Ertu viss á því að 2493HM styðji ekki HDCP gegnum HDMI tengið? Finnst rosaleg spes að hafa bara HDCP á DVI tenginu. Mundi meika meira sens ef það væri öfugt :S
En aftur á móti veit ég að allir xx93HM skjáirnir frá samsung styðja ekki 1:1 pixel mapping sem er ástæðan fyrir því að ég fékk mér
þennan hérna í staðinn fyrir 2493HM.
1:1 pixel mapping er sem sagt búnaður í skjánum sem gerir honum kleyft að taka inn á sig merki í hvaða hlutföllum sem er og skala það rétt án þess að klippa neitt af myndinni. Þetta er mjög mikilvægt ef þú villt td. tengja annaðhvort PS3 eða Xbox 360 við skjáinn þar sem að báðar tölvu senda út merki á 16:9 eða fyrir breyðtjaldssjónvörp en tölvuskjáir eru í hlutföllunum 16:10. Ef þú mundir tengja PS3 í td. samsung 2493HM mundi hann annaðhvort teigja myndina uppi og niðri, svo hún fylli út í ramman, og þar með rugla hlutföllum, eða hann mundi halda réttum hlutföllum og klippa af myndinni hægra og vinstra meiginn.
Ég veit ekki hvort að þessi Hanns G skjár styðji þetta en ég mundi reyna að komast að því áður en þú kaupir hann.