyri kaupi ég eindreigið tölvudót í tölvutek.. og hoppaði háum löppum þegar sú búð kom hingað um jólin.


....


Höfundur
biturk
Kóngur
Póstar: 4431
Skráði sig: Mið 01. Apr 2009 17:08
Reputation: 6
Staðsetning: Akureyri
Staða: Ótengdur

Re: tölvulistinn að skíta á sig

Pósturaf biturk » Fös 29. Jan 2010 19:43

Elmar skrifaði:shit ég veit hvaða mann þú ert að tala um, ef hann myndi koma i dánartilkynningu í fréttablaðinu myndi ég fara út í búð og kaupa mér popp og bjór og fagna. hérna á akureyri kaupi ég eindreigið tölvudót í tölvutek.. og hoppaði háum löppum þegar sú búð kom hingað um jólin.



endilega sendu mér lýsingu á hvað hann heitir og hvernig hann lýtur út því að þetta mannrusl kynnti sig ekki og ég var svo pist að ég gleimdi að spyrja hann.


ef ég spyr spurninga vil ég fá það í þráðinn EKKI í pm!! pm með hótunum, svör við spurningum og fleiru eru án tafar birt í viðeigandi þráð.
Sýnum skynsemi og skrifum undir á móti esb tíma og peningasóun, farðu á www.skynsemi.is og skráðu þig!


Elmar
Ofur-Nörd
Póstar: 235
Skráði sig: Mið 03. Nóv 2004 15:27
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: tölvulistinn að skíta á sig

Pósturaf Elmar » Fös 29. Jan 2010 19:57

man ekki hvað nafnið á honum var en hann var þybbin og dökkhærður öruglega um 30ára, hlítur að vera þunglindur eða enganvegin að nenna að vinna.. gefur manni mjög léleg svör.. og bara ömurlegt attitude að manni langar bara að labba út.. margir að tala um hvað þessi maður er hræðilegur í mannlegum samskiptum, þetta er bara þessi týpa sem á að hanga heimahjá sér á atvinnuleysisbótum og bora í nefið og hanga i wow og drekka pepsí og fróa sér yfir frat party klámi...svo hann dragi ekki fólk með sér í þunglyndi.
eins og þú tekur eftir hef ég lemt fyrir þessum þunglinda dúdda marg oft. og ég basicly fyrirlít tölvulistann eftir þetta.


....

Skjámynd

mind
1+1=10
Póstar: 1117
Skráði sig: Fim 12. Des 2002 09:21
Reputation: 29
Staða: Ótengdur

Re: tölvulistinn að skíta á sig

Pósturaf mind » Fös 29. Jan 2010 20:01

Það er ekki hægt að gera við eitthvað sem er ekki bilað.

Þú veist ekki hvort það er í lagi með tækið eða það sé ennþá bilað þar sem þú virðist ekki hafa það í höndunum.

Þú getur varla kvartað yfir framkomu annarra ef þú sjálfur ert tilbúinn að ganga skrefinu lengra og beita öðrum líkamlegu ofbeldi sé það þínum vilja til framdráttar.

Getur leitað til neytendasamtakanna.
Getur beðið um að tala við yfirmanninn í þeirri von að þú getir betur rætt við hann.

Með núverandi viðhorfi mun þó hvoru tveggja eflaust skila þér engri breytingu varðandi lausn á málinu.



Skjámynd

lukkuláki
Besserwisser
Póstar: 3089
Skráði sig: Fös 30. Nóv 2007 19:06
Reputation: 65
Staða: Ótengdur

Re: tölvulistinn að skíta á sig

Pósturaf lukkuláki » Fös 29. Jan 2010 20:20

Ertu viss um að þeir hafi ekki bara skipt um disk og sagt að þetta hafi verið í lagi til að geta rukkað eitthvað smá í kassann
þannig eru einhverjar sögur sem ég hef heyrt af þeim. Ég hef btw aldrei heyrt þeim hrósað :shock:


If you think patience is a virtue, try surfing the net without high speed Internet.


Höfundur
biturk
Kóngur
Póstar: 4431
Skráði sig: Mið 01. Apr 2009 17:08
Reputation: 6
Staðsetning: Akureyri
Staða: Ótengdur

Re: tölvulistinn að skíta á sig

Pósturaf biturk » Fös 29. Jan 2010 20:28

mind skrifaði:Það er ekki hægt að gera við eitthvað sem er ekki bilað.

Þú veist ekki hvort það er í lagi með tækið eða það sé ennþá bilað þar sem þú virðist ekki hafa það í höndunum.

Þú getur varla kvartað yfir framkomu annarra ef þú sjálfur ert tilbúinn að ganga skrefinu lengra og beita öðrum líkamlegu ofbeldi sé það þínum vilja til framdráttar.

Getur leitað til neytendasamtakanna.
Getur beðið um að tala við yfirmanninn í þeirri von að þú getir betur rætt við hann.

Með núverandi viðhorfi mun þó hvoru tveggja eflaust skila þér engri breytingu varðandi lausn á málinu.



þeir sögðu að það væri ekkert að því og þeir fyndu ekkert svo ég efast um að þeir hafi eitthvað aðhafst (ef svo væri ætti ég heldur ekki að bnorga neitt því þá væri það í ábyrgð)

veistu það er bara alveg takmarkað hvað þolinmæðin nær yfir langt og breitt bil, og þegar maður stendur þarna heillengi og hlustar á mann tala útum rassgatið á sér og tala niður til manns um hluti sem hann hefur augljóslega ekki hundsvit á sjálfur og saka mann um hluti sem maður hefur ekki gert þá....já hugsa ég að ég gæti alveg sætt mig við að löðrunga hann og segja svei þér.


ég er mjög umburðarlyndur maður og rólegur og sýni aldrei nema kurteisi af fyrra bragði þó að ég sé í vondu skapi, ég læt það aldrei bitna á öðrum.


ef ég spyr spurninga vil ég fá það í þráðinn EKKI í pm!! pm með hótunum, svör við spurningum og fleiru eru án tafar birt í viðeigandi þráð.
Sýnum skynsemi og skrifum undir á móti esb tíma og peningasóun, farðu á www.skynsemi.is og skráðu þig!


Höfundur
biturk
Kóngur
Póstar: 4431
Skráði sig: Mið 01. Apr 2009 17:08
Reputation: 6
Staðsetning: Akureyri
Staða: Ótengdur

Re: tölvulistinn að skíta á sig

Pósturaf biturk » Fös 29. Jan 2010 20:29

lukkuláki skrifaði:Ertu viss um að þeir hafi ekki bara skipt um disk og sagt að þetta hafi verið í lagi til að geta rukkað eitthvað smá í kassann
þannig eru einhverjar sögur sem ég hef heyrt af þeim. Ég hef btw aldrei heyrt þeim hrósað :shock:


ef svo er þá fyrst verð ég reiður [-X


ef ég spyr spurninga vil ég fá það í þráðinn EKKI í pm!! pm með hótunum, svör við spurningum og fleiru eru án tafar birt í viðeigandi þráð.
Sýnum skynsemi og skrifum undir á móti esb tíma og peningasóun, farðu á www.skynsemi.is og skráðu þig!


Skari
spjallið.is
Póstar: 490
Skráði sig: Fim 31. Mar 2005 11:35
Reputation: 18
Staða: Ótengdur

Re: tölvulistinn að skíta á sig

Pósturaf Skari » Fös 29. Jan 2010 20:50

Neðri myndin sem þú póstaðir af flökkurnum þá á systir mín líka svona og veit ekki hvort þetta hjálpar þar sem þú sagðist vera búinn að endurskýra folderin en þegar ég notaði ísl stafi á folderin þá týndist allt þegar ég ætlaði að spila í gegnum sjónvarpið.




Höfundur
biturk
Kóngur
Póstar: 4431
Skráði sig: Mið 01. Apr 2009 17:08
Reputation: 6
Staðsetning: Akureyri
Staða: Ótengdur

Re: tölvulistinn að skíta á sig

Pósturaf biturk » Fös 29. Jan 2010 21:01

Skari skrifaði:Neðri myndin sem þú póstaðir af flökkurnum þá á systir mín líka svona og veit ekki hvort þetta hjálpar þar sem þú sagðist vera búinn að endurskýra folderin en þegar ég notaði ísl stafi á folderin þá týndist allt þegar ég ætlaði að spila í gegnum sjónvarpið.


það er augljóslega vandamál á þessum flökkurum sem ég veit af því þeir styðja ekki íslenska stafi :wink:


ef ég spyr spurninga vil ég fá það í þráðinn EKKI í pm!! pm með hótunum, svör við spurningum og fleiru eru án tafar birt í viðeigandi þráð.
Sýnum skynsemi og skrifum undir á móti esb tíma og peningasóun, farðu á www.skynsemi.is og skráðu þig!

Skjámynd

einarhr
Vaktari
Póstar: 2070
Skráði sig: Þri 27. Maí 2008 10:12
Reputation: 306
Staðsetning: 110 Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: tölvulistinn að skíta á sig

Pósturaf einarhr » Fös 29. Jan 2010 21:01

en ég meina hvernig á ég að sanna fyrir þeim bilunina? taka upp á video þegar ég set gögnin yfir fer með flakkarann í sjónvarpið mitt og gögnin birtast ekki þar?


Td það já að taka upp vídeó. Ëf að þeir fá ekki fram bilunina þá verður þú að fá hana fram og sýna þeim.

Ertu búin að prófa Flakkaran í fleira en einni tölvu*? Bara svona just in case að tölvan sé ekki vandamálið!
Varðandi Neytendasamtökun þá getur þú svosem reynt að fá þá til að hjálpa þér en ég efast um að þeir geti gert eitthvað afþví að það virðist ekkert vera Flakkaranum.

Btw
þeir sögðu að það væri ekkert að því og þeir fyndu ekkert svo ég efast um að þeir hafi eitthvað aðhafst (ef svo væri ætti ég heldur ekki að bnorga neitt því þá væri það í ábyrgð)

Þetta er ekki rétt hjá þér! Þó svo að tækið sé í ábyrgð þá þíðir það ekki að þú getir farið með það í tíma og ótíma til þjónustuaðila og ætlast til að fá það ókeypis þegar ekkert er að tækinu. Tækið er í ábyrgð gangvart bilunum ekki þjónustu nema það sé samið um það sérstaklega.

En ég er sammála Mind, Farðu í TL fáðu fund með Yfirmanni. Hafðu einhvern með þér til að róa þig niður, vertu kurteis engin öskur og leiðindi því það virkar mjög sjaldan að vera með læti td inni í búðinni. Kynntu bara þitt mál vel, td að þér var ekki greint frá Skoðunargjaldinu þegar þú fórst með tækið í viðgerð og skoðaðu Þjónustubeiðnina þína vel, ef það stendur á henni í smáaletrinu varðandi Skoðunargjaldið þá er það frekar leiðilegt fyrir þig en eins og ég segi þá er það langbest að vera kurteis, benda á að Þjónustufulltrúinn tók ekker fram við þig varðandi skoðunargjaldið og það gæti kanski hjálpað þér að fá gjaldið niðurfellt.


| Ryzen 7 5800X 32GB |RTX 3070Ti| Server i7 6700K 16GB |

Skjámynd

mind
1+1=10
Póstar: 1117
Skráði sig: Fim 12. Des 2002 09:21
Reputation: 29
Staða: Ótengdur

Re: tölvulistinn að skíta á sig

Pósturaf mind » Fös 29. Jan 2010 21:35

biturk skrifaði:þeir sögðu að það væri ekkert að því og þeir fyndu ekkert svo ég efast um að þeir hafi eitthvað aðhafst (ef svo væri ætti ég heldur ekki að bnorga neitt því þá væri það í ábyrgð)

veistu það er bara alveg takmarkað hvað þolinmæðin nær yfir langt og breitt bil, og þegar maður stendur þarna heillengi og hlustar á mann tala útum rassgatið á sér og tala niður til manns um hluti sem hann hefur augljóslega ekki hundsvit á sjálfur og saka mann um hluti sem maður hefur ekki gert þá....já hugsa ég að ég gæti alveg sætt mig við að löðrunga hann og segja svei þér.


ég er mjög umburðarlyndur maður og rólegur og sýni aldrei nema kurteisi af fyrra bragði þó að ég sé í vondu skapi, ég læt það aldrei bitna á öðrum.


Þó þetta sé ekki æskilegasta ferlið að mínu mati þá er nú það samt þannig þegar maðu fer með hlut í viðgerð að:
1) Ef hann er í raun í lagi þá rukkar fyrirtækið skoðunargjald til að hafa uppí tímann sem þarf að greiða verkstæðismanninum.
2) Reynist hluturinn í raun bilaður fellur það undir ábyrgð og má því ekki rukka viðskiptavin(fyrir sjálfan hlutinn sem bilaði)

Þolinmæði er að sjálfsögðu mjög mismunandi og ég get skilið að hún þrjóti, ég skil hinsvegar ekki afhverju þú einfaldlega ferð ekki framhjá viðkomandi manneskju. Væri nú ekki mikill tími aflögu ef maður ætlaði að hlusta á rassræður aðeins fárra málglaðra manna. Hef þó aðra skoðun á hvort það sé í lagi að leggja hendur á fólk eða löðrunga það.

Nú sértu rólegur og umburðarlyndir þá er um að gera nýta þá eiginleika og nota þá í að finna réttann mann hjá þessu fyrirtæki sem er í aðstöðu til að gera eitthvað í málunum. Eftir því sem ég best veit eru flest allar viðgerðir misjafnar og sum mál einfaldlega þurfa meira aðhald og svigrúm til að leysast. Líkurnar eru á því að getirðu sýnt viðkomandi aðila þitt sjónarhorn á málinu mun hann líklega komast að sömu eða svipaðri lausn og þú er sjálfur að leitast að.

Í leiðinni geturðu bent aðilanum á framkomu þess starfsmanns sem þú upprunalega ræddir við og mögulega komið í veg fyrir að málið endurtaki sig.

Nú ef það gengur ekki þá bara lífgarðu þráðinn aftur við og metur þáverandi möguleiki í stöðunni.




svennnis
Ofur-Nörd
Póstar: 283
Skráði sig: Þri 05. Jan 2010 20:14
Reputation: 0
Staðsetning: á sporbraut sólar
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: tölvulistinn að skíta á sig

Pósturaf svennnis » Fös 29. Jan 2010 22:49

ég er sammála mind , góð rök fyrir þessu :D


Antec P180EU |OCZ 700w| AMD 955 X4 3.2Ghz | XFX 5970 | Gigabyte 790FXTA-UD5 | GeIL Black Dragon DDR3 4x2=8GB | Tacens Gelus III Pro | SSD 128 GB | 500GB | 1000GB | 350GB |


Blackened
vélbúnaðarpervert
Póstar: 956
Skráði sig: Mið 29. Sep 2004 17:36
Reputation: 14
Staðsetning: Babýlon norðursins
Staða: Ótengdur

Re: tölvulistinn að skíta á sig

Pósturaf Blackened » Lau 30. Jan 2010 17:53

mjeh.. ekki að ég sé neitt að verja tölvulistann neitt sérstaklega.. en ég hef alltaf fengið fína þjónustu á Akureyri..
kom tildæmis með harðan disk úr fartölvu til þeirra um daginn sem hafði verið keyptur 2 mánuðum áður og var bilaður.. ég fékk honum skipt út á staðnum og það tók innanvið 10 mín ;)
ekkert undan þeim að kvarta þau skipti sem ég hef verslað við þá :)

en það borgar sig aldrei að æsa sig og vera með barnalæti eins og að öskra og benda viðskiptavinum á að versla annarstaðar og svona.. þá er maður bara royal douchebag og enganveginn að hjálpa manns eigin málstað

betra að fá þá bara að tala við einhvern sem að ræður og vera bara á siðmenntuðu nótunum..

góða helgi drengir ;)



Skjámynd

BjarniTS
Vaktari
Póstar: 2266
Skráði sig: Fim 06. Ágú 2009 01:51
Reputation: 3
Staða: Ótengdur

Re: tölvulistinn að skíta á sig

Pósturaf BjarniTS » Lau 30. Jan 2010 19:38

Frekar fyndið , eitt dæmi hérna um hvað þessi verslun er glötuð.

Sendi tölvupóst á söludeildina hjá þeim um daginn sem að varðaði varahlut sem mig vantaði í fartölvu.

Gaf upp

*Serial
*Týpunúmer/heiti á vélinni
*Mynd af varahlutnum sem mig vantaði
*Auglýsingu sem ég fann á netinu þar sem um ræddi akkurat þennan varahlut.

- Vildi fá að vita verð á þessu ef að ég myndi kaupa þetta hjá þeim.

Fékk svar

* "Verð að biðja þig að hafa samband við verkstæðið okkar í síma 414-1720 … þeir eru með alla íhluti."

Það furðulegasta er að þegar ég hringdi svo niður á verkstæðið þá vildi gaurinn ekkert tala við mig og sagði að það væri best að senda tölvupóst.

Maðurinn sem svaraði tölvupóstinum mínum heitir Elvar og er kallaður Sölufulltrúi í þessu fyrirtæki , hann hefði á svona 2 sec , getað smellt á forward og forwardað póstinum á verskstæðið , en í staðinn þurfti ég að fara og gera það , ásamt því að borga fyrir símtöl og bíða á línum og jarí jarí jarí vesen.
Sem að Elvar hefði getað leyst bara á augabragði , ef að hann honum hefði langað til.
Þetta þýddi tvennt :

*ég var 1 degi lengur að fá uppgefið verð.
*ég mun ekki versla þetta hjá þeim og mun leita annað í framtíðinni.


Nörd

Skjámynd

binnip
spjallið.is
Póstar: 401
Skráði sig: Mið 15. Apr 2009 14:44
Reputation: 0
Staðsetning: fyrir framan skjáinn.
Staða: Ótengdur

Re: tölvulistinn að skíta á sig

Pósturaf binnip » Lau 30. Jan 2010 20:43

BjarniTS skrifaði:Frekar fyndið , eitt dæmi hérna um hvað þessi verslun er glötuð.

Sendi tölvupóst á söludeildina hjá þeim um daginn sem að varðaði varahlut sem mig vantaði í fartölvu.

Gaf upp

*Serial
*Týpunúmer/heiti á vélinni
*Mynd af varahlutnum sem mig vantaði
*Auglýsingu sem ég fann á netinu þar sem um ræddi akkurat þennan varahlut.

- Vildi fá að vita verð á þessu ef að ég myndi kaupa þetta hjá þeim.

Fékk svar

* "Verð að biðja þig að hafa samband við verkstæðið okkar í síma 414-1720 … þeir eru með alla íhluti."

Það furðulegasta er að þegar ég hringdi svo niður á verkstæðið þá vildi gaurinn ekkert tala við mig og sagði að það væri best að senda tölvupóst.

Maðurinn sem svaraði tölvupóstinum mínum heitir Elvar og er kallaður Sölufulltrúi í þessu fyrirtæki , hann hefði á svona 2 sec , getað smellt á forward og forwardað póstinum á verskstæðið , en í staðinn þurfti ég að fara og gera það , ásamt því að borga fyrir símtöl og bíða á línum og jarí jarí jarí vesen.
Sem að Elvar hefði getað leyst bara á augabragði , ef að hann honum hefði langað til.
Þetta þýddi tvennt :

*ég var 1 degi lengur að fá uppgefið verð.
*ég mun ekki versla þetta hjá þeim og mun leita annað í framtíðinni.

Frekar lélegt hjá þeim.


nVidia 9600GT - 600GB HD- ASRockP43DE - Intel E6600 2.4 GHz - GeIL Ultra 4GB 1066 MHz


Drone
Nörd
Póstar: 106
Skráði sig: Fim 10. Sep 2009 01:03
Reputation: 2
Staða: Ótengdur

Re: tölvulistinn að skíta á sig

Pósturaf Drone » Lau 30. Jan 2010 20:56

Ég á eins flakkara.
Var alltaf að lenda í þessu með að skrár sem ég setti á flakkaran sæust ekki við sjónvarp, svo ég fór og renamaði filana og setti í nýa möppu og þar komu þeir fram eftir smá ströggl.
Ég fór einmitt niður í tölvulista og fékk að tala við tæknimann, hann sagði að skráarkerfið á disknum væri sennilega komið í einhvern keng og að ég ætti að prófa að taka afrit af þeim gögnum sem ég vildi eiga og eyða svo út partition og búa til nýtt, afrita gögnin mín svo aftur yfir, eftir það hefur flakkarinn virkað eðlilega.

Ætli hugbúnaðurinn í þessum hýsingum sé ekki bara drasl svo um leið og skráarkerfið fer eitthvað úr skorðum þá fer allt í keng.

Annars er sennilega bara málið fyrir þig að fá að tala við gaurinn á verkstæðinu sem leit á þetta fyrir þig og biðja hann um að kíkja aðeins betur á þetta ef þú varst búinn að prófa allt sem þeir stungu uppá. Ef þeir finna svo eitthvað að við nánari athugun þá væntanlega sleppuru við skoðunargjaldið, Ef hann virkar enþá eðlilega hjá þeim þá væntanlega neyðistu til að greiða það.
Síðast breytt af Drone á Lau 30. Jan 2010 21:17, breytt samtals 1 sinni.