Borgað fyrir erlent download.

Allt utan efnis
Skjámynd

Höfundur
natti
Tölvutryllir
Póstar: 677
Skráði sig: Fös 10. Jan 2003 09:59
Reputation: 93
Staðsetning: 107
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Borgað fyrir erlent download.

Pósturaf natti » Fös 17. Okt 2008 10:47

Bara pæling, hefur fólk engar skoðanir á nýju verðskránni hjá Voda (eða hef ég kannski bara misst af þessu?)
http://www.vodafone.is/internet/adsl
Ekkert verðþak (ekkert "ótakmarkað" erlent download) lengur. Heldur bara innifalið gagnamang og 2.5kr megabyte-ið eftir það. Semsagt miðað við sömu verðskrá per megabyte og áðuren Hive kom á markað.

Síminn er ennþá með verðþak... en ætli þeir fylgi að fordæmi vodafone...


Mkay.

Skjámynd

CendenZ
Stjórnandi
Póstar: 2893
Skráði sig: Fös 04. Apr 2003 08:54
Reputation: 225
Staðsetning: Á þessu spjalli
Staða: Ótengdur

Re: Borgað fyrir erlent download.

Pósturaf CendenZ » Fös 17. Okt 2008 11:03

stórefa það.

Vodafone er í slæmri fjárhagslegri stöðu en reyndar sömuleiðis skipti, en vodafone þarf hinsvegar að nota aðföng frá símanum.

Svo ég held að síminn hætti þessi ekki.


Hinsvegar gæti þetta orðið verra ef Skipti verður selt til aðila sem vilja græða græða græða og taka þ.a.l. verðþakið af.

það myndi hinsvegar bjóða hættunni heim því erlend samskiptafyrirtæki kæmu hingað hiklaust.



Skjámynd

depill
Stjórnandi
Póstar: 1596
Skráði sig: Mán 04. Júl 2005 17:09
Reputation: 260
Staðsetning: Reykjavík, Iceland
Staða: Ótengdur

Re: Borgað fyrir erlent download.

Pósturaf depill » Fös 17. Okt 2008 13:27

Úff lélegt, kaupa HIVE og svona skuggalega snemma þá er verðþakið farið. Persónulega vill ég frekar vera cappaður á heimatengingunni minni tímabundið í staðinn fyrir að geta rokið uppí gagnamagni ( sérstaklega þar sem það er svo skuggalega erfitt að sjá þetta þegar maður er hjá Voda, þessi síða þeirra virkar bara þegar henni hentar og maður fær ekki e-mail eins og maður fær hjá Símanum :P )

Og jamm með Skipti, í eigu Exista, lítur ekki nógu bjart út þar. Virðist ekki líta mjög bjart yfir hjá Teymi heldur ( missa fyrirtæki úr viðskiptum og fólk að draga úr IT kostnaði væntanlega og minni fjárfestingar í viðskiptahugbúnaði sem þeir eru að framleiða ), Vodafone og Tal bæði þar undir.

Maður pælir bara hreinlega að ef við segjum að Exista fari, hver hafi efni á því akkurat núna að kaupa Skipti, verður það ekki bara einhver erlenduraðili ( eins og TDC sem hafi víst áhuga á tímabili ) eða kannksi að ríkið bara þjóðnýti það eins og bankanna, Nýji Síminn anyone :P



Skjámynd

CendenZ
Stjórnandi
Póstar: 2893
Skráði sig: Fös 04. Apr 2003 08:54
Reputation: 225
Staðsetning: Á þessu spjalli
Staða: Ótengdur

Re: Borgað fyrir erlent download.

Pósturaf CendenZ » Fös 17. Okt 2008 13:35

já hugsaðu þér

Spurningin er samt með veðböndin, hver á veðbönd í Skipti

og hver á veðbönd í það firma sem á veðbönd í skipti.


Teymi er ekki í góðum málum, þ.a.l. eru hlutdeildarfirmur og dótturfélög

Minnir að Teymi sé með neikvæða afkomu um 10 milljarða ISK á fyrstu 2 ársfjórðungum.


þannig síðustu atburðir eru ekki inn í þessum 10 milljörðum.



Skjámynd

daremo
spjallið.is
Póstar: 472
Skráði sig: Mið 27. Okt 2004 00:39
Reputation: 86
Staða: Ótengdur

Re: Borgað fyrir erlent download.

Pósturaf daremo » Fös 17. Okt 2008 20:35

Ég hef fulla trú á því að Síminn eigi eftir að flytja okkur yfir í miðaldir aftur með 20-40gb cappi á næstunni, og svo fylgja aðrir ISPar fordæmi þeirra.
Það hafa væntanlega flestir hérna tekið eftir að Síminn er byrjaður að cappa torrent af fullum þunga síðan fjármálakreppan skall á. Ég fæ ekki nema uþb 10KB/s erlendis frá í dag.



Skjámynd

urban
Stjórnandi
Póstar: 3750
Skráði sig: Mán 06. Des 2004 01:26
Reputation: 474
Staðsetning: Undir hægra megin
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Borgað fyrir erlent download.

Pósturaf urban » Fös 17. Okt 2008 21:22

ég fæ fullan hraða erlendis frá og er hjá símanum


Heyrðu þú ert bara alls ekkert svo óvitlaus !

Skjámynd

Höfundur
natti
Tölvutryllir
Póstar: 677
Skráði sig: Fös 10. Jan 2003 09:59
Reputation: 93
Staðsetning: 107
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Borgað fyrir erlent download.

Pósturaf natti » Fös 17. Okt 2008 21:51

CendenZ skrifaði:Hinsvegar gæti þetta orðið verra ef Skipti verður selt til aðila sem vilja græða græða græða og taka þ.a.l. verðþakið af.


Þú meinar að núverandi eigendur vilja ekki græða?

daremo skrifaði:Ég hef fulla trú á því að Síminn eigi eftir að flytja okkur yfir í miðaldir aftur með 20-40gb cappi á næstunni,

miðaldir... er nú fullhart í árinni tekið.

Er annars svo óeðlilegt að fólk borgi notkun? Þeir sem nota minna borga einfaldlega minna, og þeir sem nota meira borga þá líka í hlutfalli við notkun?


Mkay.


akarnid
Ofur-Nörd
Póstar: 242
Skráði sig: Lau 04. Nóv 2006 22:35
Reputation: 11
Staða: Tengdur

Re: Borgað fyrir erlent download.

Pósturaf akarnid » Fös 17. Okt 2008 23:17

Mér finnst þetta ekki vera svo furðulegt miðað við hvernig fyrirtækið stendur í dag.

Þeir ásamt Símanum eru að borga þvílíkar formúur á mánuði fyrir garanteraða bandvídd og eru eflaust undir þrýsting núna að hámarka arðsemina frá internetáskrifendum, enda er ADSL ekki s.k. 'high-margin' þjónusta. Hún hefur verið rekin undanfarin ár á nánast engum gróða enda hefur verið grimm samkeppni á þessum markaði og búin að vera gósentíð fyrir netnotendur að hafa fengið þetta combination af háum hraða og ótakmörkuðu niðurhali. Ég segi ekki ómældu því þetta hefur alltaf verið mælt, það var bara lögð meiri áhersla á að hafa þessa kúnna góða. Núna er þróunin orðin þannig að heimatengingar eru að stækka og stækka en innifalið gagnamagn er að minnka. Horfið bara á þessar ljóstengingar sem Síminn og Gagnaveitan/Vortex/Voda eru að bjóða upp á. 30 Gig til og frá og bara nokkur Gb innifalin af gögnum? Það er fljótt að koma.

Fjarskiptafyrirtæki eru bara meira að fókusa á þjónustur sem skila góðum arði. Farsimaþjónusta t.d. Afhverju haldið þið að Síminn sé að pusha 3G svo mikið?

Mér finnst sjálfum ekkert óeðlilegt að það verði boðið upp á stórnotendaáskriftir með miklu eða nánast ótakmörkuðu erlendu niðurhali. Það er staðreynd að rétt um 10% af notendum eru með stærsta hluta notkunarinnar. You use it more, you pay more. Öll bandvídd hingað til lands takmarkast af einum, bráðum tveim sæstrengjum sem kostar milljarða að leggja.



Skjámynd

CendenZ
Stjórnandi
Póstar: 2893
Skráði sig: Fös 04. Apr 2003 08:54
Reputation: 225
Staðsetning: Á þessu spjalli
Staða: Ótengdur

Re: Borgað fyrir erlent download.

Pósturaf CendenZ » Lau 18. Okt 2008 09:56

natti skrifaði:
CendenZ skrifaði:Hinsvegar gæti þetta orðið verra ef Skipti verður selt til aðila sem vilja græða græða græða og taka þ.a.l. verðþakið af.


Þú meinar að núverandi eigendur vilja ekki græða?



Skipti má ekki okra, þeir eru í samkeppnishamlandi rekstri.

OgVodafon og Síminn kaupa aðföng frá Skipti, en Síminn og Skipti eru í raun sömu eigendurnir.