Tölvutek - gróft svindl?

Allt utan efnis
Skjámynd

Höfundur
arnarj
Gúrú
Póstar: 573
Skráði sig: Mán 28. Okt 2002 22:40
Reputation: 8
Staðsetning: 113 Reykjavík
Staða: Ótengdur

Tölvutek - gróft svindl?

Pósturaf arnarj » Lau 13. Jún 2009 11:30

Góðan daginn,

Ég get ekki orða bundist lengur yfir svindli sem ég hef orðið vitni að hjá Tölvutek. Ég fór sl. laugardag að skoða tölvu sem vinur minn var kominn á að kaupa. Það var Packard Bell tölva sem kostaði 129.900

Þessi tölva:
http://www.tolvutek.is/product_info.php ... s_id=19809

Örgjörvi - Intel Core 2 Duo T3400 örgjörvi, 2.16GHz

Vandamálið við þetta er að T3400 eru ekki Core 2 Duo. Ég lét starfsmann vita af þessu, hann fór bakatil með auglýsinguna og kom fljótlega aftur og sagði þetta vera mistök. Þarf varla að segja frá því að við fórum út án þess að kaupa vélina.

Eins og sjá má á eftirfarandi link eru Dual Core örrarnir ekki það sama og Core 2 Duo, þeir eru t.d. með minna cache, mun hægvirkari, ódýrari,orkufrekari og áfram mætti telja.
http://processorfinder.intel.com/Detail ... Spec=SLB3P

Ég vil taka fram að það voru amk 2 aðrar vélar í versluninni sem auglýstar voru á sama hátt með Core 2 Duo sem ég athugaði og skv stýrikerfinu var Dual Core í þeim báðum eins og Packard Bell vélinni.

Í gær fimmtudag var ekki búið að lagfæra þetta í versluninni skv. félaga mínum sem kíkti við aftur, það stendur enn að hún sé Core 2 Duo. Hvað finnst ykkur um þetta? Hvað ætli margir hafi verið "plataðir" í að kaupa vélar hjá þeim undir fölsku flaggi?

Eftir svona reynslu spyr maður sig líka hvort svona svindl eigi sér stað á fleiri stöðum þar sem fæstir gera sér grein fyrir muninum.



Skjámynd

johnnyb
Nörd
Póstar: 100
Skráði sig: Fös 12. Jún 2009 11:49
Reputation: 1
Staða: Ótengdur

Re: Tölvutek - gróft svindl?

Pósturaf johnnyb » Lau 13. Jún 2009 11:54

Reyndar í dag eru næstum allir örgjörvar í tölvum Dual core eins og Celeron dual core, Pentium dual core, centrino dual core síðan kemur Core 2 Duo örrinn og síðan penryn held ég
allt eru þetta dual core örgjörvar í nýjum vélum í dag en einn af þeim heitir Core 2 Duo og það nafn er örugglega þekktasta nafnið af þeim því flestir tala um core 2 duo þó að þeir séu að meina pentium dual core
enda er mikið af örgjörvum til 2.0ghz centrino örri er mikið aflmeiri en 2.0ghz pentium örri þó að þeir séu báðir 2.0 og báðir dualcore

en það er samt ekki gott ef að tölvuverslun sé að auglýsa tölvur með core 2 duo örgjörva þegar hún er í raun með slöppum pentium örgjörva þó að sá örri sé Dual core [-X


CIO með ofvirkni


AntiTrust
Stjórnandi
Póstar: 6365
Skráði sig: Þri 19. Ágú 2008 20:58
Reputation: 168
Staða: Ótengdur

Re: Tölvutek - gróft svindl?

Pósturaf AntiTrust » Lau 13. Jún 2009 12:14

johnnyb skrifaði:Reyndar í dag eru næstum allir örgjörvar í tölvum Dual core eins og Celeron dual core, Pentium dual core, centrino dual core síðan kemur Core 2 Duo örgjörvinn og síðan penryn held ég
allt eru þetta dual core örgjörvar í nýjum vélum í dag en einn af þeim heitir Core 2 Duo og það nafn er örugglega þekktasta nafnið af þeim því flestir tala um core 2 duo þó að þeir séu að meina pentium dual core
enda er mikið af örgjörvum til 2.0ghz centrino örri er mikið aflmeiri en 2.0ghz pentium örri þó að þeir séu báðir 2.0 og báðir dualcore

en það er samt ekki gott ef að tölvuverslun sé að auglýsa tölvur með core 2 duo örgjörva þegar hún er í raun með slöppum pentium örgjörva þó að sá örri sé Dual core [-X


Centrino er ekki örgjörvi, heldur sett af powersaving móðurborðschipseti, Mobile CPU og Wifi Korti. Þeas ekki til neitt sem heitir Centrino örgjörvi. Það eru mismunandi örgjörvar eftir því hvaða Centrino platform er á tölvunni, Carmel, Sonoma, Napa, Santa Rosa, Montevin og nú nýjasta, Calpella. Í eldri vélum voru Pentium M algengir í Centrino settinu, í dag eru það annaðhvort Penryn, Clarksfield eða Arrandale. Í litlu vélunum er svo Silverthorne (Atom).



Skjámynd

mind
1+1=10
Póstar: 1117
Skráði sig: Fim 12. Des 2002 09:21
Reputation: 29
Staða: Ótengdur

Re: Tölvutek - gróft svindl?

Pósturaf mind » Lau 13. Jún 2009 13:16

Ég hef alltaf vorkennt fólki sem þarf að kaupa tölvur og tengda hluti án þekkingar til þess. Stundum held ég að þessi bransi sé verri en bílabransinn hvað það varðar, í bílabransanum kemst maður yfirleitt á endanum að því að svindlað var á manni og getur leitað réttar síns og forðað sér og sínum frá því að versla við viðkomandi fyrirtæki/einstakling aftur. Í tölvubransanum er hinsvegar algjörlega óvíst að nokkurn tímann komi í ljós að örgjörvinn þinn sé í lægsta afkastaflokkinum í stað þess hæsta eða að eiginlega allir tölvuskjáir sem eru seldir geta ekki einusinni sýnt alla raunliti og því gott sem ónothæfir í ljósmynda/vídeóvinnslu í atvinnuskyni og svo mætti lengi telja.

Það er hinsvegar ekkert nýtt að stundum rati vitlausar upplýsingar í lýsingar á tölvuhlutum, enda eru flestar auglýsingar og annað efni birt með fyrirvara um prentvillur og breytingar án fyrirvara.
Auk þess er búist við því í öllum vöruviðskiptum að kaupandi sé búinn að kynna sér vöruna áður en kemur að viðskiptunum sjálfum.

Að vitlausar upplýsingar rati í þetta finnst mér ekki svo hræðilegt. Að fyrirtækið eða starfsmenn leiðrétti ekki villu þegar þeim er sérstaklega bent á hana vekur hinsvegar upp fullt af spurningum varðandi gæði fyrirtækisins og metnað starfsmanna.

Það sem verður líka merkilegt við þetta er að án efa mun einhver starfsmaður þar sjá þessa grein þína og láta leiðrétta upplýsingarnar þar sem þetta er núna miklu stærra mál(það er búið að skrifa um það). Það segir hinsvegar ekkert að hinar upplýsingarnar verði leiðréttar líka þar sem enginn sérstakur þráður er til um þær til að fylgjast með :)




Andriante
spjallið.is
Póstar: 407
Skráði sig: Lau 04. Jún 2005 22:39
Reputation: 2
Staða: Ótengdur

Re: Tölvutek - gróft svindl?

Pósturaf Andriante » Lau 13. Jún 2009 13:29

Láta lögreglu vita af þessu bara. Ég fann það alltaf á mér að tölvutek væri drasl búð eins og tölvulistinn, bt etc..



Skjámynd

Sydney
1+1=10
Póstar: 1108
Skráði sig: Lau 29. Mar 2008 19:26
Reputation: 56
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Tölvutek - gróft svindl?

Pósturaf Sydney » Lau 13. Jún 2009 15:53

Andriante skrifaði:Láta lögreglu vita af þessu bara. Ég fann það alltaf á mér að tölvutek væri drasl búð eins og tölvulistinn, bt etc..

Byrjuðu reyndar vel, en það gerði TL líka...

Nú er bara Kísildalurinn og Tölvutækni málið.


Gigabyte X570 Aorus Ultra | Ryzen 9 5900X | Corsair Vengeance RGB Pro 32GB 3200MHz CL16 | Fractal Design Define S
Aorus Xtreme RTX 2080 Ti | 500GB Samsung 980 Pro | Corsair AX860 | ROG Swift PG279Q
Ducky YOTM | Glorious Model O | Sennheiser HD650 | Thrustmaster Warthog HOTAS
Thinkpad X1 Yoga 2nd Gen OLED


vesley
Kóngur
Póstar: 4266
Skráði sig: Mán 08. Sep 2008 19:39
Reputation: 196
Staðsetning: við talvuna
Staða: Ótengdur

Re: Tölvutek - gróft svindl?

Pósturaf vesley » Lau 13. Jún 2009 15:55

Andriante skrifaði:Láta lögreglu vita af þessu bara. Ég fann það alltaf á mér að tölvutek væri drasl búð eins og tölvulistinn, bt etc..



lögreglu vita af þessu ???... það væri fáránlegt .. ég hef verslað mikið við tölvutek og finnst sú búð frábær. hef aldrei fengið tölvu úr viðgerð jafn fljótt til baka en í tölvutek og tölvan mín var sett saman á methraða þar. finnst þetta reindar furðulegt að þeir skuli hafa skráð þetta sem core2duo örgjörva og eitthvað skrýtið við þetta ,, maður getur nú reyndar alltaf gert ritvillur .



Skjámynd

Pandemic
Stjórnandi
Póstar: 3769
Skráði sig: Fim 31. Júl 2003 15:25
Reputation: 132
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Tölvutek - gróft svindl?

Pósturaf Pandemic » Lau 13. Jún 2009 16:41

Þar sem ég vinn þarna sem hlutastarfsmaður á veturnar þá er ég ekki beint hlutlaus.
En ég þori þó að segja að þetta hljóta að vera mistök. Þeir sem vinna þarna sem sölumenn eru margir notendur þessara síðu og eru álíka miklir áhugamenn um tölvur og aðrir hérna inni og er umhugað að gefa viðskiptavininum rétta og góða þjónustu. Ég persónulega myndi ekki vinna þarna ef það væri verið að svindla á viðskiptavininum.
Það sem mér dettur í hug að þetta hafi verið annaðhvort auglýsing frá annarri svipaðri vél sem hefur verið breytt til að passa við þetta módel og þetta hafi einhvernvegin ruglast eða einfaldlega prentvilla. Þegar þú sást þetta og lést sölumann vita hefur hann farið til yfirmanns og látið hann breyta þessu og það gæti svosem verið að þetta hafi gleymst í önnum dagsins eða gamlir miðar hafa óvart verið prentaðir út aftur.
Held að þetta hafi verið meira mannleg mistök heldur en nokkuð annað. Ég get auðvitað ekki fullyrt neitt þar sem ég vinn þarna aðeins um helgar og hluta úr degi á veturna með skóla en eftir nokkuð góðan starfsaldur þarna þá kemur þetta svona mér fyrir sjónir.



Skjámynd

Minuz1
Kerfisstjóri
Póstar: 1276
Skráði sig: Fös 17. Okt 2003 21:44
Reputation: 144
Staðsetning: Fyrir framan bílinn með blikkandi blá ljós.
Staða: Ótengdur

Re: Tölvutek - gróft svindl?

Pósturaf Minuz1 » Sun 14. Jún 2009 13:12

Pandemic skrifaði:Þar sem ég vinn þarna sem hlutastarfsmaður á veturnar þá er ég ekki beint hlutlaus.
En ég þori þó að segja að þetta hljóta að vera mistök. Þeir sem vinna þarna sem sölumenn eru margir notendur þessara síðu og eru álíka miklir áhugamenn um tölvur og aðrir hérna inni og er umhugað að gefa viðskiptavininum rétta og góða þjónustu. Ég persónulega myndi ekki vinna þarna ef það væri verið að svindla á viðskiptavininum.
Það sem mér dettur í hug að þetta hafi verið annaðhvort auglýsing frá annarri svipaðri vél sem hefur verið breytt til að passa við þetta módel og þetta hafi einhvernvegin ruglast eða einfaldlega prentvilla. Þegar þú sást þetta og lést sölumann vita hefur hann farið til yfirmanns og látið hann breyta þessu og það gæti svosem verið að þetta hafi gleymst í önnum dagsins eða gamlir miðar hafa óvart verið prentaðir út aftur.
Held að þetta hafi verið meira mannleg mistök heldur en nokkuð annað. Ég get auðvitað ekki fullyrt neitt þar sem ég vinn þarna aðeins um helgar og hluta úr degi á veturna með skóla en eftir nokkuð góðan starfsaldur þarna þá kemur þetta svona mér fyrir sjónir.


Styð þessa yfirlýsingu, finnst frábær þjónustan þarna, persónuleg og greinilegt að fólkið hefur áhuga á því sem það er að gera.


Helsti öryggisgalli í windows er að fólk notar það

Skjámynd

chaplin
Kóngur
Póstar: 4350
Skráði sig: Fim 26. Mar 2009 14:53
Reputation: 407
Staða: Ótengdur

Re: Tölvutek - gróft svindl?

Pósturaf chaplin » Sun 14. Jún 2009 13:59

Alltaf verið ánægður með Tölvutek, alltaf fengið mjög góða þjónustu þarna..

Og efast um að þeir hafi gert þessa lýsingu viljandi, bara mjög algengt að í dag séu seldir Core2Duo í laptops svo..



Skjámynd

Höfundur
arnarj
Gúrú
Póstar: 573
Skráði sig: Mán 28. Okt 2002 22:40
Reputation: 8
Staðsetning: 113 Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Tölvutek - gróft svindl?

Pósturaf arnarj » Fim 18. Jún 2009 18:44

Ég var að renna gegnum fartölvur á síðunni hjá þeim og um helmingur af vélunum hjá þeim eru ranglega skráðar Core 2 Duo. Það eru greinilega ítrekuð "mistök" sem eiga sér stað þarna þegar ný vél er sett á vefinn hjá þeim. Hvað ætli margir viðskiptavinir þeirra hafi orðið fyrir þessum "mistökum" ?

Og já, það er ekki enn búið að lagfæra uppl. um vélina sem ég lét þá vita af um þarsíðustu helgi.




jonfr
Græningi
Póstar: 49
Skráði sig: Þri 12. Maí 2009 17:58
Reputation: 0
Staðsetning: Húnaþing Vestra
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Tölvutek - gróft svindl?

Pósturaf jonfr » Þri 23. Jún 2009 18:15

Láta Neytendastofu vita af þessu. Þeir meðhöndla svona tilvik.



Skjámynd

Legolas
Geek
Póstar: 818
Skráði sig: Fim 22. Júl 2004 22:18
Reputation: 2
Staðsetning: Akureyri
Staða: Ótengdur

Re: Tölvutek - gróft svindl?

Pósturaf Legolas » Þri 23. Jún 2009 19:38

arnarj skrifaði:Ég var að renna gegnum fartölvur á síðunni hjá þeim og um helmingur af vélunum hjá þeim eru ranglega skráðar Core 2 Duo. Það eru greinilega ítrekuð "mistök" sem eiga sér stað þarna þegar ný vél er sett á vefinn hjá þeim. Hvað ætli margir viðskiptavinir þeirra hafi orðið fyrir þessum "mistökum" ?

Og já, það er ekki enn búið að lagfæra uppl. um vélina sem ég lét þá vita af um þarsíðustu helgi.



Eftir þennan tíma er þetta ófyrirgefanlegt það er mitt álit


INTEL Core QuadCore i5-6600k @4.3GHz : GIGABYTE Z170x-Gaming 3 G1 (Skylake) : GIGABYTE GTX1060 G1 GAMING 6GB :
CORSAIR Vengeance LPX 2x8GB DDR4 3.000MHz : BenQ EX3501R
+ DELL P2714H

Skjámynd

Höfundur
arnarj
Gúrú
Póstar: 573
Skráði sig: Mán 28. Okt 2002 22:40
Reputation: 8
Staðsetning: 113 Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Tölvutek - gróft svindl?

Pósturaf arnarj » Fös 26. Jún 2009 17:48

jonfr skrifaði:Láta Neytendastofu vita af þessu. Þeir meðhöndla svona tilvik.


sendi póst á þá




GGG
Ofur-Nörd
Póstar: 216
Skráði sig: Fim 10. Júl 2008 00:19
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Tölvutek - gróft svindl?

Pósturaf GGG » Fös 26. Jún 2009 20:55

Enþá betra er að senda svona augljóst svindl á Dr. Gunna, hann skrifar um svona í blöðin, senda bara mail á drgunni@centrum.is