af hverju sýnir cpu-z bara einn kjarna þó að ég sé með dual?


Höfundur
Dazy crazy
ÜberAdmin
Póstar: 1317
Skráði sig: Fim 29. Nóv 2007 23:46
Reputation: 5
Staðsetning: Lýtó
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

af hverju sýnir cpu-z bara einn kjarna þó að ég sé með dual?

Pósturaf Dazy crazy » Lau 12. Jan 2008 21:22

þessi lýsandi fyrirsögn mín segir allt og hér er mynd sem skýrir mál mitt enn frekar :P
Viðhengi
core0.png
myndin, greinilega báðir kjarnarnir í load en cpu-z sýnir bara core0, í quadinum get ég skipt um kjarna eins og ég vil.

seinni kjarninn virkar er ekki í full load vegna þess að það er ekki nóg minni(minnin biluð held ég, stöðurafmagn :oops:)
core0.png (17.01 KiB) Skoðað 1763 sinnum


Klám og stríð er undirstaða allrar tækni!


dadik
Tölvutryllir
Póstar: 671
Skráði sig: Lau 14. Sep 2002 11:21
Reputation: 119
Staðsetning: Reykjavik
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf dadik » Lau 12. Jan 2008 21:28

Þetta er ekki dual core cpu heldur bara hyperthreaded


ps5 ¦ zephyrus G14


Höfundur
Dazy crazy
ÜberAdmin
Póstar: 1317
Skráði sig: Fim 29. Nóv 2007 23:46
Reputation: 5
Staðsetning: Lýtó
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Dazy crazy » Lau 12. Jan 2008 21:48

sem er?

ég get látið prime95 keyra á core0 og core1

er þá ekkert betra að hafa þetta hyper-threading
Síðast breytt af Dazy crazy á Lau 12. Jan 2008 22:02, breytt samtals 1 sinni.


Klám og stríð er undirstaða allrar tækni!

Skjámynd

Revenant
</Snillingur>
Póstar: 1052
Skráði sig: Fim 24. Jún 2004 12:36
Reputation: 139
Staða: Tengdur

Pósturaf Revenant » Lau 12. Jan 2008 21:55

Þetta er einn kjarni en getur "keyrt" tvo þræði á "sama tíma" (þannig að það sýnist vera tveir kjarnar)




Höfundur
Dazy crazy
ÜberAdmin
Póstar: 1317
Skráði sig: Fim 29. Nóv 2007 23:46
Reputation: 5
Staðsetning: Lýtó
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Dazy crazy » Lau 12. Jan 2008 22:03

græði ég ekkert á því, er örrinn bara 3 ghz ennþá og deilist þá í 1,5+1,5 eða er ég að misskilja?

og önnur spurning, af hverju get ég ekki séð !"#$%&#&#/" hitann á örgjörfanum neinsstaðar nema í bios?

getur einhver verið svo vænn að benda mér á eitthvað forrit til að sjá hitann á intel pentium 4 örgjörva á Gigabyte ga-8ipe1000 pro-g móðurborði, væri mjög vel þegið, og kannski eitthvað líka til að sjá hitann á minnunum.


Klám og stríð er undirstaða allrar tækni!


corflame
Tölvutryllir
Póstar: 678
Skráði sig: Fim 15. Apr 2004 20:05
Reputation: 0
Staðsetning: Keyboard central
Staða: Ótengdur

Pósturaf corflame » Mán 14. Jan 2008 13:51

Minni kemur almennt ekki með hitanemum...




Höfundur
Dazy crazy
ÜberAdmin
Póstar: 1317
Skráði sig: Fim 29. Nóv 2007 23:46
Reputation: 5
Staðsetning: Lýtó
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Dazy crazy » Mán 14. Jan 2008 13:56

en græði ég ekkert á þessu hyper threading, er búinn að vera að reyna að lesa mér til en skil ekki mjög mikla ensku.


Klám og stríð er undirstaða allrar tækni!


dadik
Tölvutryllir
Póstar: 671
Skráði sig: Lau 14. Sep 2002 11:21
Reputation: 119
Staðsetning: Reykjavik
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf dadik » Þri 15. Jan 2008 07:53

Ég skal reyna að skýra þetta út fyrir þér.

Dual Core örgjörvar eru í raun tveir örgjörvar í einum "pakka". Þú getur hugsað þetta eins og að þú værir með innstungur fyrir tvo örgjörva á móðurborðinu þínu og þú værir með eins örgjörva í báðum. Eini munurinn er að núna er búið að pakka þessu inn fyrir þig þannig að þú ert með tvo örgjörva en bara eina innstungu. Sniðugt ekki satt?

Svona dual core örgjörvar geta keyrt tvö forrit á fullum afköstum á sama tíma því að þetta eru jú tveir aðskildir örgjörvar. Hyperthreaded örgjörvar eins og þú ert með komu aðeins á undan dual core örgjörvunum. Á þeim tíma var intel ekki tilbúið með alvöru dual core örgjörva en voru samt að spá í hvernig væri hægt að keyra fleiri en einn forrit samhliða.

Á þess að fara mjög djúpt í þetta þarftu aðeins að vita hvernig þeir fóru að þessu. Örgjörvi samanstendur af nokkrum reiknivélum, ekki ósvipuðum þeim sem þú sérð dags daglega. Munurinn er sá að sumar reiknivélarnar geta bara unnið með heiltölur (1,4,7 o.s.fr.) en aðrar með kommutölur (1.5, 3.72, o.s.fr.). Mig minnir að örgjörvi eins og þinn sé með 4 heiltölureiknivélar og 3 kommutölu, þú getur flett þessu upp. En trikkið er semsagt að allar reiknivélarnar eru ekki endilega í notkun á sama tíma. T.d. notar ritvinnsluforrit lítið af kommutölureiknivélunum.

Það sem örgjörvinn gerir þegar forrit er að nota fáar reinivélar er að hleypa öðru forriti að til að nota þessar ónotuðu. Þannig bætirðu nýtinguna á hverjum klukkupúlsi og kemur meiru í verk. Þetta er ekki alvöru dual core lausn, en er samt hraðvirkari en ef að einungis eitt forrit hefði aðgang að örgjörvanum á hverjum tíma. En þrátt fyrir að þetta sé ekki jafn hraðvirkt og dual core örgjörvi ertu samt að fá 15 - 25% hraðaaukningu miðað við örgjörva sem notar ekki dual core.

Stýrikerfið aftur á móti heldur að það séu tveir örgjörvar í vélinni meðan það er bara einn. Ekki láta það plata þig.

- dk

PS. ef þú vilt sjá hita á cpu/móðurborði er best að nota speedfan, sem þú finnur með google. Þú getur líka lesið SMART statusana á hördu diskunum þínum til að sjá hvort þeir séu að gefa sig. Einfalt og gott tól.


ps5 ¦ zephyrus G14


Höfundur
Dazy crazy
ÜberAdmin
Póstar: 1317
Skráði sig: Fim 29. Nóv 2007 23:46
Reputation: 5
Staðsetning: Lýtó
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Dazy crazy » Þri 15. Jan 2008 11:02

takk fyrir mjög greinargóða útskýringu þetta var ansi skilmerkilegt og ég held ég sé búinn að ná þessu núna.

Ps. speedfan sýnir mér ekki hitann á örgjörfanum, bara einhverjum hlutum ár móðurborðinu sem heita skrítnum nöfnun, getur verið að eitt þeirra sé örgjörfinn þó það heiti ekki cpu?


Klám og stríð er undirstaða allrar tækni!


dadik
Tölvutryllir
Póstar: 671
Skráði sig: Lau 14. Sep 2002 11:21
Reputation: 119
Staðsetning: Reykjavik
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf dadik » Þri 15. Jan 2008 11:04

tékkaðu á Local Temp eða Temp1


ps5 ¦ zephyrus G14


Höfundur
Dazy crazy
ÜberAdmin
Póstar: 1317
Skráði sig: Fim 29. Nóv 2007 23:46
Reputation: 5
Staðsetning: Lýtó
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Dazy crazy » Þri 15. Jan 2008 11:55

já það stendur temp
takk


Klám og stríð er undirstaða allrar tækni!