Pósturaf Ruslakall » Lau 06. Jún 2009 03:54
Routerarnir frá símanum eru drasl, mjög bilanagjarnir og lítið hægt að stilla þá.
Til að opna fyrir port þá skrifarðu í browser urlinn: 192.168.1.254 username og password er (ef þú hefur ekki breytt því) admin / admin. Farðu í Toolbox->Game & Application Sharing. Veldu nafn á stillinguna og smelltu á "Create a new game or application", veldu nafn, hakaðu við "Manual Entry of Port Maps" og veldu next.
Í protocol velur þú tcp eða udp, ef þú veist ekki hvaða protocol um er að ræða, veldu þá any. Í port range setur þú port bilið sem þú vilt opna fyrir, ef þetta er bara eitt port númer fer það númer í báða reitina. Loks setur þú port númerið sem þú settir í fyrri reitinn í "Translate to" reitinn, skildu hina reitina eftir auða, smelltu á "add". Að lokum smellirðu á "Assign a game or application to a local network device" og velur nafnið á stillingunni og ip númerið (eða nafnið á vélinni) og smellir á "add".
Vona að þetta hafi hjálpað, þetta verður ekki mikið ítarlegra.