"Til hamingju" vaktarar og aðrir landsmenn

Allt utan efnis
Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 8279
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1323
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: "Til hamingju" vaktarar og aðrir landsmenn

Pósturaf rapport » Fim 31. Des 2009 11:39

Ég efast nú um að þessir 33 þingmenn séu svo forheimskir að þeir samþykki þetta nema annað væri í boði.


???

Alþingismenn eru engir vitringar... þvert á móti þá er þetta fólk oft auðnuleysingjar sem helst ekki í vinnu á almennum markaði.

Það eru fáir sem hægt er að líta upp til á þingi.



Skjámynd

depill
Stjórnandi
Póstar: 1596
Skráði sig: Mán 04. Júl 2005 17:09
Reputation: 260
Staðsetning: Reykjavík, Iceland
Staða: Ótengdur

Re: "Til hamingju" vaktarar og aðrir landsmenn

Pósturaf depill » Fim 31. Des 2009 13:02

beatmaster skrifaði:Þetta með indefence.is og "undirskriftasöfnun" [-X , að skrá sig á heimasíðu er ekki undirskrift!

Svo er alltaf verið að bera þetta saman við fjölmiðlalögin en það voru tugþúsundir handskrifaðar undirskriftir, það er ekki það sama í mínum huga

Það er allt of mikið gert úr "gjá milli þings og þjóðar" í þessu máli 80% venjulegra íslendingaa vill bara að þetta kjaftæði hætti.


Tala nú ekki um fólk sem að skilur ekki orsök og afleiðingu, því er bara ekki viðbjargandi.

Baggalútur tók það best fyrir um daginn, með manninn sem að þoldi ekki af þurfa að skafa af bílnum sínum og vildi fá sjálfstæðisflokkinn aftur til valda því að hann þurfti aldrei að skafa af bílnum þegar að hann var við völd


Ég myndi seint kjósa VG en Steingrímur J er maður ársins að mínu mati, en varðandi mínar persónulegu pólitísku skoðanir þá auglýsi ég eftir alvöru hægri flokki á íslandi (og fólk sem að í alvöru telur X-D vera hægri sinnaðan flokk ætti að kynna sér sögu síðustu 20 ára)


Æi beatmaster þú ert æði, ég ætlaði ekki einu sinni að taka þátt í þessari umræðu eins og hefur komið fram hérna annars staðar ( og á fleirri stöðum ) þá hugnast mér ESB af tvennum ástæðum Evran, ég tel okkur þurfa stabílan gjaldmiðilin til að geta fengið lán og geta forðast eignaupptöku með verðtryggingngunni. Þeir sem segja að krónan og verðtryggingin sé góð er gjörsamlega ..... Og tollabandalagið, vegna þess að ég held að íslenskir pólitíkusar muni aldrei leyfa Íslenskum landbúnaði að vera samkeppnishæfum. Muni aldrei fella niður verndartolla og kvóta og aldrei fella niður asnalega mjólkurtolla o.s.frv.....

Hins vegar hugnast mér ekki ESB vegna þess að þetta er rosalega bjúrokosía sem mér finnst vera nóg af hérna heima til að byrja með, ég verð að játa það að ég vill geta hindrað fólksflutninga soldið og vill að Ísland segi sig úr Schengen strax. Og svo menn eins og þú beatmaster sem eru kvarta yfir því að einhverjir tengja saman Icesave og ESB og svo gerið þið sama.

Og svo kemurðu ennfremur með "ohh ég ætla að vona að fólk hætti að hugsa um flokka eins og fótboltalið" þessir flokkar haga sér eins og fótboltalið þetta fáranlegt. Hvernig í fjandanum geta allir -1 í stjórnarandstöðu verið á móti og allir í stjórn verið með. ÞAÐ ER ENGINN SVONA ÓGEÐSLEGA SAMMÁLA ( er að tala um á báða bóga )

Og 80% þjóðarinnar vilja þetta í burtu. Veit ekki betur en að 70% þjóðarinnar vilja þetta í þjóðaratkvæðagreiðslu sem hefur komið fram í hverri könnunni á fætum annari. Það er mjög líklegt að indefence.is sé mikið underestimate.
----
Fólk sem heldur að flokkar séu til hægri og vinstri á Íslandi ættu bara að kíkja á þá ( ennfremur er skemmtilegt að kynna sér afhverju það er til hægri og vinstri flokkar, en það er annað discussion ).

Íhaldið er miklu betri lýsing á flokknum heldur en að kalla hann frjálshyggjuflokk og okkur frjálshyggjumönnum gnístir í tennunar við það að heyra að þetta sé frjálshyggjunni ( eða eithvað sem kallast neo-liberasim - þetta er næstum því andstæður ) í frjálshyggju væri Icesave ekki til ( og þá myndi ég alls ekki vilja ganga í ESB :) ), það er út af leiðinlegum afturhaldskommatittum sem ég vill ganga í ESB, þar sem ég held því miður að þeir verði alltaf til í svolitlu magni hérna ( eins og SJS ).

Steingrímur J, er auli ársins ( ásamt fleirri pólitíkusum ) hann og Atli Gíslason berjast um þann titill hart, þetta er menn sem voru með miklar hugsjónir sem allir héldu að þeir myndu aldrei gefast uppá en voru fljótari en allir til að gefa þær upp. Eru í flokknum sem hóf ESB umsókn á vitlausum tímapunkti, gáfu eftir í Icesave hugsjónum sínum og virðast líka ætla ekki að reforma fiskveiðistjórnunarkerfið á Íslandi. AULAR.

Maður ársins er eins og flest öll fyrri ár ( í pólitík það er að segja ) Pétur Blöndal sem hvort sem hann er í stjórn eða stjórnaandstöðu gefst aldrei uppá hugsjónum sínum ( ohhh Atli, ég hélt að þú tilheyrðir þessum mjög svo fámenna hópi )

Svikarar ársins eru klárlega Jóhanna Sigurðardóttir og Samfylkingin sem ætla líka að reyna svíkja allt fyrir ESB aðild, vegna þess að eins og allir vita þá lagast allt við að samþykkja Icesave nokkru sinnum enda býst ég við að dollarinn verði í kringum 70 og evra 120 beint eftir áramót og henda DO út úr Seðlabankanum og svo styrkist gengið ennþá meira við að bara setja inn umsóknina inní ESB ( að þetta lið hafi látið þetta út úr sér ) og svo forðumst við bara fjölmiðla eins og heitan eldinn og þá þurfum við ekki að taka á vandanum, af því að þeir eru hvort sem er svo lélegir.
jodazz skrifaði:Annars er dásamlegat að hlusta á fortölur um hið vonda ESB. Staðreyndin er sú að eftir fremur stutta sögu sjálfstæðis þar sem flokkurinn hefur verið við völd mestan part af tímanum þá eru lífskjör hér í hið minnsta helmingi verri en á hinum norðurlöndunum. Maður á lyftara sem vinnur 38 stunda vinnuviku í Danmörku er með 850þús á mánuði miðað við gengið í dag. En að vísu hlýtur hann náttúrulega að hafa það skelfilegt þar sem hann býr ekki lengur í sjálfstæðu landi.


Klárlega er ég sammála hér, en samt sem áður að jafnvel eftir kreppu erum við mjög háa landsframleiðslu, við getum bæði lifað utan og innan ESB en ég tel persónulega EES samning ekki góðan þar sem við erum algjörlega áhrifalausir og getum ekkert gert í álitamálum eins og Icesave er.

Varðandi Danadæmið, þá er kaupmátturlauna enn tiltölulega hár og vonandi verður þetta tímabundið skerðing á þjónustu og tekjum sem verður hér á landi ( og ég reyndar held það, þar sem landið hefur uppá margt að bjóða ).
Daz skrifaði:Samþykkt icesave þýðir í það minnsta að við getum stundað viðskipti við útlönd á næstunni, ef við hefðum ekki samþykkt er alls óvíst hvað hefði gerst, hversu ósanngjarnt sem það kann að hljóma að borga skuldir einkafyrirtækis. Ég hefði nú haldið að tölvunördar skildu mikilvægi þess að eiga lítið heftann innflutning!! :roll: :lol:

Og heilaþvottur Samfylkingarinnar hefur náð til Daz, tókstu ekki eftir því hvernig allur innflutningur og Ísland hruni 28. Október ?.
Ég bara skil þessa þvælu ekki, hvernig þetta náði svona langt.
A) Evrópa er ekki einu staðurinn í heiminum
B) Við gætum lifað góðu lífi án EES
C) Við ásamt fleirri löndum erum í WTO
D) Það líklegra að innflutningur stoppi vegna Icesave þar sem við þurfum að nota svo mikið af tekjum okkar í að borga Icesave að við munum líklegast fella gengið enn meira.
F) Samfylkingin eru endanlegir svikarar og fólk virðist gleyma því að Samfylkingin var í stjórn svo ég myndi segja xD + xB = 70 - 75% xD + xS = Rest

Hins vegar gæti ég alveg tekið uppá því næst að kjósa xS eða VG, xD eða xB ég kýs bara það sem mér finnst samsvara mínum skoðunum best og sem slíkt kaus ég xD síðast.



Skjámynd

Daz
Besserwisser
Póstar: 3847
Skráði sig: Sun 20. Okt 2002 09:35
Reputation: 162
Staðsetning: Somewhere something went horribly wrong
Staða: Ótengdur

Re: "Til hamingju" vaktarar og aðrir landsmenn

Pósturaf Daz » Fim 31. Des 2009 16:00

depill skrifaði:
Daz skrifaði:Samþykkt icesave þýðir í það minnsta að við getum stundað viðskipti við útlönd á næstunni, ef við hefðum ekki samþykkt er alls óvíst hvað hefði gerst, hversu ósanngjarnt sem það kann að hljóma að borga skuldir einkafyrirtækis. Ég hefði nú haldið að tölvunördar skildu mikilvægi þess að eiga lítið heftann innflutning!! :roll: :lol:

Og heilaþvottur Samfylkingarinnar hefur náð til Daz, tókstu ekki eftir því hvernig allur innflutningur og Ísland hruni 28. Október ?.
Ég bara skil þessa þvælu ekki, hvernig þetta náði svona langt.
A) Evrópa er ekki einu staðurinn í heiminum
B) Við gætum lifað góðu lífi án EES
C) Við ásamt fleirri löndum erum í WTO
D) Það líklegra að innflutningur stoppi vegna Icesave þar sem við þurfum að nota svo mikið af tekjum okkar í að borga Icesave að við munum líklegast fella gengið enn meira.
F) Samfylkingin eru endanlegir svikarar og fólk virðist gleyma því að Samfylkingin var í stjórn svo ég myndi segja xD + xB = 70 - 75% xD + xS = Rest

Hins vegar gæti ég alveg tekið uppá því næst að kjósa xS eða VG, xD eða xB ég kýs bara það sem mér finnst samsvara mínum skoðunum best og sem slíkt kaus ég xD síðast.

Sæll.
Ekki ásaka fólk sem þú þekkir ekki um að vera heilaþvegið. Þér að segja þá er ég ekkert sérstaklega hrifinn af Samfylkingunni, hennar þætti í hrunin og hennar þáttökuleysi (opinberlega) í uppbyggingu eftir hrunið. Hef reyndar ekki kosið Samfylkinguna, enþá.
Allur innflutningur hrundi því það átti enginn gjaldeyri til að kaupa neitt inn. Evrópa er okkar helsti inn og útflutnings viðskiptamarkaður, ef við getum bara átt við þá staðgreiðsluviðskipti versnar verulega viðskiptaumhverfið fyrir íslensk fyrirtæki.

Ef við samþykkjum Icesave þá er það mál frá og hægt að fá mögulega eitthvað gáfulegra í gegnum þingið. Einnig vitum við uþb hvernig við munum standa næstu árin (þar sem afborganir og annað því tengt varðandi Icesave liggur fyrir). Ég er ekki að halda fram að núverandi Icesave samkomulag sé það besta í heimi eða það muni yfirleitt vera hægt að borga þetta, en umræða um að við ættum ekki að borga þetta er jafnvel enþá heimskulegri, því ekki hefur neinn komið fram með nein sæmilega stöðug plön um hvernig við förum að þá, hvernig umhverfið hjá okkur verður.
En annars:
Mynd



Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 8279
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1323
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: "Til hamingju" vaktarar og aðrir landsmenn

Pósturaf rapport » Fim 31. Des 2009 16:17

Einnig vitum við uþb hvernig við munum standa næstu árin (þar sem afborganir og annað því tengt varðandi Icesave liggur fyrir).


:^o

Hvernig færðu þetta út?

Eins og málin standa núna þá er skuldbindingin í erlendri mynt...

Skv. ESB löggjöfinni og reglum um íslenska tryggingasjóðinn þá á hann að greiða út í ISK

Er of mikið að fara fram á að greiða þetta í okkar gjaldmiðli?



Skjámynd

depill
Stjórnandi
Póstar: 1596
Skráði sig: Mán 04. Júl 2005 17:09
Reputation: 260
Staðsetning: Reykjavík, Iceland
Staða: Ótengdur

Re: "Til hamingju" vaktarar og aðrir landsmenn

Pósturaf depill » Fim 31. Des 2009 17:57

Daz skrifaði:Sæll.
Ekki ásaka fólk sem þú þekkir ekki um að vera heilaþvegið. Þér að segja þá er ég ekkert sérstaklega hrifinn af Samfylkingunni, hennar þætti í hrunin og hennar þáttökuleysi (opinberlega) í uppbyggingu eftir hrunið. Hef reyndar ekki kosið Samfylkinguna, enþá.
Allur innflutningur hrundi því það átti enginn gjaldeyri til að kaupa neitt inn. Evrópa er okkar helsti inn og útflutnings viðskiptamarkaður, ef við getum bara átt við þá staðgreiðsluviðskipti versnar verulega viðskiptaumhverfið fyrir íslensk fyrirtæki.

Ef við samþykkjum Icesave þá er það mál frá og hægt að fá mögulega eitthvað gáfulegra í gegnum þingið. Einnig vitum við uþb hvernig við munum standa næstu árin (þar sem afborganir og annað því tengt varðandi Icesave liggur fyrir). Ég er ekki að halda fram að núverandi Icesave samkomulag sé það besta í heimi eða það muni yfirleitt vera hægt að borga þetta, en umræða um að við ættum ekki að borga þetta er jafnvel enþá heimskulegri, því ekki hefur neinn komið fram með nein sæmilega stöðug plön um hvernig við förum að þá, hvernig umhverfið hjá okkur verður.
En annars:


Ég sagði ekki að þú hefðir kosið ( eða nokkur hérna inni ) Samfylkinguna. Ég er að meina að sérstaklega Samfylkingin hefur haldið því fram að við munum verða basicly öreigar ef við samþykkjum ekki Icesave. Ég persónulega var með fyrra Icesave frumvarpi og sagði þá að ég vildi bara einn lagafyrirvara þarna ( sem var tekinn út ) að ef við myndum vinna dómsmál þá myndi það bara gilda. En nei, ef við vinnum dómsmál sem segir að okkur bara ekki skylda til að setja ríkisábyrgð á þetta ( sem virðist ekki vera ) þá ætla Hollendingar og Bretar að "tala" við okkur aftur, en eingar skuldbindingar að þeirra hálfu....

Fáranlegt að þessi fyrirvari hafi verið felldur niður.

Við vitum jafnframt ekki hvað við erum að fara greiða í afborgarnir þar sem að við vitum ekki enn hvað Landsbankinn mun geta staðið undir þessu. Kannski 100% og já b.t.w ef eignir Landsbankans standa 100% undir þessu, þurfum við samt að greiða vextina bara svona ef fólk hefur ekki átt sig á því....

Man bara aldrei eftir því að innflutningur hafi hrunið ( innflutningur hefur minnkað vegna þess að kaupmáttur er minni, vegna lélegar efnahagsstjórnar á Íslandi ), sjálfur stend ég í innflutningverslun samt. Eina sem var það komu "væg" gjaldeyrishöft sem jú jú er pirrandi og rétt eftir Bankahrunið leit þetta ekki vel út og já við þurfum lán til að halda uppi sterkum gjaldeyrisvarasjóði til þess að geta varið krónuna. Hefðum samt sakt bara nei hefði gamla frumvarpið haldið velli, Evrópa hefði ekki lokað á okkur ( og við hefðum getað selt fiskinn auðveldlega annars staðar, kannski fyrir lægra verð sem væri samt ágætt í krónum talið ) sem mér finnst samt mjög ósennilegt.

Og mér finnst ósennilegt ennfremur að við myndum eithvað deyja jafnvel þótt að Evrópa myndi loka á okkur. Og já mér finnst ótrúlegt að fólk hafi haldið það í alvörunni að allur innflutningur myndi lokast á okkur og þetta er bara ógeðslegur hræðsluáróður að verstu gerð.

Jæja ég er hættur að trollast. Gleðilegt ár :)




Some0ne
spjallið.is
Póstar: 449
Skráði sig: Fös 11. Okt 2002 01:22
Reputation: 3
Staðsetning: Garðabær
Staða: Ótengdur

Re: "Til hamingju" vaktarar og aðrir landsmenn

Pósturaf Some0ne » Fim 31. Des 2009 18:17

Við áttum og eigum aldrei að samþykkja þessa icesave skuld.

Höfum fullan rétt á því að fara með þetta fyrir dómstóla, þar sem að það eru töluvert meiri líkur á því að okkur verði ekki riðið jafn mikið í rass og með þessu frumvarpi.

Og neitun fjölmiðlalaganna voru náttúrulega ein stór feit mistök.