Tölvuviðgerðarverkfæri , hvar fær maður slíkt ?

Allt utan efnis
Skjámynd

Höfundur
BjarniTS
Vaktari
Póstar: 2266
Skráði sig: Fim 06. Ágú 2009 01:51
Reputation: 3
Staða: Ótengdur

Tölvuviðgerðarverkfæri , hvar fær maður slíkt ?

Pósturaf BjarniTS » Mið 02. Sep 2009 18:02

Vantar verkfærasett til að gera við fartölvur og borðtölvur.
Búinn að sjá aðeins hjá Símabæ af þessu , og svolítið á computer.is en það lýst mér ekki alveg nógu vel á.
Er að leita af alvöru stöffi.
Endilega bendið mér á hvar slíkt er að fá , og , eða ef að einhver á slíkt og er ekki að nota það má hinn sami hafa samband í Pm:


http://cgi.ebay.com/32-PIECE-COMPUTER-R ... 2715wt_924

Er að leita af einhverju í þessa áttina.
Hugmyndir líka vel þegnar.


Nörd


SteiniP
Bara að hanga
Póstar: 1573
Skráði sig: Mán 16. Jún 2008 21:54
Reputation: 1
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Tölvuviðgerðarverkfæri , hvar fær maður slíkt ?

Pósturaf SteiniP » Mið 02. Sep 2009 18:19

Nákvæmlega þessi svarta taska var til í start eða tölvuvirkni fyrir löngu.



Skjámynd

rottuhydingur
has spoken...
Póstar: 191
Skráði sig: Mið 01. Júl 2009 18:41
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Tölvuviðgerðarverkfæri , hvar fær maður slíkt ?

Pósturaf rottuhydingur » Mið 02. Sep 2009 18:41

att.is




max567
Fiktari
Póstar: 73
Skráði sig: Mán 19. Jan 2009 22:41
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Tölvuviðgerðarverkfæri , hvar fær maður slíkt ?

Pósturaf max567 » Mið 02. Sep 2009 18:51




Skjámynd

Höfundur
BjarniTS
Vaktari
Póstar: 2266
Skráði sig: Fim 06. Ágú 2009 01:51
Reputation: 3
Staða: Ótengdur

Re: Tölvuviðgerðarverkfæri , hvar fær maður slíkt ?

Pósturaf BjarniTS » Mið 02. Sep 2009 18:58

Strákar já . .
Þetta er satt . .
ég er samt ekki að fýla þarna 1500 kr settið.
það er allt of lítið í því.
Manhattan Professional Briefcase Tool Kit
Þetta er á att.is og ég digga þetta.
spurning hvort að maður finni svona ódýrara að utan.


Nörd


SteiniP
Bara að hanga
Póstar: 1573
Skráði sig: Mán 16. Jún 2008 21:54
Reputation: 1
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Tölvuviðgerðarverkfæri , hvar fær maður slíkt ?

Pósturaf SteiniP » Mið 02. Sep 2009 19:31

Hvað fleira þarftu?
Skrúfjárn dugar meira og minna í flestallt tölvuvesen.



Skjámynd

KermitTheFrog
Kóngur
Póstar: 4273
Skráði sig: Mán 07. Júl 2008 23:32
Reputation: 67
Staða: Ótengdur

Re: Tölvuviðgerðarverkfæri , hvar fær maður slíkt ?

Pósturaf KermitTheFrog » Mið 02. Sep 2009 21:03

Það sem ég hef þurft í mínar tölvuviðgerðir:

1. Skrúfjárn
2. Skrúfjárn
3. Skrúfjárn
4. ...
5. Profit




AntiTrust
Stjórnandi
Póstar: 6365
Skráði sig: Þri 19. Ágú 2008 20:58
Reputation: 168
Staða: Ótengdur

Re: Tölvuviðgerðarverkfæri , hvar fær maður slíkt ?

Pósturaf AntiTrust » Mið 02. Sep 2009 21:06

Ég er nú reyndar ósammála því, skrúfjárn er ekki nema helmingurin af því sem maður notar, tala nú ekki um þegar maður er að rífa í sundur lappa.




JReykdal
FanBoy
Póstar: 714
Skráði sig: Lau 04. Des 2004 18:59
Reputation: 176
Staða: Ótengdur

Re: Tölvuviðgerðarverkfæri , hvar fær maður slíkt ?

Pósturaf JReykdal » Fim 03. Sep 2009 21:46

AntiTrust skrifaði:Ég er nú reyndar ósammála því, skrúfjárn er ekki nema helmingurin af því sem maður notar, tala nú ekki um þegar maður er að rífa í sundur lappa.


Þá notarðu mjókjöftu líka.

:)


Vinsamlegast athugið: Skoðanir mínar sem birtast hér eru mínar og mínar einar en ekki
vinnuveitenda minna,vina og vandamanna, gæludýra og húsgagna nema annað sé tekið fram.

Skjámynd

lukkuláki
Besserwisser
Póstar: 3089
Skráði sig: Fös 30. Nóv 2007 19:06
Reputation: 65
Staða: Ótengdur

Re: Tölvuviðgerðarverkfæri , hvar fær maður slíkt ?

Pósturaf lukkuláki » Fim 03. Sep 2009 22:03

Þarft aðallega bara 2 góð stjörnuskrúfjárn (lítið og stórt)
1 flatt skrúfjárn til að spenna plastið upp.
1 Skrúfjárnstopp eða nut driver man ekki hver stærðin er 4,5mm.? (Til að losa festingarnar sem halda skjáköplum og paralell á fartölvum)
Fínt að hafa fleiri verkfæri við hendina en ekki það sem er í þessum töskum það er bara djók hvað þetta er mikið rusl og þú hefur ekkert með chip extractor, skrúfu haldara eða pick up tool, grínlaust þú kemur aldrei til með að þurfa að nota það hef séð þetta og þetta er rusl rusl rusl.

Það getur verið ágætt að eiga torx sett fyrir litlu torx skrúfurnar sem sumar tölvur eru komnar með.

Svo myndi ég kaupa PSU tester

Ég er að gera við tölvur allan daginn og nota mest bara 2 lítil skrúfjárn, stjörnu og flatt í fartölvurnar en stærri stjörnujárnið fyrir PC.


If you think patience is a virtue, try surfing the net without high speed Internet.


AntiTrust
Stjórnandi
Póstar: 6365
Skráði sig: Þri 19. Ágú 2008 20:58
Reputation: 168
Staða: Ótengdur

Re: Tölvuviðgerðarverkfæri , hvar fær maður slíkt ?

Pósturaf AntiTrust » Fim 03. Sep 2009 22:14

Ég keypti mér Belkin repair kit á sínum tíma, svipað og þetta, nema í mínu er líka lítil ryksuga, þrýstiloftsbrúsi, PSU tester, lítið 6skipt skrúfubox með allskonar skrúfum og jumperum.

Mynd

Ég hef notað flest í töskunni ef ekki allt, þótt það sé sumt sem maður gæti alveg bjargað sér án, en er þæginlegt að hafa.