Ég er með heldur leiðinlegt vandamál. Ég er nýbúin að fjárfesta í MSI P43-C51 móðurborði ásamt Corsair 1333MHz 4GB (2x2GB) XMS3
vinnsluminni. Svo setti ég í þetta Intel Q9650 örgjörva.
tölvan startar sér fínt en byrjar svo að hökta og vera með alskonar stæla. Stundum frís tölvan og stundum hökktir hún bara. Ég er búin að fara með tölvuna 2 sinum í viðgerð og þeir finna ekkert , hafa reyndar prufað að skipta út minninu en það lagast ekkert.
Ég hef reyndar heyrt að socket LG775 og DDR3 vinni ekki vel saman. Er það rétt??
Kannist þið við þetta vandamál?? Er eitthvað hægt að gera?? Er ég virkilega nauðbeygður að fara niður í DDR2 minni aftur?

Endilega komið með eitthvað um þetta. Ég er búin að vera með vélina bilaða síðan 22 des.
Kv. Dabbi