Þér datt ekki í hug að ég hefði etv.
gleymt að hringja?
Er að vinna uþb. 11-14 klst á dag, hef unnið 18 af 19 dögum mánaðarins, er að stjórna myndvinnslukeppni á annari síðu og svo skal ekki gleyma að það eru jól að koma á næstu dögum. Allt brjálað að gera! Vill biðjast afsökunar að ég náði ekki að hringja, auðvita er verðið á kjarnanum læst á þig þótt ég hafi uppfært, en fínt fyrir
aðra á síðunni að sjá hvað svona hlutir eru að fara sirka á.
En og aftur, afsakaðu þetta, sjálfur stend ég við mitt og mín tilboð, finnst það samt sýna furðulega lítinn þroska að geta ekki bara sagt "Afsakaðu, gleymdiru ekki að hringja í kvöld, getum við klárað þetta sem fyrst.." í stað þess að koma með dót eins og
Þakka þér fyrir að hringja.... ekki. Kann ekki við það þegar menn hafa tekið tilboði og neglt niður afhendingu að þeir skelli þessu upp aftur til að reyna að kría fram aura í viðbót og svíkja þannig loforð um sölu.
Segir sig sjálft að mitt tilboð gildir ekki lengur, eins og ég hef tekið fram á þræði þínum.
Ég hef átt viðskipti við þó nokkra hér á síðunni, alltaf hafa þau gengið vel og báðir aðilar endað sáttir. Svo er ég ekki þessi týpa sem reynir að "kreista" 500kr út úr 7.000kr vöru, það er bara ekki að fara gerast. Ég kunni vel við þitt tilboð
og var það slegið,
PUNKTUR, var ekki að sækjast eftir meiri pening. En sýnist þú vera ekkert lítið ósáttur við það að ég hafi ekki komist í símann, en fyrsta sem ég hugsa á daginn eftir langan vinnudag á laugardegi er ekki "ahh shit, hringja í kauðann!!".
Þeir sem vilja taka tilboð sín til baka er það vel velkomið, annars ætla ég að reyna að klára allt fyrir jól, er þó að vinna hvern einasta dag fram að aðfangadagskvöldi svo ekki fara í panic mode ef ég kemst ekki í síman, hringið frekar í 661 - 0076, ég heiti Daníel,
ef ég svara ekki hringi ég til baka.