Er Kísildalur að dala?
Re: Er Kísildalur að dala?
Kísildalur er frábær verslun með góðu starfsfólki! Fá kudos hjá mér og vona að þeir hætti ekki!
-
- ÜberAdmin
- Póstar: 1301
- Skráði sig: Fös 20. Feb 2004 00:25
- Reputation: 53
- Staðsetning: Í kísildalnum
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Er Kísildalur að dala?
Sæll Plextor
Það er leitt að þér skuli ekki líka vel við nýju búðina sem reyndar er bara að taka á sig mynd smám saman. Það er talsvert mál að fylla upp í tífalt stærra rými, það er heilmikil breyting að fara úr þrengslunum í Álfheimunum sem þér fannst e.t.v. kósý en voru að aftra okkur frá því að geta haldið uppi því þjónustustigi sem við viljum gera að almennum standard í tölvugeiranum.
Þetta er rosalega stór geymur og við eigum eftir að þurfa smá tíma til að skipuleggja rýmið og fylla upp í það.
Gunnar, það er leitt að við skyldum ekki eiga viftuna sem þú ætlaðir að kaupa (sem er reyndar margfalt erfiðara að festa og kælir verr en sú sem þú endaðir á að kaupa) en vitanlega var ekki ætlunin að þvinga menn til að kaupa eitt né neitt. Tacens eru bara hættir að framleiða hana enda komnir með afkastabetri og þægilegri hannanir.
Það er líka leiðinlegt að lesa svona óvægna gagnrýni á einn af sprækari Vökturum frá upphafi sem þú segir að "vissi mjög lítið um tölvur" þar sem þú "sást bara á honum" hvað hann vissi lítið. Hann var þarna að hjálpa okkur og var e.t.v. ekki alveg inni í öllum vörunum sem við erum að selja. En drengurinn er ágætlega að sér í tölvum þó að sérsvið hans liggi reyndar meira í grafískri hönnun en hann hannar þær auglýsingar okkar sem lýta betur út en hinar (þær geri ég sjálfur
)
Vitanlega erum við ekki hafnir yfir gagnrýni enda er hún nauðsynleg fyrir okkur til að við getum bætt okkur enn frekar og ég tek öllum ábendingum vel og tek þær til skoðunar.
Ástæða þess að ég svara stundum utan eðlilegs vinnutíma helgast af því að stundum hef ég ekki tíma til að svara fyrirspurnum fyrr en eftir að vinnutíma líkur og já kannski er svolítið slæmt að vera í vinnunni til miðnættis en stundum þarf maður að vera í sambandi við aðila hinum meginn á hnettinum og þá er um að gera að svara nokkrum fyrirspurnum og senda nokkrar ávísanir í póst. Ég skil bara ekkert hvað þær eru lengi á leiðinni til manna
En semsagt gefið okkur nokkra mánuði til að vaxa út í nýja rýmið, ég er bara feginn að geta andað aftur

- Vaktari
- Póstar: 2375
- Skráði sig: Fös 08. Ágú 2008 00:11
- Reputation: 66
- Staðsetning: 105 Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Er Kísildalur að dala?
Gúrú skrifaði:Gunnar skrifaði:ætlaði að kaupa http://kisildalur.is/?p=2&id=1090 þar sem ég get bara ýtt niður á plastið og það festist en hin festingin er með járnhökum á hliðunum.
sagði þeim hjá kísildal að það væri takmarkað pláss í vélinni. en þeir mældu með þessari sem ég keypti.
þetta er samt komið í og er tölvan hljóðlát eftir erfiðin.
A) Þætti gaman að fá betri útskýringu á planinu þínu
B) Þú keyptir viftu með járnhökum á hliðinni.
C) Viftan komst í.
A) skal setja þetta niður í hluta fyrir þig.
1.Ég er með sjónvarpsvél sem er með stock örgjafaviftu sem er svona semíhljóðlát eftir að hún er komin í gang.
2.Ég er ekki nóg of sáttur með hávaðann útaf ég vill hafa hana sem hljóðlátasta. (með viftulausu skjákorti)
3.Ég kýki á vefsíðuna hjá kisildali og ætla mér að skoða úrvalið(skoða annarstaðar líka en kísildalur er með hljóðlátasta sem ég fann) og finn þessa örgjafakælingu sem passar akkurat og áhveð að kaupa hana.
4.Sé að hún er uppseld en þar sem hún er enþá á síðunni þá hugsa ég að þeir gæti átt eftir að uppfæra síðuna.
5.Kem á staðinn og þá heyrðist mér einhver vera að ná í seinasta eintakið með turni.
6.Ég skoða mig um á meðan ég bíð og fæ svo afgreiðslu.
7.Spyr hvort kælingin sem ég spurði um væri uppseld og hann spyr annan starfsmann og sá starfsmaður fer inná skirfstofu að leita og kemur með ekki neitt til baka og segjir nei og heldur áfram að aðstoða hinn viðskiptavininn.
8.Áður en hann fer segir að hann myndi kaupa hina frekar þar sem hún dreyfir ekki loftinu um kassan en blæs því út.(ekkert loftgat aftaná kassanum, segji honum það)
9.Ég spyr hvort hann fái nokkuð þessa örgjafakælingu aftur og hann svara neitandi.
10.Ég sit uppi með kælinguna sem ég vildi ekki, týmdi ekki að borga fyrir(limitið var 5000kr) og "nýji" starfsmaðurinn að stara á mig og bíðandi eftir svari.
11.Ég segjist ætla aðeins að hugsa þetta í von um að starfsmaðurinn myndir fara eitthvað svo ég gæti aðeins hugsað. en nei hann heldur áfram að stara á mig. svo ég kaupi hana til að losna undann óþægilegar móments.
JÆJA er þetta nóg of vel sett niður? eða viltu að ég haldi áfram þegar ég var að rembast við að setja þetta í?
-
- Vaktari
- Póstar: 2375
- Skráði sig: Fös 08. Ágú 2008 00:11
- Reputation: 66
- Staðsetning: 105 Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Er Kísildalur að dala?
wICE_man skrifaði:Gunnar, það er leitt að við skyldum ekki eiga viftuna sem þú ætlaðir að kaupa (sem er reyndar margfalt erfiðara að festa og kælir verr en sú sem þú endaðir á að kaupa) en vitanlega var ekki ætlunin að þvinga menn til að kaupa eitt né neitt. Tacens eru bara hættir að framleiða hana enda komnir með afkastabetri og þægilegri hannanir.
En semsagt gefið okkur nokkra mánuði til að vaxa út í nýja rýmið, ég er bara feginn að geta andað aftur
væri þá ekki tímabært að fjarlæga hana af síðunni

-
- BMW
- Póstar: 2511
- Skráði sig: Fös 30. Jan 2009 22:20
- Reputation: 14
- Staðsetning: Mosó
- Staða: Ótengdur
Re: Er Kísildalur að dala?
Ég get allveg sagt þér það að þessi sem þú ætlaðir að kaupa er ekkert sérstaklega lítil.
Ég var með svona í gömlu vélinni minni og hún tók bara nokkuð mikið pláss (enda 120mm vifta) svo ég spyr.. ertu 100% viss um að hún hefði komist fyrir ?
Ég var með svona í gömlu vélinni minni og hún tók bara nokkuð mikið pláss (enda 120mm vifta) svo ég spyr.. ertu 100% viss um að hún hefði komist fyrir ?
Tölvan mín er ekki lengur töff.
-
- Vaktari
- Póstar: 2375
- Skráði sig: Fös 08. Ágú 2008 00:11
- Reputation: 66
- Staðsetning: 105 Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Er Kísildalur að dala?
Glazier skrifaði:Ég get allveg sagt þér það að þessi sem þú ætlaðir að kaupa er ekkert sérstaklega lítil.
Ég var með svona í gömlu vélinni minni og hún tók bara nokkuð mikið pláss (enda 120mm vifta) svo ég spyr.. ertu 100% viss um að hún hefði komist fyrir ?
það er ég alls ekki.

Re: Er Kísildalur að dala?
Fyrsta gagnrýnin komin á Kísildalinn. Það finnst mér ekkert nema jákvætt vegna þess að enginn er fullkominn og þeir verða jú að vita á hvaða sviðum þeir þurfa að bæta sig. Annars er ég persónulega ánægður með þjónustuna þarna. Hef einu sinni farið í nýju verslunina og ég verð að vera sammála um að hún er tóm og köld. En það ætti nú ekki að hafa áhrif á þjónustuna! Vonum bara að þeir nái að fylla út í þetta nýja rými 

-
- Gúrú
- Póstar: 577
- Skráði sig: Þri 24. Mar 2009 22:13
- Reputation: 21
- Staða: Ótengdur
Re: Er Kísildalur að dala?
gefa þeim tíma að koma sér almennilega fyrir...
Haf X - Corsair 750w - Ryzen 5 5600X - 32gb ddr4 3200mhz -Prime 550M-A - Samsung 1TB NVMe - Asus 3070 OC - 5TB HDD's
Re: Er Kísildalur að dala?
Gúrú skrifaði:WAT... það er bara fáránlega góð þjónusta þarna sem að var eitthvað sem að fólk þekkti ekki áður en að þeir komu.
Finnst þetta full hart í árina tekið.
Ekki það að ég sé að sækjast eftir einhverju kudos út á minn vinnustað, heldur hef ég sjálfur, fyrir þann tíma sem ég byrjaði að vinna hjá Tölvutækni, fengið mjög góða þjónustu hjá hinum ýmsu tölvufyrirtækjum, var til dæmis harður Tölvuvirknis maður áður en ég færði mig yfir. Ekki vegna þess að ég hefði nokkur tengsl við þá, heldur því ég hafði ítrekað fengið góða þjónustu og ekkert annað en jákvætt viðmót þegar ég átti í nokkrum viðskiptum við þá.
Ég er eins og ég segi, ekki að biðja um eitthvað kredit eða flottheit, en mér blöskrar stundum, eins og mér heyrist sumum öðrum hérna, hvernig talað er um Kísildal sem einu verzlunina sem vert er að verzla við. Ég bendi sjálfur hér á spjallinu á vörur hjá öðrum verzlunum, geri það jafn vel í vinnunni ef ég veit að kúnni getur fengið betri vöru á betra verði heldur en ég get boðið, en hér hef ég séð menn sem virka eins og góðkunningjar þeirra í Kísildal, eins og Guðbjartur bendir hér sjálfur á, að þeir eru með einn virkasta meðlim vaktarinnar til að hlaupa í skarðið þegar þeim vantar aðstoð, AUK starfsmanna í fullri vinnu sem ekki skrifa hér undir þeim formerkjum, ekki gera annað en að benda á vörur hjá þeim og ráðleggja fólki að leggja alltaf leið sína þangað.
Auðvitað finnst mér allt í góðu að nefna þá staði sem maður hefur fengið góða þjónustu og eru að keyra á góðum verðum, en ekki tala eins og það sé eini staðurinn sem eitthvað vit sé að eiga viðskipti við.
Ef fólk vill túlka þetta sem eitthvað kall á athygli eða væl, þá mega þeir túlka það þannig, en ég ætla allavega ekki að láta stöðu mína sem starfsmaður í verzlun hafa þau áhrif að ég megi ekki tjá skoðun mína á opinberum vettvangi.
Starfsmaður Tölvutækni.is
Re: Er Kísildalur að dala?
11.Ég segjist ætla aðeins að hugsa þetta í von um að starfsmaðurinn myndir fara eitthvað svo ég gæti aðeins hugsað. en nei hann heldur áfram að stara á mig. svo ég kaupi hana til að losna undann óþægilegar móments.
Þetta komment finnst mér vera priceless
Þetta komment finnst mér vera priceless

-
- Bannaður
- Póstar: 5677
- Skráði sig: Fös 17. Mar 2006 23:08
- Reputation: 1
- Staðsetning: ;)
- Staða: Ótengdur
Re: Er Kísildalur að dala?
Klemmi skrifaði:Gúrú skrifaði:WAT... það er bara fáránlega góð þjónusta þarna sem að var eitthvað sem að fólk þekkti ekki áður en að þeir komu.
Innlegg Klemma
Ég get alveg verið sammála þér í því að þetta er full hart í árina tekið en þetta er mín reynsla af random fólki á IRCinu ofl. stöðum sem voru einfaldlega ekki sáttir með fullt af búðum hér á landi.
Ég var btw. 8 ára við stofnun Tölvutækni og get því lítið sagt um neitt annað en að ég hafi ávallt mætt góðri þjónustu þegar að ég hef verslað eitthvað þarna.
Modus ponens
-
- Vaktari
- Póstar: 2375
- Skráði sig: Fös 08. Ágú 2008 00:11
- Reputation: 66
- Staðsetning: 105 Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Er Kísildalur að dala?
Gets skrifaði:11.Ég segjist ætla aðeins að hugsa þetta í von um að starfsmaðurinn myndir fara eitthvað svo ég gæti aðeins hugsað. en nei hann heldur áfram að stara á mig. svo ég kaupi hana til að losna undann óþægilegar móments.
Þetta komment finnst mér vera priceless
þú veist ekki hversu óþægilegt þetta var. og þegar starfsmenn yfir höfuð í búðum standa yfir manni. shiii.
eins og t.d á spáni seinasta sumar þá í hverri einustu raftækjaverlsun sem ég fór í var inverji að afgreiða og þeir gerðu ekkert annað en að liggja á manni og stara á hvert einasta hlut sem maður gerði. það er svo óþægilegt.

-
- BMW
- Póstar: 2511
- Skráði sig: Fös 30. Jan 2009 22:20
- Reputation: 14
- Staðsetning: Mosó
- Staða: Ótengdur
Re: Er Kísildalur að dala?
Gunnar skrifaði:Gets skrifaði:11.Ég segjist ætla aðeins að hugsa þetta í von um að starfsmaðurinn myndir fara eitthvað svo ég gæti aðeins hugsað. en nei hann heldur áfram að stara á mig. svo ég kaupi hana til að losna undann óþægilegar móments.
Þetta komment finnst mér vera priceless
þú veist ekki hversu óþægilegt þetta var. og þegar starfsmenn yfir höfuð í búðum standa yfir manni. shiii.
eins og t.d á spáni seinasta sumar þá í hverri einustu raftækjaverlsun sem ég fór í var inverji að afgreiða og þeir gerðu ekkert annað en að liggja á manni og stara á hvert einasta hlut sem maður gerði. það er svo óþægilegt.
Þá segiru bara "Takk fyrir hjálpina, ætla að skoða annar staðar og hugsa þetta smá" og labbar út

Tölvan mín er ekki lengur töff.
-
- Vaktari
- Póstar: 2375
- Skráði sig: Fös 08. Ágú 2008 00:11
- Reputation: 66
- Staðsetning: 105 Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Er Kísildalur að dala?
Glazier skrifaði:Gunnar skrifaði:Gets skrifaði:11.Ég segjist ætla aðeins að hugsa þetta í von um að starfsmaðurinn myndir fara eitthvað svo ég gæti aðeins hugsað. en nei hann heldur áfram að stara á mig. svo ég kaupi hana til að losna undann óþægilegar móments.
Þetta komment finnst mér vera priceless
þú veist ekki hversu óþægilegt þetta var. og þegar starfsmenn yfir höfuð í búðum standa yfir manni. shiii.
eins og t.d á spáni seinasta sumar þá í hverri einustu raftækjaverlsun sem ég fór í var inverji að afgreiða og þeir gerðu ekkert annað en að liggja á manni og stara á hvert einasta hlut sem maður gerði. það er svo óþægilegt.
Þá segiru bara "Takk fyrir hjálpina, ætla að skoða annar staðar og hugsa þetta smá" og labbar út
vill bara segja takk fyrir að vera svona æðislega gáfaður eftirá.

ekki vill svo til að þú sért með tímavél svo ég geti farið til baka og gert þetta aftur rétt?

-
- ÜberAdmin
- Póstar: 1301
- Skráði sig: Fös 20. Feb 2004 00:25
- Reputation: 53
- Staðsetning: Í kísildalnum
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Er Kísildalur að dala?
Elsku Klemmi
Ég hef tekið eftir því að það fer rosalega í taugarnar á sumum þegar hver vaktarinn á fætur öðrum lýsir yfir stuðningi við okkur.
Þetta á ekki einungis við um þennan þráð heldur fjölmarga þræði þar sem ég hef séð menn mæla með okkur, oft með slíkum lofsöng að mér finnst sjálfum það vera full djúpt í árina tekið. Þá er það iðulega svo að einhverjir finna hjá sér þörf við að gagnrýna slíkan lofsöng og telja jafnvel þá sem slíkt stunda vera einhverja innvígða og innmúraða í Kísildalinn. Það er auðvitað ekki svo heldur einungis um að ræða fólk sem hefur komið til okkar og fengið þjónustu sem því fannst bera af.
Ég skal árétta það að það er langt í frá alltaf sem við náum að veit þá þjónustu sem okkur langar, oft sökum tímaskorts eða vegna þess að við eigum tímabundið ekki þær vörur sem við þyrftum að eiga til að uppfylla ákveðnar þarfir.
En þegar að okkur tekst að bjarga málunum fyrir fólk eða veita einstaklega góða þjónustu þá er fátt sem fær mann til að hlýna meira um hjartaræturnar en þegar að fólk lætur þakklæti sitt í ljós í orði eða verki. Það er það sem drífur okkur áfram og ég fullyrði að ef menn gerðu meira af því að hrósa tölvuversluum heldur en að rakka þær niður eða að rakka niður fólk sem vogar sér að hrósa ákveðnum búðum í hástert, þá væru fleiri búðir að veita betri þjónustu.
Ég hef líka heyrt vel látið af Tölvutækni hér á vaktinni og þó að við séum í harðri samkeppni þá finnst mér gott að sjá vel að þeim látið og ég kýs frekar að lýta á hrós í þeirra garð sem hvatningu til mín að gera enn betur
Það opinberast hér með að eina beintenging vaktarinnar við Kísildal er sú að það er vaktinni að þakka að ég stofnaði Kísildal, til að auka á fjölbreytni í úrvali á tölvuhlutum á markaðnum og tel ég að ágætlega hafi tekist til og vona að nýja húsnæðið gefi okkur tækifæri til að margbæta okkur þar.
Með virðingu
Guðbartur Nilsson

Tölvuverslunin Kísildalur, staðurinn þar sem nördin versla
...og btw þá er ég innvígður og innmúraður í Kísildal

...og btw þá er ég innvígður og innmúraður í Kísildal
-
- BMW
- Póstar: 2511
- Skráði sig: Fös 30. Jan 2009 22:20
- Reputation: 14
- Staðsetning: Mosó
- Staða: Ótengdur
Re: Er Kísildalur að dala?
wICE_man skrifaði:Það opinberast hér með að eina beintenging vaktarinnar við Kísildal er sú að það er vaktinni að þakka að ég stofnaði Kísildal, til að auka á fjölbreytni í úrvali á tölvuhlutum á markaðnum og tel ég að ágætlega hafi tekist til og vona að nýja húsnæðið gefi okkur tækifæri til að margbæta okkur þar.
Með virðingu
Guðbartur Nilsson
Er búinn að versla við ykkur í 2-3 ár og alltaf fengið magnaða þjónustu.. en aldrei vitað hver ykkar stofnaði verslunina

Tölvan mín er ekki lengur töff.
-
- Kóngur
- Póstar: 4431
- Skráði sig: Mið 01. Apr 2009 17:08
- Reputation: 6
- Staðsetning: Akureyri
- Staða: Ótengdur
Re: Er Kísildalur að dala?
Gunnar skrifaði:11.Ég segjist ætla aðeins að hugsa þetta í von um að starfsmaðurinn myndir fara eitthvað svo ég gæti aðeins hugsað. en nei hann heldur áfram að stara á mig. svo ég kaupi hana til að losna undann óþægilegar móments.
JÆJA er þetta nóg of vel sett niður? eða viltu að ég haldi áfram þegar ég var að rembast við að setja þetta í?

okei, í alvörunni? ertu ekki að djóka með þetta eða

mikið vildi ég að þú myndir koma og ætla að kaupa bíl hjá mér, bjóða 300þús í hann ég segi nei, ég vil 450þús og stara síðann bara á þig þangað til þú gefur þig

ps ég er á akureyri með bíl til sölu ef þú ert game í þetta

ef ég spyr spurninga vil ég fá það í þráðinn EKKI í pm!! pm með hótunum, svör við spurningum og fleiru eru án tafar birt í viðeigandi þráð.
Sýnum skynsemi og skrifum undir á móti esb tíma og peningasóun, farðu á www.skynsemi.is og skráðu þig!
Sýnum skynsemi og skrifum undir á móti esb tíma og peningasóun, farðu á www.skynsemi.is og skráðu þig!
-
- ÜberAdmin
- Póstar: 1335
- Skráði sig: Fim 11. Sep 2008 14:33
- Reputation: 0
- Staðsetning: Í nafla alheimsins
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Er Kísildalur að dala?
ég keypti tölvuna mína þar,svo bilaði hún einhver tíman og ég var búinn að týna nótunni frá þeim,fór bara með tölvuna til þeirra,ekkert mál löguðu hana...er mjög sáttur við kísildal,annað en tölvulistan,það er versta tölvubúð á landinu,keypti mér viftustrjóa þar einhvertíman í september nóvember og það var hreinlega ónýtt tæki,vantaði einn sensor og límið var farið,svona eins og þeir hefðu verið búnir að nota það í aðra tölvu,ég fór með þetta til þeirra og þeir sögðu að þeir ætluðu bara að skoða þetta,svo milli jól og nýárs hringdi ég í þá og þá áttu þeir að vera búnir að leggja inn á mig ehn pening,og þeir sögðu að það hefði ekkert verið búið að kíkja á þetta,alveg hræðileg þjónusta þar á ferð 

Mercedes er magnað tól
Mergjuð er ásýnd líka
Það eru bara forhert fól
Sem fíla þá ekki slíka
Mergjuð er ásýnd líka
Það eru bara forhert fól
Sem fíla þá ekki slíka
-
- Vaktari
- Póstar: 2375
- Skráði sig: Fös 08. Ágú 2008 00:11
- Reputation: 66
- Staðsetning: 105 Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Er Kísildalur að dala?
biturk skrifaði:Gunnar skrifaði:11.Ég segjist ætla aðeins að hugsa þetta í von um að starfsmaðurinn myndir fara eitthvað svo ég gæti aðeins hugsað. en nei hann heldur áfram að stara á mig. svo ég kaupi hana til að losna undann óþægilegar móments.
JÆJA er þetta nóg of vel sett niður? eða viltu að ég haldi áfram þegar ég var að rembast við að setja þetta í?
![]()
![]()
okei, í alvörunni? ertu ekki að djóka með þetta eða![]()
![]()
mikið vildi ég að þú myndir koma og ætla að kaupa bíl hjá mér, bjóða 300þús í hann ég segi nei, ég vil 450þús og stara síðann bara á þig þangað til þú gefur þig![]()
ps ég er á akureyri með bíl til sölu ef þú ert game í þetta
ég get allveg sagt það hér og nú að þetta er fyrsta og seinasta skipti sem þetta kemur fyrir

læt ekki fara svona með mig. ég næ nefnilega ekki að hugsa jafn vel þegar ég er einn og þegar einhver er að stara á mig bíður eftir svari.
svo var þetta líka að ég nennti ekki að fara að eyða meiri tíma í að fynna örgjafakælingu.
þótt þegar ég hugsa útí það núna hefði ég getað keypt mér einhverja ódýrta kælingu og keypt svo bara staka viftu hjá þeim sem væri ofurhljóðlát og skellt henni á en hey eins og ég sagði áður flott að vera gáfaður eftirá.

Re: Er Kísildalur að dala?
Kæri Guðbjartur,
ég hef aldrei sagt og mun ekki segja að það fari í taugarnar á mér að sjá ykkur hrósað. Það heldur manni á tánum og fær mann til að leggja sig meira fram, maður vill alltaf bjóða upp á beztu þjónustuna, ef samkeppnin bætir sína, þá reynir maður að gera það líka ef maður sér sér einhverja leið færa til þess.
Eins og áður hefur komið fram þá finnst mér bara þreytandi að sjá fólk skrifa að Kísildalur sé EINA búðin sem vert er að verzla við, þið hafið komið á markaðinn og sett fram nýjan standard á þjónustu. Þetta finnst mér ekki í samræmi við raunveruleikann, þið bjóðið örugglega upp á fínustu þjónustu og ágætis verð og hefur í þau 2 skipti sem ég hef litið inn til ykkar heyrst þið vera voðalega vinalegir og góðir gæjar, en það þýðir ekki að það sé út úr myndinni að aðrar verzlanir og verkstæði geti ekki verið að bjóða upp á sömu eða betri þjónustu
Hér kemur inn óánægður kúnni sem segir sína sögu, auðvitað eru tvær hliðar á öllum málum, en hann er strax rakkaður niður af hörðum Kísildals-manni. Ég var ekki að gagnrýna þig eða verzlun þína á einn eða annan hátt, heldur því aðkasti sem hann þarf strax að þola, bara fyrir að nefna að hann hafi verið ósáttur með þjónustuna. Hann var voða kurteis í upphafi, þó hann hafi kannski verið að draga óþarfa ályktanir.
Ég er alveg sammála þeim með að hann sé kannski full óþolinmóður, þið eruð nýbúnir að stækka húsnæði ykkar margfalt og tekur tíma að fylla upp í auka rýmið, en samt sem áður heyrist mér á seinni póstum að viðmótið sem hann mætti frá starfsmönnum ykkar, hvort sem tímabundnum eða í fullu starfi, vera vítavert og alveg eiga rétt á gagnrýni
Þegar viðskiptavinur er búinn að segjast ætla að hugsa sig um, þá ætti sölumaðurinn bara að segja bezta mál, ganga frá vörunni aftur í hilluna og fara að afgreiða næsta kúnna. Ef hann er byrjandi þá auðvitað er rétt að það komi fram, það tekur tíma að detta inn í nýtt starf, sérstaklega ef þú hefur ekki verið í sambærilegu starfi áður, en mér finnst samt sem áður að viðskiptavinur eigi rétt á að gagnrýna það.
En bara fyrir forvitnissakir þar sem þegar spurt hefur verið að þessu hefur aldrei fengist svar, er Taxi núverandi eða fyrrverandi starfsmaður hjá Kísildalnum?
Auðvitað skil ég að þér finnist gaman og gott að heyra ykkur hrósað og eigið þið það líklega skilið í langflestum ef ekki öllum tilvikum. Kannast við hlýjuna sem maður finnur þegar manni er hrósað fyrir vel unnið verk.
En þegar fólk er farið að tala svona, eins og maður eigi að vera sérstaklega stolltur af öllu sem maður gerir, maður sé sá eini sem vert er að skoða, þá fara að renna á mann tvær grímur. Lítið hrós frá manneskju sem maður veit að er sparsamur á hrós þykir mér margfalt betra heldur en endalaust hrós frá manneskju sem þarf lítið til að gleðja.
En annars óska ég ykkur góðs gengis, þið hafið heyrist mér verið að koma mjög vel fram, góð þjónusta, ágætis verð, en allir eiga rétt á að gagnrýna þegar þeim finnst ástæða til, hvort sem sá sem fyrir gagnrýninni verður hafi yfirleitt verið að standa sig með prýði eða ekki

Höfundur - Fiktari
- Póstar: 76
- Skráði sig: Lau 21. Nóv 2009 23:54
- Reputation: 0
- Staða: Ótengdur
Re: Er Kísildalur að dala?
Ég held að tilganginum með upphafið að þessum þræði mínum sé náð. Sem sé, að opna á málefnalega og gagnrýna umræðu á okkur þá sem að lifum og hrærumst í tölvuheiminum. Svarið þitt hér að ofan Klemmi til Guðbjarts, lýsir akkúrat því viðmóti og viðbrögðum sem ég vonaðist til að fá með opnun þráðarins.
-
- Ofur-Nörd
- Póstar: 221
- Skráði sig: Fim 26. Sep 2002 11:16
- Reputation: 0
- Staðsetning: 101
- Staða: Ótengdur
Re: Er Kísildalur að dala?
Haft töluverð viðskipti við þá á nýja staðnum og bara síðast í dag gerðu þeir við hlut með hraðþjónustu fyrir mig. Hringt í mig hálftíma seinna og sagt að sækja þetta. Þótt ég væri tilbúin með veskið til að borga fyrir þetta ákvað starfsmaðurinn að fletta upp í tölvunni til að vera viss um að þetta væri nú örugglega ekki í ábyrgð hjá þeim sem það reyndist vera og é endaði á að labba með þetta út án þess að borga neitt.
Síðast breytt af Amything á Mið 13. Jan 2010 19:46, breytt samtals 1 sinni.
-
- ÜberAdmin
- Póstar: 1335
- Skráði sig: Fim 11. Sep 2008 14:33
- Reputation: 0
- Staðsetning: Í nafla alheimsins
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Er Kísildalur að dala?
var að gera það nákvæmlega sama með tölvuna mina í dag,borgaði ekki neitt 

Mercedes er magnað tól
Mergjuð er ásýnd líka
Það eru bara forhert fól
Sem fíla þá ekki slíka
Mergjuð er ásýnd líka
Það eru bara forhert fól
Sem fíla þá ekki slíka