ABIT IC7-MAX3 eða ASUS P4C800-E Delux6


Höfundur
Arnar
Staða: Ótengdur

ABIT IC7-MAX3 eða ASUS P4C800-E Delux6

Pósturaf Arnar » Mán 08. Des 2003 16:55

Ég ætla að fá mér p4 3.0GHz og twinx1024-4000pro minni frá corsair, info um það hér

Svo get ég ekki ákveðið upp á milli IC7-MAX3 eða ASUS P4C800-E Deluxe.

Eina sem aftrar mér frá abit borðinu er reyndar þessi vdimm bug. Myndi ég ekkert ná að oc mikið vegna hans eða?
Ég hef alltaf verið ABIT fan, en þessi bug.. ef ég næ ekki að oc eins mikið og ég ætti vegna hans, vil ég þetta móðurborð ekkert sérstaklega.

Hvaða móðurborð ætti ég að velja með tilliti til mesta oc mögulegt með þessum hlutum :)




Höfundur
Arnar
Staða: Ótengdur

Pósturaf Arnar » Mán 08. Des 2003 16:59

Með 500ddr minninu ætla ég að eltast við að ná 250fsb :)
sem væri þá 3750mhz á 1:1 divider, efa samt að örgjörvinn nái því, en alltaf gott að hafa von :)
Hérna eru upplýsingar hvernig Anandtech gekk með þetta minni: http://www.anandtech.com/memory/showdoc.html?i=1867&p=3
250fsb á 2.5-3-4-6, 2.75v sem er nokkuð ágætt held ég.


Ég er með astetek waterchill, þannig vona að hitinn verði ekkert vandamál :)[/quote]
Síðast breytt af Arnar á Mán 08. Des 2003 17:07, breytt samtals 1 sinni.




Höfundur
Arnar
Staða: Ótengdur

Pósturaf Arnar » Mán 08. Des 2003 17:05

Úps, ætlaði að breyta hinum :roll: , ýtti óvart á tilvitnun en ekki breyta :D



Skjámynd

Fletch
Stjórnandi
Póstar: 1327
Skráði sig: Sun 22. Des 2002 00:14
Reputation: 108
Staðsetning: MHz=MHz+1
Staða: Ótengdur

Pósturaf Fletch » Mán 08. Des 2003 17:20

vdimm málið á max borðinu er bara ef þú stillir minnið á 2.9 3.0 3.1 eða 3.2V, 2.8 virkar t.d. fínt, ef ég man rétt supportar asus borðið ekki hærra en 2.8Vdimm...

Og þú getur lagað vdimm buggið, sjáðu hér


AMD Ryzen 5700X3D * Nvidia GTX 4080s * Asus TUF mATX * 64GB DDR4
Jensbo D31* Corsair PSU1000w * MSI 32" MPG 321URX 4k OLED


Höfundur
Arnar
Staða: Ótengdur

Pósturaf Arnar » Mán 08. Des 2003 17:24

Sýnist þetta full "risky"

hittast og gera þetta saman í janúar? :P

En Anandtech keyrði þetta minni á 500ddr á cas 2.5..... á 2.75v

ætti þetta þá ekki að rétt sleppa fyrir ABIT móbóið, þar sem það er eekki gallað fyrr en 2.9v
Efa að ég nái nái hærra en 250fsb :)
Þegar ég er kominn allaleið upp í 250fsb er örrinn í 3750mhz.
Ætti ekki að vera "safe" þá að skella sér á ABIT borðið?



Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6574
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Reputation: 356
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf gnarr » Mán 08. Des 2003 17:33

Fletch skrifaði:vdimm málið á max borðinu er bara ef þú stillir minnið á 2.9 3.0 3.1 eða 3.2V, 2.8 virkar t.d. fínt, ef ég man rétt supportar asus borðið ekki hærra en 2.8Vdimm...

Og þú getur lagað vdimm buggið, sjáðu hér


þetta fix virkar ekki með 1:1 divider :p


"Give what you can, take what you need."

Skjámynd

Fletch
Stjórnandi
Póstar: 1327
Skráði sig: Sun 22. Des 2002 00:14
Reputation: 108
Staðsetning: MHz=MHz+1
Staða: Ótengdur

Pósturaf Fletch » Mán 08. Des 2003 17:33

:wink:

Færð varla borð sem er betra til að oc'a en max3 borðið...

Sjaldnast sem maður þarf svona hátt vdimm og fæst móðurborð styðja hærra en 2.8vdimm

Fletch


AMD Ryzen 5700X3D * Nvidia GTX 4080s * Asus TUF mATX * 64GB DDR4
Jensbo D31* Corsair PSU1000w * MSI 32" MPG 321URX 4k OLED

Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6574
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Reputation: 356
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf gnarr » Mán 08. Des 2003 17:36

það er reyndar satt. ég mydni taka max3 hiklaust. líka vegna þess að það hefur 4 fasa rafmagn.


"Give what you can, take what you need."

Skjámynd

Fletch
Stjórnandi
Póstar: 1327
Skráði sig: Sun 22. Des 2002 00:14
Reputation: 108
Staðsetning: MHz=MHz+1
Staða: Ótengdur

Pósturaf Fletch » Mán 08. Des 2003 17:37

gnarr skrifaði:þetta fix virkar ekki með 1:1 divider :p


Fixið er til að laga 2.9 3.0 og 3.1Vdimm flökt, en ekki dividera.

En óþarfi að hafa miklar áhyggjur af þessu, við erum að tala um hluti sem eru way out-of-spec fyrir vinnsluminni, flest vinnsluminni eru fyrir 2.5 eða 2.6 V
Þarft ekki svona hátt vdimm nema ætla yfirklukka minnið MJÖG mikið (ábyrgðin á minninu fer ef þú stillir vdimm svona hátt) og það er hægt að laga þetta...

So why worry ?

Fletch


AMD Ryzen 5700X3D * Nvidia GTX 4080s * Asus TUF mATX * 64GB DDR4
Jensbo D31* Corsair PSU1000w * MSI 32" MPG 321URX 4k OLED

Skjámynd

Damien
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 389
Skráði sig: Lau 31. Maí 2003 23:07
Reputation: 0
Staðsetning: Ak-X
Staða: Ótengdur

Pósturaf Damien » Mán 08. Des 2003 19:49

Ég er að fara að selja mína Corsair TWINX PC3200LL CAS:2-3-2-6
Styður 2.80v -þá hættir corsiar að ábyrgjast minnið...

Ég er með Asus P4P800 Deluxe og ég fæ þetta ekki til að vera stöðugt...
:?


Damien

Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6574
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Reputation: 356
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf gnarr » Mán 08. Des 2003 21:20

hvernig fara þeir að því að sjá hvort maður hefur sett minnið yfir 2.8v ?


"Give what you can, take what you need."

Skjámynd

Fletch
Stjórnandi
Póstar: 1327
Skráði sig: Sun 22. Des 2002 00:14
Reputation: 108
Staðsetning: MHz=MHz+1
Staða: Ótengdur

Pósturaf Fletch » Mán 08. Des 2003 21:22

gnarr skrifaði:hvernig fara þeir að því að sjá hvort maður hefur sett minnið yfir 2.8v ?


:wink:
Þú ert tengdur við lygamæli þegar þú kemur með minnið og segir að það sé bilað!

Fletch


AMD Ryzen 5700X3D * Nvidia GTX 4080s * Asus TUF mATX * 64GB DDR4
Jensbo D31* Corsair PSU1000w * MSI 32" MPG 321URX 4k OLED

Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6574
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Reputation: 356
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf gnarr » Mán 08. Des 2003 21:26

haha :D góður. eru þeir ekkert með eitthvað í minniskubbnum sem að gerir hann grænann á litinn eða eitthvað þannig þegar maður setur hann í 2.8 ? annars sé ég ekki hvernig þeir ætla að fara að því að fella ábyrgðina níður.


"Give what you can, take what you need."


Höfundur
Arnar
Staða: Ótengdur

Pósturaf Arnar » Mán 08. Des 2003 22:12

Ég er svona nokkurn veginn búinn að ákveða mig:
IC7-MAX3 móðurborð, P4 3.0Ghz og twinx1024-4000pro minni frá corsair.

Verð svo með asetek waterchill í þessu rig-i :)

Vonum svo bara að þetta yfirklukkist eitthvað



Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6574
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Reputation: 356
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf gnarr » Mán 08. Des 2003 22:16

ég gíska á 4.2-4.3GHz með 265 í fsb


"Give what you can, take what you need."


Höfundur
Arnar
Staða: Ótengdur

Pósturaf Arnar » Mán 08. Des 2003 22:29

Er samt ekki örgjörvin farinn að takmarka þetta þegar það er komið svo hátt?
Væri mjög gaman ef ég næði þessu í 250fsb, 3750mhz 1:1 divider.
Þá fyrst verður maður ánægður :)

Hversu heppinn maður er með, hverning eintakið manns yfirklukkast.



Skjámynd

Fletch
Stjórnandi
Póstar: 1327
Skráði sig: Sun 22. Des 2002 00:14
Reputation: 108
Staðsetning: MHz=MHz+1
Staða: Ótengdur

Pósturaf Fletch » Mán 08. Des 2003 22:40

ekki setja bara markið of hátt, þá verðuru fúll ef þú nærð því ekki ;)

ég hef ekki séð neinn fara yfir 4 GHz ennþá án þess að vera kæla í 0°C og undir...

miðað við venjulega vatnskælingu segi ég að þetta fari í svona 3.4-3.8 GHz hjá þér

Fletch


AMD Ryzen 5700X3D * Nvidia GTX 4080s * Asus TUF mATX * 64GB DDR4
Jensbo D31* Corsair PSU1000w * MSI 32" MPG 321URX 4k OLED

Skjámynd

elv
Of mikill frítími
Póstar: 1980
Skráði sig: Sun 23. Mar 2003 21:53
Reputation: 19
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf elv » Mán 08. Des 2003 23:20

3800 ef hann er heppin.
3400--3600 er líklegra.



Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6574
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Reputation: 356
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf gnarr » Mán 08. Des 2003 23:48

ég er nú með p4 1.6GHz í 2.13GHz með retail kælingunni og hann fer í 49° í fullri vinnslu. eina ástæðan fyrir því að ég keyri hann ekki hraðar er að drasl minni mitt ræður ekki við það (DDR266). annar næði ég honum líklega 2-300MHz hærra án annarrar kælingar.

ég er að ná 33% OC og gæti líklega náð uppí 40% ef ég væri með DDR333, á retail kælingu... svo að ég held að ég myndi ná honum talsvert hærra með vatnskælingu tildæmis. kanski 45-50% OC.

svo ég held að hann nái að OC 3GHz aðeins meira en 15%.


"Give what you can, take what you need."

Skjámynd

Fletch
Stjórnandi
Póstar: 1327
Skráði sig: Sun 22. Des 2002 00:14
Reputation: 108
Staðsetning: MHz=MHz+1
Staða: Ótengdur

Pósturaf Fletch » Mán 08. Des 2003 23:56

athugaðu að 3.0 GHz örri er nokkuð nálægt hámarks tíðni sem þessi lína er hönnuð fyrir... örgjörvar sem eru ofarlega í framleiðslulínu eru alltaf verri örgjörvar til að yfirklukka... t.d. nýju 800 FSB örrarnir frá Intel, 2.4 GHz til 3.2GHz... augljóslega eru allir líkur á að 2.4 muni yfirklukkast mest og 3.2 GHz minnst (prósentulega)...

Ef hann næði í 3.6 GHz (20% yfirklukkun) væri það nokkuð gott.. Til að fara mikið hærra þarf maður annaðhvort að vera heppin með eintak af örgjörva, eða hafa nokkra örgjörva til að prófa og finna einn góðan.

Fletch


AMD Ryzen 5700X3D * Nvidia GTX 4080s * Asus TUF mATX * 64GB DDR4
Jensbo D31* Corsair PSU1000w * MSI 32" MPG 321URX 4k OLED


Höfundur
Arnar
Staða: Ótengdur

Pósturaf Arnar » Mán 08. Des 2003 23:59

heheh, ég geri mér samt alveg grein fyrir að það eru litlar líkur að ég nái 3700mhz..

en ég hlýt samt að ná að oc e-ð.. sem er náttúrlega ágætt :)



Skjámynd

Bendill
spjallið.is
Póstar: 415
Skráði sig: Lau 25. Okt 2003 03:06
Reputation: 0
Staðsetning: Mosfellsbær
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Bendill » Mán 15. Des 2003 16:42

Þið sjáið hvernig þetta er hjá mér. Ég lagði af stað að ná 2.4Ghz að minnsta kosti, en þegar ég náði ekki að keyra stöðugt á því þá varð ég svolítið skúffaður. En það lagaðist þegar ég reiknaði út hversu mikið þetta var í prósentum :D
Ekki stefna hart á einhverja fasta tölu, ekki nema eitthvað í léttu sprelli, því þá verða vonbrigðin ennþá súrari. :8)


OC fanboy


Höfundur
Arnar
Staða: Ótengdur

Pósturaf Arnar » Mán 15. Des 2003 16:55

Ég er svosem ekki að stefna að neinni tölu, bara koma þessu eins hátt og það getur. Það sem ég pantaði var:
ABIT IC7-MAX3
P4c 2.8Ghz
1024Mb kit DDR Gold PC4000 Dual Channel - OCZ


Ef móbóið ætlar að beila á mér með þessu vdimm buggi ætli ég skipti þá ekki yfir í ASUS P4C800-E Deluxe.

Vil bara gefa ABIT séns, þar sem max3 er alveg loaded með features og ég smá abit fan :)



Skjámynd

Fletch
Stjórnandi
Póstar: 1327
Skráði sig: Sun 22. Des 2002 00:14
Reputation: 108
Staðsetning: MHz=MHz+1
Staða: Ótengdur

Pósturaf Fletch » Mán 15. Des 2003 19:13

max vdimm á asus borðinu er 2.8V, þannig að þú þarft að volt mod'a það móðurborð ef þú ætlar að fara hærra, en ég held að 2.8V sé nóg fyrir þig, er þetta minni ekki 2.7 V ? ;)

Fletch


AMD Ryzen 5700X3D * Nvidia GTX 4080s * Asus TUF mATX * 64GB DDR4
Jensbo D31* Corsair PSU1000w * MSI 32" MPG 321URX 4k OLED


Höfundur
Arnar
Staða: Ótengdur

Pósturaf Arnar » Mán 15. Des 2003 19:32

Það er 2.8v

Og ábyrgðin fer upp í 3.0v