Það var sko þannig:
Ég er með Dual UV perur í kassanum, grænan UV-reactive vökva í
vatnskælingunni og bláa UV reactive IDE kappla.
Með ljósunum fylgdi nottla takki en ég nennti ekki að mounta takkann í
panelinn framaná því þá þarf ég að bora og vesen. Þannig að ég stakk
bara takkanum út um lítið gat á kassanum og þá gat ég haft takkann á
bakvið frontpanelinn með panelin lokaðan án þess að takkinn klemmdist.
Svo gerðist það óhapp að þegar ég var að slökkva á ljósunum að það rennur
hlífin sem hlífir vírunum og berir vírarnir snerta tölvukassann.
Það kemur nottla FEITUR blossi og það slokknar á tölvunni.
Ég var svo skelfingu lostinn að ég þorði ekki að kveikja aftur á henni
heldur tók ég hana bara úr sambandi og fór að sofa...
Svo í dag þá prufaði ég að starta henni, og viti menn, ekkert að henni!

Boðskapur þessarrar sögu: Jarðtenging raftækja er snilld því hún forðar oft raftækjum frá skemmdum þegar skammhlaup verður!
