Þegar ég tengdi nýja skjáinn minn (ACER V223w) þá kom upp einhver nVidia wizard fyrir tvo skjái og þá var spurt hvort að skjárinn sem er tengdur í DVI tengið er HDTV ready. Stóð líka ef ég segi já og skjárinn er svo ekki HDTV ready þá get ég skemmt hann, svo ég sagði nei til öryggis.
Hvernig veit ég hvort hann er HDTV ready? Er það bara ef hann nær 1080p upplausninni (1920x1080). Þessi skjár sem ég er með er með max resolution 1680x1050 ss. 16:10 en ekki 16:9. Er hann þá ekki HDTV Ready?
Ég veit ekki hvernig á að lesa úr þessu, það stendur DVI HDCP á kassanum, hefur það eitthvað með HDTV að gera?

Asus ROG Strix Z390-F Gaming | Intel Core i5 9600K @ 4,7GHz | Crosshair H100i | Corsair Vengance 16GB | Asus ROG Strix RTX2060 | Corsair RM 650x