Í apríl 2007 var töluvert skrifað um vandræði Nvidia með að fá straumstýringuna á G84 [Geforce 8400] og G86 [Geforce 8600] "A01 Revision" kjörnunum til að keyra almennilega,
Nvidia neitaði alfarið að um vandamál væri að ræða

Þessi straumstýrings bilun hafði meðal annars þau áhrif á Mobile kjarnana að þegar kjarninn fór úr 3D vinnslu yfir í 2D vinnslu þá lækkaði ekki straumstýringin voltin inn á kubbinn.
Með öðrum orðum þá keyrðu kubbarnir alltaf á Full Steam = mikil hitamyndun og álag á kælibúnað+PCB.
Bilun þessi varð til þess að flestir fartölvumóðurborðs framleiðendur afpöntuðu A01 Rev kjarnana og biðu eftir A02 Rev kjörnum sem áttu að laga vandamálið (ekkert vandamál já...)
Þegar A02 kjarnarnir komu þá höfðu Nvidia leyst niðurklukkunarstraumvandamálið en á móti kom að í A02 rev kjörnunum var búið að hækka voltin um 0.075v (úr 1.3 í 1.375) Eeeeeen Nvidia sagði "Engar áhyggjur, kjarninn þolir þetta..." og allir voru ánægðir nema fartölvuframleiðendunir sem voru komnir með kubba í hendurnar sem hitnuðu mun meira en upprunalega Spec og kælibúnaður gerði ráð fyrir:?
Útkoman
Nú er óvenju mikið farið að bera á bilunum í fartölvum sem innihalda [Breytt] 65nm eða 55nm kjarnana. Sérfræðingar hafa komist að því að efnið sem er notað til að binda "Die´ið (kjarnann)" við
"pakkann" er of veikt til að þola miklar hita sveiflur í langann tíma í þeim hita sem kjarnanir gefa frá sér. (Mjög svipað því sem M$ lentu í með skjákortin í Xbox360)
Nvidia neita því ennþá að um vandamál sé að ræða í kjörnunum og benda á alla aðra eins og t.d. hvernig notendur eru að nota tölvurnar sínar og fartölvuframleiðendurna... gott að afla sér vina svona..

(Fjöldinn allur af þráðum er sprottinn upp um allt internet með vandamálum af þessu tagi. Þetta hrjáir alla framleiðendurna, HP, Dell, Acer, Apple etc...)
*Update - Nvidia tilkynnti á NVISION 08 ráðstefnunni breytingu á efnisvali við framleiðslu substrates á kjarnana sína, úr high-lead yfir í eutectic

HP voru fyrstir til að brjóta ísinn og hafa gefið út fjöldann allan af BIOS "lagfæringum". Það sem þessar lagfæringar gera er einfaldlega að setja viftustýringu tölvnanna í 100% . ALLTAF í 100%.
Jibbí meiri hávaði og mikið minni batterísending

*Update - Komið hefur í ljós að Dell og HP ásamt fleirum vissu af þessu vandamáli fyrir allt að ári síðan en kusu að gera ekkert í því.
Til gamans má geta að bilunin virðist oftast koma fram eftir um það bil árs notkun en þá er að sjálfsögðu ábyrgð fallin úr gildi á flestum vélum a.m.k þeim sem verslaðar eru í USA (kannski þessvegna sem Nvidia telur þetta ekki vandamál?)
Bottom Line
Ef þú átt fartölvu sem er enn í ábyrgð með Nvidia[Breytt] 65nm eða 55nm skjákorti þá er það ekki spurning um hvort heldur hvenar skjákortið mun gefa sig.
Þannig að reynið á skjákortin ykkar með því að lúppa eitthvað þungt 3d stress test og alt+tabið reglulega útúr því til að láta skjákortið kæla sig niður á milli

Gerið þetta cycle nógu oft og skjákortið mun gefa sig á endanum. Þá getið þið farið með tölvuna í ábyrgðarviðgerð og fáið hana vonandi til baka með
einum af nýjustu kjörnunum sem eru framleiddir með eutectic substrate sem inniheldur ekki þetta vandamál.
Þetta vandamál nær líka yfir Desktop skjákort, en þar sem hita cycle á þeim er ekki nálægt því jafn mikið og í fartölvum mun líða töluvert lengri tími þar til bilanir í þeim koma í ljós.
Ath einnig að hvorki Nvidia né framleiðendur hafa viðurkennt að um "galla" sé að ræða og skipta því eingöngu "biluðum" búnaði út.
Happy chip cracking
