Ég er búinn ad velta þessu lengi fyrir mér. .. hvor sé betra Amd eða Pentium... ég er ad tjekka...
ég ætla ad fá mér annað hvort ég vil nota tölvuna mína í þunga og mikla vinnslu.. líka mjög mikið í leiki... hvor Örgjorfi er betri ?
endilega láta vita takk fyrir
Heheh þú varst ekki lengi ad svara.. takk fyrir þad...
ég vil nota tölluna mína í þunga og mikla vinnslu.. ég þoli ekki töllur sem frosna stöðugt og eru leiðinlegar... og nota tölluna líka í leiki auddad :p
Smá gagnlausar upplýsingar.
Vitið þið að Benz eigendur eru mikið óánægaðri um bíla sína en Trabant eigendur, þýðir samt ekki að Trabant sé betri .......... eða hvað
gumol: og þar liggur hundurinn grafinn, 2,4 ghz P4 800fsb kostar 20 þús meðan Amd 2500+ XP 333 fsb kostar 10 þús. Performance/price er hér augljóslega AMD í hag.
Eftir að hafa skoðað verðsamanburðinn hérna á Vaktinni þá kemst ég að þeirri niðurstöðu að þeir sem vilja vera á "the bleeding edge of technology" (s.s. með aðeins betri tölvu en það besta) þeir fjárfesta líklega í Intel. Þeir sem vilja vera með "budget" tölvu (án þess þó að hún sé neitt drasl, bara vandlega farið með peninga) þeir stefna á AMD. Merkilegt nokk þá er BT að selja langódýrustu Intel örgjörvana í dag, en því miður hafa þeir ekkert frá AMD (nema 2600+ en verðið á honum er "í vinnslu")
það er tilgangslaust að vera að eyða einhverju brjálæðislegu á örrana þar sem það er alltaf eitthvað nýtt á leiðinni og það nýjasta er hlutfallslega dýrara heldur en það á rétt á sér miðað við gömlu vörurnar.
Kaupið nógu góða tölvu og eyðið frekar þá meira á aukadót eins og ég, aukadótið endist í mörg ár... eins og teikniborðið sem ég er að leita mér að... hef meiri áhuga á því heldur en að uppfæra tölvuna meira
ég ætlaði að kaupa mér nýjan P4, nýtt móðurborð (vegna þess að ég er með AMD móðurborð núna) og nýtt skjákort.. en er hættur við það vegna þess að ég ætla einmitt frekar að kaupa mér eitthvað aukadót í tölvuna, svo þarf ég líka að kaupa mér nýjan skjá, og kanski nýtt lyklaborð (mitt verður oft "sambandslaust" og ég verð að ýta því mjög fast í PS/2 slottið), músin mín er eitthvað gamallt laser junk frá M$ (takkarinir eru orðnir lausir og lélegir), o.fl.