Harðir diskar í raid


Höfundur
jens11
Græningi
Póstar: 44
Skráði sig: Þri 13. Jan 2009 23:40
Reputation: 1
Staða: Ótengdur

Harðir diskar í raid

Pósturaf jens11 » Sun 22. Mar 2009 12:59

Sælir.
Ég var að hugsa um að raida 2 diska saman hjá mér til að geyma stafrænu myndirnar á. Þá var ég að hugsa um raid 1. http://www.pcguide.com/ref/hdd/perf/raid/levels/singleLevel1-c.html
Hef aldrei gert þetta áður eða veit um neinn sem hefur gert þetta.

Þá er það spurningin. Ef ég er ekki með móðurborð sem styður raid. Get ég þá keypt hýsingu sem styður raid 1 og virkar hún þá alveg fullkomnlega hjá mér?

Eða eruði kannski með betri hugmynd til að hafa safe backup af myndunum ? Nenni engan vegin lengur að skrifa allar myndirnar líka á disk

Takk fyrir



Skjámynd

KermitTheFrog
Kóngur
Póstar: 4273
Skráði sig: Mán 07. Júl 2008 23:32
Reputation: 67
Staða: Ótengdur

Re: Harðir diskar í raid

Pósturaf KermitTheFrog » Sun 22. Mar 2009 13:06

Þú getur keypt PCI stýrispjöld ef móðurborðið þitt styður ekki RAID.

Svo bara til að vera clear, þá ætla ég að benda á að RAID 1 skrifar skrárnar á báða diskana þannig að þú átt tvöfalt af öllu in case að annar diskurinn faili þá áttu annað eintak. Svo er RAID 0 þannig að hann skrifar helming á annan og hinn helmingin á hinn svo að þú notar 2 diska í raun sem einn. En aftur á móti ef annar failar þá eru skrárnar á hinum í raun ónothæfar



Skjámynd

kiddi
Stjórnandi
Póstar: 1200
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 03:55
Reputation: 257
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Harðir diskar í raid

Pósturaf kiddi » Sun 22. Mar 2009 13:09

RAID má aldrei hugsa sem "backup" lausn... kannski frekar sem "short-term fail-safe". Settu frekar upp diskana staka hjá þér og notaðu SyncToy (freeware) eða SyncBack (freeware) til að spegla diskinn á hverri nóttu.

Ef þú ætlar annars að þrjóskast í RAID, þá mæli ég sennilega með software RAID í Windows fyrir hinn almenna notanda, því það er svo auðvelt að flytja það yfir á aðrar vélar eða önnur móðurborð - það er ekki alveg svo einfalt með dedicated RAID controller og/eða on-board RAID á móðurborði. Þú þarft 2 alveg nákvæmlega eins HDDa í RAID1, í Windows ferðu í Control Panel > Administrative Tools > Computer Management > Disk Management > heldur inni shift og velur þessa 2 óformöttuðu diska og velur svo "Create partition" að mig minnir - þá færðu kost á að velja RAID0(Striping) eða RAID1(Mirroring) og þú vilt auðvitað velja Mirroring :)

PS. Ég gleymdi næstum - ef þú ert nojaður varðandi RAID - ekki snerta það ! Notaðu SyncToy eða SyncBack til að spegla diskana handvirkt. Og mundu! Geymdu eitt afrit utan tölvunnar líka!




Höfundur
jens11
Græningi
Póstar: 44
Skráði sig: Þri 13. Jan 2009 23:40
Reputation: 1
Staða: Ótengdur

Re: Harðir diskar í raid

Pósturaf jens11 » Sun 22. Mar 2009 13:15

kiddi skrifaði:RAID má aldrei hugsa sem "backup" lausn... kannski frekar sem "short-term fail-safe". Settu frekar upp diskana staka hjá þér og notaðu SyncToy (freeware) eða SyncBack (freeware) til að spegla diskinn á hverri nóttu.

Ef þú ætlar annars að þrjóskast í RAID, þá mæli ég sennilega með software RAID í Windows fyrir hinn almenna notanda, því það er svo auðvelt að flytja það yfir á aðrar vélar eða önnur móðurborð - það er ekki alveg svo einfalt með dedicated RAID controller og/eða on-board RAID á móðurborði. Þú þarft 2 alveg nákvæmlega eins HDDa í RAID1, í Windows ferðu í Control Panel > Administrative Tools > Computer Management > Disk Management > heldur inni shift og velur þessa 2 óformöttuðu diska og velur svo "Create partition" að mig minnir - þá færðu kost á að velja RAID0(Striping) eða RAID1(Mirroring) og þú vilt auðvitað velja Mirroring :)



Þakka ykkur fyrir fljót svör. Já ég var ekki búinn að hugsa út í það. Kannski er best að kaupa bara tvo diska, setja í tölvuna og mirrora þá. Virkar það ekki þannig að þegar maður setur einhvað inná 1 diskinn þá fer það líka inn á hinn þegar þeir eru mirroraðir ?