Þú átt ekki að geta gert clean install nema vera með stýrikerfi undir en
þó hlýtur það að vera hægt þar sem þú getur notað upgrade úr XP en þá
missirðu öll gögn þannig að það er varla neitt annað en clean install, eða hvað?
Ef þú upgradear úr Vista þá áttu ekki að missa gögnin þín.
Ég man nú með Windows Vista upgrade diskinn þá var ekkert mál að gera clean install.
Maður fór bara í uppsetningaferlið formataði og allt það og þegar hún bað um licence þá sagði maður insert licence key LATER síðan þegar allt var komið upp og hún bað um licence innan 3 daga eða hvað það er þá vildi hún ekki taka upgrade lykilinn þá setti maður bara Vista diskinn í aftur og upgradeaði það yfir sjálft sig og setti inn lykilinn í uppsetningunni bingo og ekkert mál

he he smá klúður í Vista en ég veit ekki hvort W7 er þannig.