Nú hef ég ákveðið að festa kaup á tölvu, en þar sem ég hef ekki hugmynd hvernig tölvu ég ætti að fá mér ákvað ég að leita hjálpar hjá ykkur.
Það sem ég myndi nota tölvuna mest í væri tölvuleikir og þá allra nýjustu. Það sem ég er tilbúinn að eyða í vélina væru 200.000kr, og vil ég hafa tölvuna eins hljóðláta og öfluga og hægt er fyrir þennan pening. Það væri frábært ef einhverjir gætu hent inn hugmyndum af vél fyrir mig.
Með von um yndisleg svör, Pisc3s.

Og ég gleymdi að segja að ég þarf ekki harðan disk né geisladrif.