Toyota í skítnum!

Allt utan efnis
Skjámynd

Höfundur
GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 17031
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2298
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Toyota í skítnum!

Pósturaf GuðjónR » Fim 05. Feb 2009 10:52

Ég á ekki til eitt aukatekið orð.

http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/20 ... rir_skrif/



Skjámynd

Dagur
Geek
Póstar: 802
Skráði sig: Fös 19. Sep 2003 14:00
Reputation: 65
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Toyota í skítnum!

Pósturaf Dagur » Fim 05. Feb 2009 11:32

Þetta fyrirtæki er í einkaeigu og þeir mega því fara með peningana eins og þeim sýnist. Ef þú ert eitthvað ósáttur við fyrirtækið þitt þá ferðu ekki með það fyrir almenning heldur ferð með það til þíns yfirmanns.

En auðvitað er það hneyskli að þeir skuli sóa svona miklum pening þegar þeir eru að skera niður og mér finnst líka algjörlega óviðeigandi að reka þennan starfsmann (þótt að þeir séu í fullum rétti til þess).


EDIT: Ég er víst að fara með rangfærslur, Toyota er hlutafélag
Síðast breytt af Dagur á Fim 05. Feb 2009 16:01, breytt samtals 1 sinni.




mpythonsr
Fiktari
Póstar: 91
Skráði sig: Þri 25. Mar 2008 17:58
Reputation: 2
Staða: Ótengdur

Re: Toyota í skítnum!

Pósturaf mpythonsr » Fim 05. Feb 2009 13:10

Er ekki málfrelsi í landinu? Hefur þessi fyrrverandi starfsmaður rétt á því að segja frá því sem hann sér og heyrir á sínum tíma? Af hverju að reka manninn? af hverju var framkvæmdarstjórinn rekinn? Eru ekki allir að reyna að spara?


Það að fá sér jeppa á 14millur er ekki góð hugmynd og ekki til þess fallið að kallast ábyrg fjármálastjórnun.
takið eiganda Ikea sem dæmi. Hann á gamlan bíl og borðar með starffólki sínu í kaffiteríunni. Það er kallað ábyrg fjármálastjórnun.


Gott minni, góðir harðir diskar, gott skjákort og góður örgj0rvi. Allt þetta í góðum kassa ásamt
2 viftum og diskóljósum. Allt fengið á lítin pening. þarf eitthvað meira?

Skjámynd

CendenZ
Stjórnandi
Póstar: 2893
Skráði sig: Fös 04. Apr 2003 08:54
Reputation: 225
Staðsetning: Á þessu spjalli
Staða: Ótengdur

Re: Toyota í skítnum!

Pósturaf CendenZ » Fim 05. Feb 2009 13:12

mpythonsr skrifaði:Er ekki málfrelsi í landinu? Hefur þessi fyrrverandi starfsmaður rétt á því að segja frá því sem hann sér og heyrir á sínum tíma? Af hverju að reka manninn? af hverju var framkvæmdarstjórinn rekinn? Eru ekki allir að reyna að spara?


Það að fá sér jeppa á 14millur er ekki góð hugmynd og ekki til þess fallið að kallast ábyrg fjármálastjórnun.
takið eiganda Ikea sem dæmi. Hann á gamlan bíl og borðar með starffólki sínu í kaffiteríunni. Það er kallað ábyrg fjármálastjórnun.



Enda er maturinn í ikea góður :wink:



Skjámynd

Höfundur
GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 17031
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2298
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Toyota í skítnum!

Pósturaf GuðjónR » Fim 05. Feb 2009 13:21

Dagur skrifaði:Þetta fyrirtæki er í einkaeigu og þeir mega því fara með peningana eins og þeim sýnist. Ef þú ert eitthvað ósáttur við fyrirtækið þitt þá ferðu ekki með það fyrir almenning heldur ferð með það til þíns yfirmanns.

En auðvitað er það hneyskli að þeir skuli sóa svona miklum pening þegar þeir eru að skera niður og mér finnst líka algjörlega óviðeigandi að reka þennan starfsmann (þótt að þeir séu í fullum rétti til þess).


Bankarnir voru líka í einkaeigu og fóru með peningana eins og þeim sýndist, aldeilis frábær árangur það!

Bara algjörlega siðlaust og viðbjóðslegt að lækka laun starfsmanna um x% og skera niður starfshlutfall um x% vegna "kreppu" og fá síðan 14 milljóna bíl undir rassgatið á sjálfum sér á sama tíma!
Það er akkúrat þetta gjörspillta siðferði sem kom landinu á þann stað sem það er núna, og ef við eigum einhverntíman að komast upp úr þessu ástandi þá er það einmitt þetta hugafar sem þarf að uppræta.

Og reka manninn af því að hann vogar sér að hafa skoðun á þessu, erum við í Kína eða á Íslandi ? Ég bara spyr!

Eitt er víst, Toyota er ekki efst á mínum óskalista.



Skjámynd

depill
Stjórnandi
Póstar: 1596
Skráði sig: Mán 04. Júl 2005 17:09
Reputation: 260
Staðsetning: Reykjavík, Iceland
Staða: Ótengdur

Re: Toyota í skítnum!

Pósturaf depill » Fim 05. Feb 2009 13:35

Mér finnst þetta mjög lélegt, og mér finnst eins og sum fyrirtæki hafi verið nýta sér kreppuna til þess að geta lækkað launakostnað hjá sér. Ég skal ekki segja hvort að Toyota hafi gert það, þar sem augljóslega hefur velta minnkað þar. Hins vegar fannst mér Síminn berasta dæmið um þetta, fyrirtæki sem hefur skilað hagnaði alveg frá því það var skilið frá Póstinum og starfsfólkið þar unnið greinilega gott starf fyrst að það hefur tekist upp en hins vegar skerða þeir laun um 10% vegna "kreppu" þegar það er greinilega að tekjur fyrirtækisins eru ekki að lækka ( þótt að örugglega skuldir Bakkabræðra séu svo gott að drepa fyrirtækið ). Mér finnst það lélegt......

Mér finnst þetta svona borderline að vera brot á 65. grein stjórnarskrá laga sem segir reyndar ða það meigi ekki mismuna gagnvart lögum og mannréttindum vegna þar á meðal skoðanna.

Ég ætla allavega að fara sniðganga öll fyrirtæki sem tengjast Magnús Kristinssonar af þessari ástæðu og fleirrum ( finnst hann hafa verið mjög siðlaus í öllu þessu góðæri og hefur verið að veðsetja Íslenskan kvóta alveg eins hátt og hann hreinlega hefur getað gert.

Á vefsíðu Deloitte er finn listi yfir þetta

Deliotte skrifaði:Bergeyjar samstæðan samanstendur af eftirfarandi fyrirtækjum:
· Fasteignafélagið Bergey ehf
· Toyota á Íslandi hf
· M. Kristinsson ehf
· Toppbílar ehf
· MotorMax ehf
· Gísli Jónsson ehf
· Yamaha á Íslandi ehf
· Sólning hf
· Barðinn ehf
· Bílaleiga Flugleiða ehf

Smáeyjar samstæðan samanstendur af eftirfarandi fyrirtækjum:
· Bergur Huginn ehf
· MK-44 ehf
· Futura ehf ( Domino´s á Íslandi)


Og já það er rétt þetta er einkafyrirtæki sem þarf ekki að spila eftir akkurat sömu reglum og ríkisfyrirtæki ( en samt reglum ) það breytir því ekki að það eigi að vekja athygli á siðleysi til þess að viðskiptavinurinn geti valið rétt þegar hann vill kaupa vörur af fyrirtækjum, þá getur hann ákveðið hvort að ahnn vilji versla við siðlaus fyrirtæki eða "góð" fyrirtæki.




vesley
Kóngur
Póstar: 4266
Skráði sig: Mán 08. Sep 2008 19:39
Reputation: 196
Staðsetning: við talvuna
Staða: Ótengdur

Re: Toyota í skítnum!

Pósturaf vesley » Fim 05. Feb 2009 15:20

mpythonsr skrifaði:Er ekki málfrelsi í landinu? Hefur þessi fyrrverandi starfsmaður rétt á því að segja frá því sem hann sér og heyrir á sínum tíma? Af hverju að reka manninn? af hverju var framkvæmdarstjórinn rekinn? Eru ekki allir að reyna að spara?


Það að fá sér jeppa á 14millur er ekki góð hugmynd og ekki til þess fallið að kallast ábyrg fjármálastjórnun.
takið eiganda Ikea sem dæmi. Hann á gamlan bíl og borðar með starffólki sínu í kaffiteríunni. Það er kallað ábyrg fjármálastjórnun.



eigandi ikea sýnir ekki bara gott dæmi í vinnunni enda er hann sparsamasti milljarðamæringur í heimi ;)



Skjámynd

FreyrGauti
Number of the Beast
Póstar: 666
Skráði sig: Fim 04. Des 2008 10:29
Reputation: 17
Staða: Ótengdur

Re: Toyota í skítnum!

Pósturaf FreyrGauti » Fim 05. Feb 2009 16:30

Já, þetta lúkkar illa en samt langar mig nú að minnast á tvo hluti. Starfsmaður sem er að gagnrýna fyrirtækið og stjórnendur þess út í bæ getur alveg gert ráð fyrir því að vera sagt upp, ég hefði ekki mikinn áhuga á að vera með starfsmann sem gerir slíkt. Og hitt, talað um 14m jeppa, það er 100% að þetta sé þá toyota jeppi, þó að Jón Jónsson úti á götu þurfi að borga 14millur fyrir þennan jeppa þá borgar toyota ekki nálægt þeirri upphæð, mjög líklegt að þetta sé bíll sem þeir hafa ekki náð að selja út úr landi eftir kreppu og ákveðið frekar en að hafa hann inni á sýningargólfi næsta árið að nota hann sem fyrirtækisbíl, sem forstjórabílar eru, og síðan selja hann eftir 2-3 ár notaðan þegar að þeir endurnýja bílinn hjá forstjóranum.



Skjámynd

lukkuláki
Besserwisser
Póstar: 3089
Skráði sig: Fös 30. Nóv 2007 19:06
Reputation: 65
Staða: Ótengdur

Re: Toyota í skítnum!

Pósturaf lukkuláki » Fim 05. Feb 2009 16:34

Þeir eru alveg að gera upp á hnakka með þessu athæfi
Ég efast líka um að þetta sé löglegt miðað við þessar forsendur.

Fólk er ekki hrifið af svona ritskoðunum og almennum hálfvitaskap fólk er bara búið að fá nóg af því.
Mér er nokk sama þó þetta sé einkafyrirtæki það er naumast aumingjaskapurinn í forstjóranum að geta ekki lesið sannleikann um sjálfan sig án þess að fá mikilmennskubrjálæði og reka menn út af svona smámunum. Starfsmaðurinn er ekki að ljúga neinu. Ef hann hefði ekki verið rekinn þá væru fáir sem vissu þetta í dag en vegna þess að hann var rekinn þá hefur TOYOTA á Íslandi beðið verulega álitshnekki.


If you think patience is a virtue, try surfing the net without high speed Internet.


sveppo
Græningi
Póstar: 30
Skráði sig: Sun 01. Feb 2009 23:25
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Toyota í skítnum!

Pósturaf sveppo » Fim 05. Feb 2009 16:54

það má náttlega seiga að þessi fluttnigur sé einhliða, þú vilt ekki vera með mann i vinnu sem er að reyna að draga upp svarta mynd af fyrirtækinu.



Skjámynd

Gúrú
Bannaður
Póstar: 5677
Skráði sig: Fös 17. Mar 2006 23:08
Reputation: 1
Staðsetning: ;)
Staða: Ótengdur

Re: Toyota í skítnum!

Pósturaf Gúrú » Fim 05. Feb 2009 17:04

sveppo skrifaði:það má náttlega seiga að þessi fluttnigur sé einhliða, þú vilt ekki vera með mann i vinnu sem er að reyna að draga upp svarta mynd af fyrirtækinu.


Reyna að draga upp svarta mynd?
Reyna að opinbera hana meinarðu?


Modus ponens

Skjámynd

lukkuláki
Besserwisser
Póstar: 3089
Skráði sig: Fös 30. Nóv 2007 19:06
Reputation: 65
Staða: Ótengdur

Re: Toyota í skítnum!

Pósturaf lukkuláki » Fim 05. Feb 2009 17:21

sveppo skrifaði:það má náttlega seiga að þessi fluttnigur sé einhliða, þú vilt ekki vera með mann i vinnu sem er að reyna að draga upp svarta mynd af fyrirtækinu.


Hvaða bull er í þér hann sagði aldrei hvaða fyrirtæki þetta er á vefsíðunni og auk þess er hann ekki að draga upp svarta mynd af fyrirtækinu hann er bara að koma með staðreyndirnar fram í dagsljósið, fyrirtækið sjálft sér um að maka sig drullu með þessari framkomu við starfsmanninn það er búið að vera töluvert um það undanfarið að svona SPILLING, RISNA, ÓEÐLILEG FRÍÐINDI, OFURLAUN og annað sé dregið fram og það er bara gott mál við Íslendingar höfum ekki efni á að borga allt fyrir þessa menn eða hverjir haldið þið að borgi þegar allt kemur til alls?


If you think patience is a virtue, try surfing the net without high speed Internet.

Skjámynd

FreyrGauti
Number of the Beast
Póstar: 666
Skráði sig: Fim 04. Des 2008 10:29
Reputation: 17
Staða: Ótengdur

Re: Toyota í skítnum!

Pósturaf FreyrGauti » Fim 05. Feb 2009 17:50

Lukkuláki, ert þú hluthafi í Toyota? Ef ekki þá get ég ekki ýmindað mér að það komi þér nokkuð við hvaða fríðindi forstjórinn hefur. Ég man ekki eftir að hafa fengið greiðsluseðil inn um lúguna sem stóð á "Fríðindi forstjóra Toyota". Það er ekki hægt að líkja saman Toyota og bönkunum, ríkið er ekki að fara bjarga Toyota ef þeir fara á hausinn. Og þó að gaurinn skrifi ekki Toyota inn á vefsíðuna þá er líklega hellingur af vinum hans sem vita hvar hann vinnur og lesa vefsíðuna, síðan fara þeir að spjalla við einhverja aðra og segja "jói í toyota var að tala um að forstjórinn hefði fengið...blablabla". Mér finnst ekkert að því að menn sem standa sig í sínu starfi fá vel borgað. Það eru ekkert óeðlileg fríðindi að vera með bíl sem fyrirtækið borgar, þessir menn eru oft að keyra umm allann bæ milli funda og slíkt, finnst fullkomlega eðlilegt að þeim sé skaffaður bíll í það, jafnvel þó að það sé "14m" jeppi. Það eina sem ég get verið sammála um er að það hefði mátt gefa gaurnum viðvörun frekar en að reka hann strax, en síðan vitum við ekkert hvort hann hafi einhverntíman verið búinn að fá viðvörun. Þetta er mjög einfallt, maður hefur ekki fólk í vinnu hjá sér sem talar illa um fyrirtækið út í bæ.



Skjámynd

Höfundur
GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 17031
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2298
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Toyota í skítnum!

Pósturaf GuðjónR » Fim 05. Feb 2009 18:04

FreyrGauti, ég er sammála því að ég myndi ekki vilja vera með mann í vinnu sem talar ílla um mig eða vinnuna útá við.
Og við höfum bara heyrt aðra hlið málsins, þ.e. frá þessum starfsmanni.

En af því gefnu að þessi maður sé að segja satt, þá finnst mér þetta ótrúleg vinnubrögð, forstjórinn hefði getað boðið honum upp á kontór í kaffi og beðið hann um að þurrka út þessa bloggfærslu.
Hefði þetta gerst fyrir ári þá hefði engum dottið í hug að skrifa um þetta, en miðað við allt sem hefur gengið á þá er ekkert skrítið að fólki sé nóg boðið.




Starman
has spoken...
Póstar: 170
Skráði sig: Þri 07. Okt 2008 01:40
Reputation: 18
Staða: Ótengdur

Re: Toyota í skítnum!

Pósturaf Starman » Fim 05. Feb 2009 19:47

Vil bara benda mönnum á að ef Toyota fer á hausinn þá borgum við allir brúsann í formi hærri vaxta hjá viðskiptabönkunum. Ef fyrirtæki fara verða gjaldþrota og engar eignir finnast þá verða bankar að afskrifa skuldirnar, sem minnkar hagnað hjá þeim. Svo er þessu öllu velt áfram á sauðsvartan almúgan, þannig að þetta er nú ekki alveg rétt hjá FreyrGauta. Ríkið mun kannski ekki bjarga Toyota en skellurinn kemur á bankana. Sem eru jú við í dag, er það ekki ?



Skjámynd

Höfundur
GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 17031
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2298
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Toyota í skítnum!

Pósturaf GuðjónR » Fim 05. Feb 2009 19:53

Starman skrifaði:Vil bara benda mönnum á að ef Toyota fer á hausinn þá borgum við allir brúsann í formi hærri vaxta hjá viðskiptabönkunum. Ef fyrirtæki fara verða gjaldþrota og engar eignir finnast þá verða bankar að afskrifa skuldirnar, sem minnkar hagnað hjá þeim. Svo er þessu öllu velt áfram á sauðsvartan almúgan, þannig að þetta er nú ekki alveg rétt hjá FreyrGauta. Ríkið mun kannski ekki bjarga Toyota en skellurinn kemur á bankana. Sem eru jú við í dag, er það ekki ?

Mikið rétt :(



Skjámynd

lukkuláki
Besserwisser
Póstar: 3089
Skráði sig: Fös 30. Nóv 2007 19:06
Reputation: 65
Staða: Ótengdur

Re: Toyota í skítnum!

Pósturaf lukkuláki » Fim 05. Feb 2009 20:03

Starman skrifaði:Vil bara benda mönnum á að ef Toyota fer á hausinn þá borgum við allir brúsann í formi hærri vaxta hjá viðskiptabönkunum. Ef fyrirtæki fara verða gjaldþrota og engar eignir finnast þá verða bankar að afskrifa skuldirnar, sem minnkar hagnað hjá þeim. Svo er þessu öllu velt áfram á sauðsvartan almúgan, þannig að þetta er nú ekki alveg rétt hjá FreyrGauta. Ríkið mun kannski ekki bjarga Toyota en skellurinn kemur á bankana. Sem eru jú við í dag, er það ekki ?


Nákvæmlega það sem ég var að reyna að segja.
Takk fyrir þetta.


If you think patience is a virtue, try surfing the net without high speed Internet.

Skjámynd

urban
Stjórnandi
Póstar: 3750
Skráði sig: Mán 06. Des 2004 01:26
Reputation: 474
Staðsetning: Undir hægra megin
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Toyota í skítnum!

Pósturaf urban » Fim 05. Feb 2009 23:27

Starman skrifaði:Vil bara benda mönnum á að ef Toyota fer á hausinn þá borgum við allir brúsann í formi hærri vaxta hjá viðskiptabönkunum. Ef fyrirtæki fara verða gjaldþrota og engar eignir finnast þá verða bankar að afskrifa skuldirnar, sem minnkar hagnað hjá þeim. Svo er þessu öllu velt áfram á sauðsvartan almúgan, þannig að þetta er nú ekki alveg rétt hjá FreyrGauta. Ríkið mun kannski ekki bjarga Toyota en skellurinn kemur á bankana. Sem eru jú við í dag, er það ekki ?



þetta er nú svolítið mikil einföldun, og ef að það á að nota þessi rök til þess að skíta yfir toyota þá er hægt að drulla yfir hvaða fyrirtæki sem er á landinu, vegna þess að það gæti farið á hausinn....

en það breytir því svo sem ekki að mínu mati þá er MK hálviti.
hefur kostað mína familíu slatta af peningum.


Heyrðu þú ert bara alls ekkert svo óvitlaus !