Jæja, ég er búinn að vera að reyna að grennslast um þessa content server með litlum árangri.
Ég byrjaði á því að fara í Símann í kringlunni og þar tók á móti mér maður sem sagði mér að "vinsælustu" leikirnir væru hýstir hérlendis og ég bara já okei, og pældi ekkert meira í því.
Svo fór ég nú að versla mér leiki á steam og fór þá að spurja aftur útí þetta í þeirri von að fá t.d. GTA: IV á content server. Ég hringdi í þjónustuver símans og þar var mér sagt að senda þeim mail því manneskjan vissi ekki baun í bala. Ég geri það og svo nokkrum dögum síðar fæ ég símhringingu útaf mailinu mínu og mér tjáð að síminn sé ekki með content server. Ég gat hinsvegar ekkert spurt nánar útí það því manneskjan vissi ekkert meir en bara þetta.
Á sama tíma sendi ég mail á vodafone en hef ekki ennþá fengið svar, fékk hinsvegar staðfestingu á að þessu hafi verið komið til skila til réttra aðila. Nokkrum dögum eftir að ég sendi mailið þá kom ég við hjá Vodafone í kringlunni og fólkið þar vissi ekki neitt, hafði ekki einu sinni heyrt talað um Steam. Svo hringi ég í þjónustuverið þeirra og þar tekur á móti mér strákur sem segir að það hafi einmitt verið umræða um þetta þarna hjá þeim og þar hafi einhver sagt að þeir væru
ekki með content server. Enn og aftur þá gat ég ekkert spurt frekar útí þetta því þetta var það eina sem strákurinn vissi.
Nú bíð ég bara eftir svari við e-mailinu mínu frá Vodafone.
Samkvæmt steam þá er Vodafone með content server:
http://store.steampowered.com/stats/content/