RAID 0


Fox
Staða: Ótengdur

Pósturaf Fox » Mið 15. Okt 2003 18:17

gnarr skrifaði:hvorki stripe né mirror er sniðugt, nema þú þarft mikið performance en ekkert data security, þá er striping sniðugt. annars eru allar hinar raid aðferðirnar sniðugar.


Hvað meinar þú?
Mirror er öryggasta af öllum RAID flokkunum.
Færð þér almennilegann RAID controller og þá ertu set.
Og MIRROR hefur ekkert að segja með Preformance, dregur það niður ef eitthvað er á lélegum disk stýringum.



Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6574
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Reputation: 356
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf gnarr » Mið 15. Okt 2003 22:57

ég svaraði sömu spurningu á hinum raid þræðinum. raid 0 endurbyggir sig ekki ef annar diskurinn bilar, en öll önnur raid gera það. svo er maður að eyða 50% af diskplássinu í raidið, meðan að á góðu raid 3 eða 5 er að nota allt niðrí 10-15% af diskplássinu í ecc, svo að maður er ekki að eyða svona fáránlega miklu plássi í rugl.


"Give what you can, take what you need."

Skjámynd

MezzUp
Besserwisser
Póstar: 3694
Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 15:19
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf MezzUp » Fim 16. Okt 2003 09:55

"Fox - RAID0: Stripe er ekki sniðugt.
Notaðu frekar Mirror."
Hvernig geturru sagt honum að nota mirror frekar heldur en stripe þegar þessi tvö raid þjóna algjörlega sitthvorum tilgangi. Annað performency en hitt security. Einsog einhver ætlaði að kaupa sér gröfu og ég myndi segja honum að kaupa frekar vörubíl afþví að gröfur væru drasl :)

gnarr, en með RAID3 og 5 þarf maður a.m.k. þrjá diska. menn kannski ekki alveg til í spreða í þrjá diska ef að þeir vilja bara performance og eru nokkuð sama um bíómyndirnar



Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6574
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Reputation: 356
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf gnarr » Fim 16. Okt 2003 10:36

það væri sniðugt þá að kaupa þá frekar 3x aðeins hægari og stærri diska heldur en 2x litla og hraða. hver er annars til í að kaupa 2 harða diska og í rauninni bara henda öðrum (setja hann í raid 1)


"Give what you can, take what you need."

Skjámynd

MezzUp
Besserwisser
Póstar: 3694
Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 15:19
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf MezzUp » Fim 16. Okt 2003 10:54

ef að maður vill bara performance og er sama umbíómyndirnar þá dugar RAID0 alveg, og maður þarf bara 2 diska. Ef að maður er hinsvegar að hugsa um gagnaöryggi þá myndi ég líka fá mér RAID5 frekar en mirror



Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6574
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Reputation: 356
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf gnarr » Fim 16. Okt 2003 11:49

ég var að segja það. raid 0 er mjög sniðugt ef manni er skítsama um gögnin. annars eru allarar aðrar raid aðferðir sniðugri en raid 1, þær eru hraðari, nýta diskplássið betur og eru með sjálfvirka enduruppbyggingu ef einn diskurinn klikkar.


"Give what you can, take what you need."


Fox
Staða: Ótengdur

Pósturaf Fox » Fim 16. Okt 2003 15:10

Varðandi kvikmyndir og warez rusl.
Þá hefyur yfirleitt nægt mér að setja þetta á nokkra diska, án þess að RAIDa, og´flokka þetta svo allt inn í ein folder með shortcuts.



Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6574
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Reputation: 356
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf gnarr » Fim 16. Okt 2003 15:57

hvernig tengist það þessum umræðum?


"Give what you can, take what you need."

Skjámynd

RadoN
spjallið.is
Póstar: 403
Skráði sig: Fim 09. Okt 2003 22:38
Reputation: 0
Staðsetning: 600 Akueyri
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf RadoN » Fim 16. Okt 2003 18:48

lol :lol:
segi það, hvað kemur kvikmyndir og warez rusl þessu við? :P



Skjámynd

Nemesis
Ofur-Nörd
Póstar: 297
Skráði sig: Mið 29. Okt 2003 01:46
Reputation: 1
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf Nemesis » Lau 08. Nóv 2003 16:07

örugglega meirihlutinn af fólki sem fyllir diskana sína af því :)




belja
Nýliði
Póstar: 1
Skráði sig: Þri 11. Nóv 2003 20:11
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

R-Studio

Pósturaf belja » Þri 11. Nóv 2003 20:16

Ertu búinn að prufa r-studio? Það er oft búið að redda mér með diska sem neita að virka að neinu viti. Hef reyndar ekki prufað það á raid disk, en sakar ekki að prufa :?