mind skrifaði:Depill skrifaði:Þú kemur með fullyrðingu að öll samkeppni er vond
Þetta er rangt hjá þér. Ég skora á þig að sanna þetta!
Sem sagt þú ert kominn í samkeppni um hver hefur rétt fyrir sér ? ( Aftur b.t.w ( skilg. á hræsni b.t.w ) )
Og já aftur ég hef rétt fyrir mér
mind skrifaði:Svo það sé enginn vafi þá vil ég að það komi skýrt fram að ég tel samkeppni og einokun vondan hlut.
Kommon lesa þráðinn áður en þú ferð að reyna drulla yfir mig.
mind skrifaði:Ég kom einmitt með versta dæmið sem ég fann til að afsanna fullyrðinguna þína! Þú afneitar þeim rökum en býður ekki uppá nein rök í þeirra stað. Væri ekki rökréttara að geta verið sammála um að það sé til vond samkeppni ?
Aftur, þú getur eiginlega ekki verið á móti samkeppni. Það er samkeppni í öllu eins og ég færði rök fyrir, ég sagði til dæmis í skóla, í auðvita öllum hópíþróttum, í vinnunni ( á milli vinnufélaga, hver getur gert þetta best ). Matarboð, hver heldur besta matarborðið og svo endalaust.
Ég skal bara játa það að ógeðslega langa þráðinn sem þú skrifaðir eftir ógeðslega langa þráðinn hjá mér las ég ekki, heldur las stutta þráðinn. Sorry hef ekki svona mikinn áhuga á sanna fyrir þér hversu rangt þú hefur fyrir þér. En komdu með spurninguna í stuttum þræði og ég skal eyða tímanum mínum í að svara honum
mind skrifaði:Á núverandi tækni/upplýsingaöld ætti samvinna að vera betri kostur fyrir mannkynið en samkeppni, mannkynið í heild sinni.
Núverandi kerfi byggir á samkeppni.
Ef fólk er ekki tilbúið fyrir möguleikanum á því að eitthvað betra geti verið til þá afneitar það öllum möguleikum sem breyta núverandi stöðu. Semsagt núverandi staða er best þar af leiðandi er besta mögulega kerfið í notkun.
Þú gerir ráð fyrir því að mannkynið sé komið á endapuntki í þróun tækni. Ég er að segja að við erum bara að byrja, ég er að segja að það er svo margt spennandi sem þarf að vera mikill hvati í til að gera sem á eftir að gerast að ég bara get eiginlega ekki komið huganum mínum í kringum það.
Það er til samvinna í samfélaginu, en samvinnan byggist í raun og veru á því að byggja upp samvinnu til þess að geta verið betur staddur í samkeppni við aðra.
Ég held ( og þú átt svo sannarlega eftir að sanna fyrir mér annað, Venus Project eru verulega léleg hugmynd sem gerir ráð fyrir stöðnun að mínu mati ) frjáls markaðs samkeppnis umhverfið sem við búum við núna auki líkurnar á þróun meiri en aðrar. Og ég held að þróun veiti betra samfélag, ekki vera eins og þú heldur. Ég held að þegar ein tækni deyr, og störf deyja, fæðist önnur. Ég held að eins manns dauði sé annars manns brauð. Það er ástæðan fyrir því að ég og fjölskyldan mín höfum alltaf verið í rekstri sjálf....
mind skrifaði:Hvatningin kemur í formi þess að við sækjumst eftir viðurkenningu. Það er ekki nauðsynlegt að gera eitthvað á hlut annars til að vera viðurkenndur.
Eðli rándýra er lifa. Rándýr drepa önnur dýr til að lifa. Í náttúrunni er sjaldgæft að dýr drepi meira en þau þurfa til matar. Hjá manninum er það hinsvegar mjög algengt.
Hér komum við aftur á þann punkt, þú ert í raun og veru að segja að við eigum að vera í samkeppni við það að sækjast eftir hvatningu. En í samvinnuhópi þar sem væntanlega einn "aðeins jafnari" einstaklingur ákveður hvað hver gerir ( væntanlega, samvinnubúskapur virðist alltaf rekja af sér aðeins jafnari einstalinga ) sem velur hverjir eiga möguleikann á því að verða viðurkenndir.
Frjáls markaður segir, þið skuluð öll reyna að fá viðurkenningu, þið munið fá viðurkenningu ykkar í formi vöruskiptagjaldmiðils ( peninga ) og frægðar og tækifæri til að halda áfram í því sem ykkur finnst skemmtilegt að gera ( vonandi fannst þér skemmtilegt að gera það sem þú fékkst viðurkenningu fyrir ).
Frjáls markaður hvetur alla til að vera frábæra. Survival of the fittest, kill or be killed.....
Æðislegasta sagan ( sem flest allir þurfa því miður að lesa sem skyldulesningu í Ensku í framhaldsskóla sem virðist oftast gera hana "leiðinlega" ) um hvernig samvinna goes wrong er Animal Farm. Ef þú hefur ekki lesið hana, lestu hana.
Og já, minkur, refur og miklu miklu miklu fleiri dýr. Og það sem ég er að segja er að við erum ógeðslegt dýr, við erum með ógeðslegt eðli ( svona skilgreiningin á ógeðslegu í samfélaginu í dag allavega, sem er mjög kaldhæðnisleg ).
mind skrifaði:Samvinna hefur aldrei verið prufuð á heimsvísu. Við höfum einungis búið við samkeppni á heimsvísu. En þú virðist samt vera tilbúinn að fullyrða að hún gangi ekki þó þú hafir engin rök sem styðja það.
Lengi var hlegið og fullyrt við fólk sem reyndi að smíða vélar sem gætu flogið að það væri ekki hægt. Hver er raunin í dag ?
Fjölskylda er samvinna, ekki hefur það reynst okkur svo illa.
Sorry varð eiginlega að bæta þessu við. Flugfélagar þróuðust áfram vegna samkeppni, samkeppnin um að verða bestur og komast sem mest á sem styðstum tíma, ömurleg rök. Fjölskylda er meðfædd, og ég hef ekki sagt að samvinna virki aldrei, en samvinna er yfirleitt til að keppa við aðra. Ég keppi jafnvel innbyrðisfjölskyldu í mjög mörgu og svo keppumst við í raun og veru við aðrar fjölskyldur um að gera betur en aðrar. ( U get it .... ).
Og já plís lestu Animal Farm, hún lýsir í raun og veru afhverju þetta virkar ekki. Það er alltaf einhver sem er jafnari ( mannlegt eðli ). Enda finnst mér það mjög fyndið ( svo ég geri þetta pólitíkst ) þegar "jafnaðar" menn komast til stjórna hvað það lýður stuttur tími þangað til að flest allir þeirra eru orðnir soldið vel "jafnir"