Nariur skrifaði:daremo skrifaði:Síðan ég byrjaði að nota Mac hef ég rekist á fleiri og fleiri apps sem eru bara til á Mac, en ekki á Windows. Flest ef ekki öll þessara apps tengjast "social" byltingunni, twitter, facebook osfrv. Þeas það sem fólk heimtar að nota í dag.
Ég held að við munum sjá persónulegu tölvuna færast æ meira yfir í Mac frekar en Windows á næstu árum, einfaldlega vegna þess að fólkið sem býr til forrit í dag, og á eftir að búa þau til í framtíðinni - notar allt mac.
Ég er að tala um háskólanema í bandaríkjunum og bretlandi. Þetta fólk hefur alltaf stjórnað því hvað sauðurinn notar hverju sinni - og það sem er að gerast núna, er að ca 90% þessa fólks notar Mac, svo einfalt er það. Windows á eftir að deyja hægt og rólega, en mun þó halda áfram að vera nokkuð sterkt á fyrirtækjamarkaði. Mac tekur yfir heima markaðinn eftir nokkur ár og fyrirtækjamarkaðurinn tekur svo við sér á endanum.
Í augnablikinu elska ég Windows XP og get ekki hugsað mér að nota annað dags daglega, en þegar tíminn kemur (2014) mun ég skipta alfarið yfir í Mac, vegna þess að Vista 6 og Vista 6.1 (aka Windows 7) er hörmulegt. Alveg hrein skelfing, ófögnuður, lífvakningur, aftaníossadrusla og kunta. Ég mun skipta yfir í MacOSX þegar líftími XP rennur út. Það er bara ekki betri valmöguleiki til á markaðnum í dag.
7 er svo mikið betra en XP og OSX er svo mikið verra en dos
gefðu stýrikerfum séns áður en þú dæmir þau, sem þú gerðir augljóslega ekki með 7 þar sem þú kallaðir það vista 6.1
WIndows 7 heitir reyndar 'Windows 6.1', og er í rauninni incremental útgáfa af Vista, kannski ættir þú að kynna þér málin aðeins betur.
Ég hef prófað allar alpha, beta og final útgáfur af Vista og Windows 7. Mig langaði að líka vel við þessi stýrikerfi og gaf þeim mjög mikinn séns, en Microsoft gerir manni það einfaldlega ókleift að líka vel við þau.
Windows 7 lítur vissulega betur út, það er kannski nóg fyrir þig. En ég þarf að nota þetta í vinnu.
Ef þessi þráður verður ennþá lifandi annað kvöld skal ég fara ítarlegar út í það hvers vegna Vista6, 6.1 og Win2008/R2 sökka svo ógeðslega mikið.