Meira minni


Höfundur
kannekki
Nýliði
Póstar: 5
Skráði sig: Mán 27. Okt 2003 15:13
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Meira minni

Pósturaf kannekki » Mán 27. Okt 2003 15:24

Ég er með Dell fartölvu sem einungis er með 20Gb disk og nú er mig farið að vanta geymslupláss, 40-80Gb til viðbótar.

Best væri að geta tengt einhvern handhægan harðan disk við tölvuna sem hægt væri að flytja auðveldlega milli staða (og tengja í aðrar tölvur).

Er með 2x usb en ekkert firewall.

Hver er nú besta lausnin í þessu máli, (verð/þægindi/áreiðanleiki), kæru spjallendur?

Kveðja
Kann Ekki




Arnar
Staða: Ótengdur

Pósturaf Arnar » Mán 27. Okt 2003 15:48

Kaupa annaðhvort utanáliggjandi HDD eða flakkara.. en í hann geturu sett hvaða HDD í.. (5.25")



Skjámynd

RadoN
spjallið.is
Póstar: 403
Skráði sig: Fim 09. Okt 2003 22:38
Reputation: 0
Staðsetning: 600 Akueyri
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf RadoN » Mán 27. Okt 2003 16:52

hvað kemur firewall þessu við? :D
eða ertu að meina Firewire? heh
ertu með USB2 eða bara USB1.1 ?



Skjámynd

Voffinn
Vaktari
Póstar: 2249
Skráði sig: Sun 22. Des 2002 17:41
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf Voffinn » Mán 27. Okt 2003 17:02

Kaupir þér náttúrlega bara utanáliggjandi hd, passaðu bara að hann sé usb2.0 ef lappinn þinn er usb2.0.

Slæmt að heyra að þú hafir engan firewall.... :roll:


Voffinn has left the building..


gumol
Besserwisser
Póstar: 3929
Skráði sig: Sun 27. Okt 2002 00:12
Reputation: 0
Staðsetning: Kópavogur
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf gumol » Mán 27. Okt 2003 18:02

kannekki: Þetta nick passar mjög vel við þig :lol:
Firewall kemur harða diskinum lítið við, ekki frekar en skanninn eða prentarinn, en ég held þú hafir bara orðað þetta illa

Ég myndi fá mér:
USB2 tengt utanáliggjandi box fyrir 3,5" diska 5.500
og svo amk 80 GB harðan disk og uppúr, fer bara eftir því sem þú þarft
Seagate Barracuda 80GB ATA100 2MB buffer 9.000
En þú getur auðvita farið hærra ef þú telur þig þurfa það
Samsung ATA-133 160GB 7200rpm 8MB cache 14.000




Höfundur
kannekki
Nýliði
Póstar: 5
Skráði sig: Mán 27. Okt 2003 15:13
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf kannekki » Mán 27. Okt 2003 20:35

OK, vandræðalegt! :oops:

Firewire var það sem ég átti víst við, ekki firewall... klaufinn ég.

Ég held örugglega að ég sé með USB 2.0 og mig langar helst í meðfærilegri harðan disk eins og t.d. svona græju:

IBM Portable 40 GB USB 2.0 Hard Drive

Er eitthvað af þessum toga til á viðráðanlegu verði einhvers staðar?




gumol
Besserwisser
Póstar: 3929
Skráði sig: Sun 27. Okt 2002 00:12
Reputation: 0
Staðsetning: Kópavogur
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf gumol » Mán 27. Okt 2003 20:58

þetta sem ég var að benda þér á virkar eins, það er bara stærra, stærra um sig og helmingi meira pláss
þetta kostar samtals tæplega 15.000




Höfundur
kannekki
Nýliði
Póstar: 5
Skráði sig: Mán 27. Okt 2003 15:13
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf kannekki » Þri 28. Okt 2003 09:53

Takk fyrir það.

Það er greinilega áhugaverður kostur að nota svona tengibox, en kannski óhentungt þegar maður þarf að vera að ferðast mikið með þetta unit.

Ég fór í Expert í gær af því að þeir voru með svona IBM 40Gb USB 2.0 tæki á vörulistanum sínum en enginn kannaðist nú samt við þetta í búðinni.

Ég finn þetta heldur ekki á neinum af þessum netverslunum.

Er þetta kannski ekki selt hérna ??



Skjámynd

Voffinn
Vaktari
Póstar: 2249
Skráði sig: Sun 22. Des 2002 17:41
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf Voffinn » Þri 28. Okt 2003 11:14

Jú, ég held að tölvulistinn sé með svona.

Hver verslar við expert ? :?


Voffinn has left the building..


gumol
Besserwisser
Póstar: 3929
Skráði sig: Sun 27. Okt 2002 00:12
Reputation: 0
Staðsetning: Kópavogur
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf gumol » Þri 28. Okt 2003 12:08

Allir nema voffinn




Hlynzi
vélbúnaðarpervert
Póstar: 996
Skráði sig: Fös 15. Nóv 2002 20:40
Reputation: 46
Staðsetning: RVK
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Hlynzi » Þri 28. Okt 2003 17:54

Voffinn skrifaði:Jú, ég held að tölvulistinn sé með svona.

Hver verslar við expert ? :?


Segi það nú með þér. Expert, BT og Elko eru jafn vel á listanum hjá mér... allir saman í neðsta sæti. Svo eru nokkrar búðir sem eru brandarar.

éG myndi fá mér annaðhvort nýjan disk í lappann, en örugglega dýr diskur eða bara ferða-skúffu, skúffa bara diskinn eftir þörfum.


Hlynur


gumol
Besserwisser
Póstar: 3929
Skráði sig: Sun 27. Okt 2002 00:12
Reputation: 0
Staðsetning: Kópavogur
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf gumol » Þri 28. Okt 2003 19:36

það er ekkert að því að versla í ELKO, góð þjónusta þar.
Hvað er að Exxpert (þíðir ekkert að segja "bara, það segja það allir")




Höfundur
kannekki
Nýliði
Póstar: 5
Skráði sig: Mán 27. Okt 2003 15:13
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf kannekki » Mið 29. Okt 2003 13:45

Jæja, ég finn hvergi svona "portable" harðan disk en fann lítið og nett tengibox hjá computer.is en nú er ég svo vitlaus að ég veit ekkert hvaða merki er best af þessum hörðu diskum!

Er í lagið að kaupa þetta:
Hitachi 40 GB, 9,5 mm fyrir fartölvur

Eða á ég að fjárfesta í einhverju öðru?

Kveðja,
Kannekki, Veitekki, Skilekki