Vantar hint með fartölvubatterý
-
Höfundur - Græningi
- Póstar: 28
- Skráði sig: Fim 24. Des 2009 14:04
- Reputation: 0
- Staða: Ótengdur
Vantar hint með fartölvubatterý
Mig vantar að vita hvernig er best að hugsa um fartölvubatterý. Ég kem til með að nota tölvuna slatta heimavið og hef hana þá í sambandi. Hef heyrt að það sé gott að taka hana úr með 40-50% hleðslu og nota hana kannski á 2-3 vikna fresti. Er þá verið að tala um að fullhlaða og fara aftur niður í 40%? Öll svör tengd þessu vel þegin.
Deeeerp
-
- Stjórnandi
- Póstar: 3769
- Skráði sig: Fim 31. Júl 2003 15:25
- Reputation: 132
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Vantar hint með fartölvubatterý
Best að nota hana bara, keyra hana upp og niður. Það skiptir samt ekki neinu máli hvort þú tæmir hana eða hlaðir hana 100% þegar þú ert að nota hana bara sleppa því að vera alltaf að setja í samband og taka úr sambandi.
Ef þú ætlar að vera með tölvuna í sambandi í langan tíma þá skaltu taka rafhlöðuna úr við 40-60% hleðslu og geyma á köldum stað. Svo bara skella henni í af og til og gera það sem ég skrifaði fyrir ofan.
Ef þú ætlar að vera með tölvuna í sambandi í langan tíma þá skaltu taka rafhlöðuna úr við 40-60% hleðslu og geyma á köldum stað. Svo bara skella henni í af og til og gera það sem ég skrifaði fyrir ofan.
-
Höfundur - Græningi
- Póstar: 28
- Skráði sig: Fim 24. Des 2009 14:04
- Reputation: 0
- Staða: Ótengdur
Re: Vantar hint með fartölvubatterý
Pandemic skrifaði:Best að nota hana bara, keyra hana upp og niður. Það skiptir samt ekki neinu máli hvort þú tæmir hana eða hlaðir hana 100% þegar þú ert að nota hana bara sleppa því að vera alltaf að setja í samband og taka úr sambandi.
Ef þú ætlar að vera með tölvuna í sambandi í langan tíma þá skaltu taka rafhlöðuna úr við 40-60% hleðslu og geyma á köldum stað. Svo bara skella henni í af og til og gera það sem ég skrifaði fyrir ofan.
Smá spurning, þú segir að maður eigi að keyra hana upp og niður en sleppa því að vera alltaf að setja í samband og taka úr sambandi, ertu þá að meina að nota sem mest af rafhlöðunni áður en maður setur í samband aftur?
Deeeerp
-
- Stjórnandi
- Póstar: 3769
- Skráði sig: Fim 31. Júl 2003 15:25
- Reputation: 132
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Vantar hint með fartölvubatterý
Já í rauninni, mikið af fólki sem hleypur á milli innstunga og það fer ekkert vel með rafhlöður almennt. Frekar bara að leyfa henni að keyra sig niður í nokkur prósent áður en hún er sett í samband aftur.