Ég á Argosy sjónvarpsflakkara.. http://www.argosy.com.tw/product-detial.php?prod_id=153
Hann hefur virkað mjög vel þar til ég fékk einhvern djöfs vírus inn á hann frá vini mínum. Vírusinn bjó til system 32 möppu inn á flakkaranum og faldi sig inn í rundll fæl.
Þegar ég ætlaði nota hann fékk ég ekki mynd á sjónvarpið. Ég tengdi hann við tölvu og þá tók eldveggurinn minn á móti honum. Og svo vírusvörnin.. Eina leiðin fyrir mig til að komast inn á diskinn var að hleypa vírusinum inn á tölvuna. Það gerði ég og hann byrjaði að ráðast á alla system processa í tölvunni en ég lét Comodo og Avira Tækla hann og eyða honum út af tölvunni...
Þá var það úr sögunni... Nema að eftir þetta get ég ekki horft á neitt í flakkaranum... Hann kveikir ekki á sér. Ég get samt ennþá tengt hann við tölvunna og notað hann þannig...
Kann einhver ráð við þessu... Þarf ég að formatta diskinn.. setja nýtt firmware inn á flakkarann eða eitthvað...
Öll hjálp er vel þegin...
Vesen með sjónvarpsflakkara...
-
Höfundur - Nýliði
- Póstar: 4
- Skráði sig: Mán 18. Jan 2010 19:39
- Reputation: 0
- Staða: Ótengdur
Re: Vesen með sjónvarpsflakkara...
Ætli skráarkerfið á disknum sé ekki hrunið, getur prófað að keyra chkdsk /f /r á hann og / eða formattað diskinn.
-
Höfundur - Nýliði
- Póstar: 4
- Skráði sig: Mán 18. Jan 2010 19:39
- Reputation: 0
- Staða: Ótengdur
Re: Vesen með sjónvarpsflakkara...
Góð hugmynd... Prufa það...
Fannst einkennilegt að flakkarinn sýni mér ekkert í sjónvarpinu...
En svona er lífið...
Fannst einkennilegt að flakkarinn sýni mér ekkert í sjónvarpinu...
En svona er lífið...
-
- Stjórnandi
- Póstar: 6365
- Skráði sig: Þri 19. Ágú 2008 20:58
- Reputation: 168
- Staða: Ótengdur
Re: Vesen með sjónvarpsflakkara...
Byrja á því að formatta diskinn. Hæpið að vírusinn hafi skemmt OS-ið sjálft/firmware-ið, en alltaf hægt að flasha það svosem til að vera sure.