Var að spá er nokkur með umboð fyrir þessar vélar á klakanum lengur meðan allt er í fucki hjá BT. til dæmis ef þetta skildi nú bila sem er víst leiðinlega algengt.
PS. Er eitthað hægt að laga af þessum bilunum sjálfur?
Hverjir eru að selja X-box núna?
X-BOX 360 pæling *EDIT*
-
Höfundur - Nörd
- Póstar: 146
- Skráði sig: Lau 18. Ágú 2007 20:04
- Reputation: 0
- Staða: Ótengdur
X-BOX 360 pæling *EDIT*
Síðast breytt af littel-jake á Þri 07. Apr 2009 12:26, breytt samtals 1 sinni.
E8400@3gHz---Intel 775-Ga-P35-DS3L--- GeForce8800GT512mb---560W aflgjafi (með wattmæli)---2x2gb DDR2 @800Mhz--- Geimt í óttalegum bakaraofni frá Aspire
Re: X-BOX 360 pæling
Hátækni er með umboð fyrir xbox hér á landi. Myndi kannski frekar spyrja á xbox360.is.. þar ættu menn að vita meira um þetta.
-
- Geek
- Póstar: 802
- Skráði sig: Fös 19. Sep 2003 14:00
- Reputation: 65
- Staðsetning: Reykjavík
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: X-BOX 360 pæling
Hátækni hefur ákveðið að beita sér fyrir því að öllum Xbox eigendum, sem keyptu vélar sínar á Íslandi, sé tryggð lögbundin 2ja ára neytendaábyrgð. Hátækni og Microsoft á Íslandi hafa nú náð samkomulagi um þessa 2ja ára ábyrgð.
Í tilkynningu um málið segir að söluaðilar munu, eins og áður, annast alla þjónustu vegna vélanna þrátt fyrir að ábyrgðin sé nú í höndum Hátækni og Microsoft á Íslandi. Eigendur Xbox véla geta því alltaf snúið sér til næsta söluaðila með mál sem varða ábyrgð. Athugið að við þjónustu af þessu tagi er skilyrði að framvísa sölunótu, sem er forsenda fyrir afhendingu nýrrar vélar reynist vél ónothæf.
Í tilkynningunni segir: „Neytendaábyrgð hefur öðlast nýtt vægi í kjölfar efnahagsþrenginganna í landinu. Við þrot fyrirtækja hafa neytendur uppgötvað að erfitt getur verið að sækja ábyrgð á vöru sem þeir hafa keypt. Starfsmönnum Hátækni hafa borist margar fyrirspurnir um slík ábyrgðarmál, þ.á m varðandi hina vinsælu Xbox leikjavél frá Microsoft.
Hingað til hefur ábyrgð á hverri Xbox vél verið á vegum þess sem flytur hana inn. Hluti Xbox eigenda hefur því glatað lögbundinni neytendaábyrgð á vélunum og getur í raun hvergi leitað lausna á málum sem upp kunna að koma."
http://visir.is/article/20090303/VIDSKIPTI06/695562002