FireWire bridgeboard


Höfundur
Kristján Gerhard
Gúrú
Póstar: 525
Skráði sig: Mið 17. Maí 2006 20:27
Reputation: 38
Staða: Ótengdur

FireWire bridgeboard

Pósturaf Kristján Gerhard » Þri 18. Nóv 2008 12:31

Sælir félagar,

Mig vantar að keyra nokkra utanáliggjandi diska og vil nýta til þess FireWire tengibraut. Úrvalið að FW hýsingum hér
á klakanum er hinsvegar arfaslakt og einna helst fáanlegt frá Lacie fyrir marga peninga. Spurning mín til ykkar er því þessi:
Vitið þið um einhvern sem að selur eða hefur selt brúborð (e. bridgeboard) fyrir FW braut. Brúborð er í raun innvolsið í
flakkarhýsingunni þegar ál/plast dollan hefur verið fjarlægð. Þe. gerir þér kleift að tengja SATA/ATA harðadiska við FW/USB
tengibraut.

Hér má sjá dæmi um slíkt borð.

kv.

KG




einarornth
has spoken...
Póstar: 195
Skráði sig: Fim 12. Jún 2008 12:58
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: FireWire bridgeboard

Pósturaf einarornth » Þri 18. Nóv 2008 13:35

Búinn að tékka á Íhlutum, Skipholti?




Höfundur
Kristján Gerhard
Gúrú
Póstar: 525
Skráði sig: Mið 17. Maí 2006 20:27
Reputation: 38
Staða: Ótengdur

Re: FireWire bridgeboard

Pósturaf Kristján Gerhard » Þri 18. Nóv 2008 18:01

Ég renndi í gegnum excel-vörulistann hjá þeim en fann ekkert líklegt. Þarf að spjalla við þá samt.